Ari Trausti Guðmundsson

Fréttamynd

Nýsköpun í ferðaþjónustu

Stundum er haft á orði að hver erlendur ferðamaður skilji að jafnaði 100.000 krónur eftir sig eða að hann jafngildi einu þorsktonni úr sjó. Fleiri ferðamenn eru velkomnir þó að einhvers staðar séu til þolmörk samfélags og náttúru. Geri mætti ráð fyrir að samfélagið legði áherslu á að styðja við nýsköpun, rannsóknir og þróunarstarf í geiranum. En þegar að er gáð fer margfalt minna fyrir slíku en stuðningi við hefðbundinn iðnað og alls kyns framleiðslu.

Skoðun
Fréttamynd

Ari Trausti Guðmundsson: Siðbót í lausu lofti

Það er lélegur vonarpeningur að halda að siðbót sé hugarfarsbreyting sem menn hugsa upp í lausu lofti. Allar verulegar hugmyndafræðilegar breytingar hafa bæði efnahagslegan og stjórnmálalegan grunn. Íslenskt efnahagskerfi byggir á mismunun og takmarkalausri gróðasókn, hvað svo sem segja má um eitt og annað jákvætt í því. Stærstu ákvarðanirnar og aðgerðirnar sem urðu að veruleika fyrir hrunið voru meðvitaðar og byggðar á ákveðinni hugmyndafræði. Þær voru ekki mistök. Stjórnmálamenn skorti ekki staðfestu til að stöðva það sem rangt var. Þeir voru ýmist samþykkir vegferðinni eða eygðu í henni eitthvað skárra en fyrir var.

Skoðun
Fréttamynd

Eldfjallagarður er samstarfsverkefni

Hugmyndir um eldfjallagarð á Reykjanesskaga hafa verið alllengi á kreiki. Fyrir meira en áratug vann ég greinargerð fyrir Hafnarfjarðarbæ um safn til sögu eldvirkni og um eldfjallagarð tengdan því. Með eldfjallagarði er átt við mörg samstengd svæði eða staði þar sem áhugafólk getur fræðst með einhverjum hætti (skilti, prentefni, hljóðrænar upplýsingar osfrv.) um sögu eldgosa, eldstöðvar, gosmyndanir og jarðskorpuhreyfingar. Milli staða geta menn ýmist ekið, hjólað eða gengið, allt eftir stað, vegalengd og áhuga. Sýningar eða sérstök mannvirki sem varða jarðeld eða jarðhita geta verið hluti garðsins.

Skoðun
Fréttamynd

Hafið þér ekið yfir Þingvallahraun?

Allir gera sér grein fyrir að óbyggðir landsins geyma ýmis verðmæti. Þar eru beitilönd, vatnsföll, jarðefni, fiskur og fuglar. Eitt sinn greru þar víðfeðmir skógar og kjarr. Líka er þar landslag og fjölbreyttar jarðmyndanir, sandar, jöklar og margt fleira.

Skoðun
Fréttamynd

Merkileg bók um listamann

Myndlist í samfélagi eins og því íslenska hefur löngum verið snortin af óskrifuðum boðum og bönnum, jafnvel tískusveiflum, þó svo hugtakið tíska nái ekki vel til þess ástands sem hampar einni eða fleiri listastefnum en sneiðir hjá eða hafnar öðrum. Þannig hafa gengið yfir tímabil þar sem margir agnúuðust út í afstrakt sem „óæðri list“ meðan aðrir litu á hlutbundna myndlist sem „gamaldags drasl“ og konseptlist var „inni“ en máverk „úti“. Eins og ekkert væri sjálfsagðara. Mörg undanfarin ár hafa æ fleiri hafnað slíkum dilkadrætti og horft til fjölbreytni í myndlist og gæða (á margvíslegan mælikvarða) fremur en tilteknar skólastefnur eða hópmyndanir. Sumir vilja kenna þetta (eða þakka) svoköllum póstmódernisma. Mér er nær að halda að töluverðu almennu frjálslyndi, aukinni víðsýni vegna meiri ferðalaga en áður og höfnun kennisetninga í listum sé um að kenna (eða þakka).

Skoðun
Fréttamynd

Eldfjallagarður á Reykjanesi?

Reykjanesskaginn er um 1.700 ferkílómetrar að flatarmáli og er þar að finna margvíslegar menjar um eldvirkni undanfarinna 200.000 ára. Úthafshryggir og plötuskil ganga hvergi í heiminum upp á land á stóra, byggða eyju sem hefur myndast á þeim, nema á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Aðgerðir en ekki orð

Við sem erum komin á miðjan aldur og höfum vel bærileg laun gerum okkur ef til vill ekki næga grein fyrir aðstöðu margra sem ekki ná þeim lífsgæðum sem við hin þekkjum.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrirtæki borguðu ísjakann í París

<em><strong>Menningarkynning í París - Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur</strong></em> Ísjakinn frægi kostaði íslenska skattgreiðendur ekki krónu í reynd.

Skoðun
Fréttamynd

Kostir sjóflutninga

<strong><em>Flutningar á sjó og landi - Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur</em></strong> Hitt er alveg víst að hvergi í nágrannalöndum búast menn við öðru en að flutningabílaæðið sem gengið hefur yfir iðnríkin sé að hjaðna. Lestir, skip, orkusparnaður, mengunarvarnir, heildarhagkvæmni og samfélagsábyrgð eru lykilorð þar sem menn reyna nú að móta nýja og betri stefnu

Skoðun