Jón Baldvin Hannibalsson

Fréttamynd

Ísland og Evrópusambandið

Í grein sinni: „Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu,“ sem birtist í áhrifamiklum fjölmiðlum í Bretlandi, Frakklandi og Noregi, auk Íslands, 1. ágúst, sl., byggir Eva Joly, þingmaður á Evrópuþinginu, málflutning sinn á því, að íslenska þjóðin sé fórnar­lamb atburða, sem hún fékk engu um ráðið.

Skoðun
Fréttamynd

Samningsstaða og samningsmarkmið

Nýlega kom út bókin Inni eða úti? eftir Auðun Arnórsson. Þetta er lítil bók um mikið efni: Hvernig á litla Ísland að semja um aðild við hið stóra Evrópusamband? Umræðuefnið er þessi dægrin á hvers manns vörum. Þessi litla bók á því brýnt erindi við alla Íslendinga, sem á annað borð kæra sig ekki kollótta um framtíð sína og sinna.

Skoðun
Fréttamynd

Er ekkert að óttast?

Í Fréttablaðinu þann 1. maí sl. tók ég mér fyrir hendur að leiðrétta 11 firrur um Evrópusambandið, sem ýmsir frambjóðendur héldu að kjósendum í nýliðinni kosningabaráttu. Greinin vakti talsverð viðbrögð lesenda, bæði jákvæð og neikvæð. Sumir lesendur sögðu sem svo: Vera má að þú hafir rétt fyrir þér – eða allavega nokkuð til þíns máls – um þessi ellefu málasvið. En er það virkilega svo, að þú sjáir enga ókosti við Evrópusambandið?

Skoðun
Fréttamynd

Ellefu firrur um Evruland

Öllum þessum frambjóðendum tókst að fara í gegnum kosningabaráttuna án þess að upplýsa þjóðina um hvað hún skuldaði mikið; án þess að segja henni frá neyðarfjárlögum með niðurskurði og skattahækkunum; og án þess að þorri kjósenda hafi grænan grun um yfirvofandi bankahrun ríkisbanka, sem eru klyfjaðir ónýtum lánasöfnum.

Skoðun
Fréttamynd

Fullt stím áfram

Í framhaldi af þeirri ákvörðun Inigibjargar Sólrúnar Gísladóttur að draga sig í hlé frá stjórnmálum um sinn a.m.k., er ljóst að landsfundur SF verður að velja flokknum nýjan formann í aðdraganda kosninga til næstu tveggja ára.

Skoðun
Fréttamynd

Skilyrðislaus uppgjöf

Það var smáfrétt í vikunni að Jón Magnússon, sem kosinn var á þing 2007 fyrir Frjálslynda flokkinn, hefði loksins ratað aftur heim til íhaldsins. Það eina sem sætir tíðindum við þetta er tímasetningin. Gleymd er öll gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn út af gjafakvótum, og annarri kerfislægri spillingu sem

Skoðun
Fréttamynd

Flokkshagsmunir gegn þjóðarhagsmunum

Hvers vegna hefur Sjálfstæðisflokkurinn staðið þvert í vegi fyrir því að þjóðin gæti látið á það reyna, hvort brýnustu þjóðarhagsmunum væri betur borgið með aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru?

Skoðun
Fréttamynd

Ber enginn pólitíska ábyrgð?

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið ráðandi afl í stjórnmálum á Íslandi á lýðveldistímanum. Síðastliðin sautján ár hefur flokkurinn farið með allt í senn forsætisráðuneytið, fjármálaráðuneytið og stjórn Seðlabankans (í persónum tvegga fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur). Þar með ber Sjálfstæðisflokkurinn óumdeilanlega höfuðábyrgð á þeirri efnahagsstefnu, sem nú hefur beðið algert skipbrot.

Skoðun
Fréttamynd

Fórnarlambið?

Niðurstaðan af eintali Davíðs Oddssonar við sjálfan sig í Kastljósi RÚV sl. þriðjudagskvöld 8. okt. vakti óskipta samúð hlustenda með örlögum þessa mæðumanns. Davíð hefur, að eigin sögn, verið saklaust fórnarlamb óreiðumanna og brennuvarga (hans eigin orð) sem á undanförnum árum hafa vaðið uppi í þjóðfélaginu og farið sínu fram, þrátt fyrir fyrirbænir og varnaðarorð hins áhrifalausa seðlabankastjóra.

Skoðun
Fréttamynd

Kórvilla af Vestfjörðum?

En upp úr þessu var Guðjóni Friðrikssyni sagt upp og hrökklaðist hann þá til Ísafjarðar. Þar gerði hann sér lítið fyrir og hóf ofsóknir á hendur Jennu og Hreiðari sem barnabókahöfundum. Það voru hefndirnar. (Úr dagbók Matthíasar Johannessens, skálds.)

Skoðun
Fréttamynd

Ekkert til að biðjast afsökunar á

Ögmundur Jónasson er vaxandi stjórnmálamaður, stefnufastur, ötull og fylginn sér. En stundum vottar fyrir því, að hann sé helst til trúgjarn. T.d. hefur hann látið Þór Whitehead telja sér trú um það, að við Steingrímur Hermannsson, fv. forsætisráðherra, hefðum stundað njósnir um samráðherra okkar í ríkisstjórn Steingríms 1988-91. Það gerðum við Steingrímur að sönnu ekki og þurfum því ekki að biðjast afsökunar á því.

Skoðun
Fréttamynd

Sagnfræðingur og stjörnuvitni

Viðbrögð sumra stjórnmálamanna við þeim upplýsingum, að sími utanríkisráðherra hafi verið hleraður svo seint sem á árunum 1991-93, mega heita undarleg. Fyrstu viðbrögð voru þau, að fórnalamb ólöglegra og leynilegra hlerana var krafið um vitni.

Skoðun