Ari Trausti Guðmundsson

Fréttamynd

Hver á sér fegra föðurland...

Um það bil er ég fæddist átti fólk af tveimur þjóðernum sér föðurland (eða móðurland eins og sagt er á sumum tungum) á landsvæði sem Bretar töldu sig umkomna að stýra sem verndarsvæði frá 1922 að telja.

Skoðun
Fréttamynd

Viðbrögð við hlýnun heimilis okkar allra

Við erum, eins og mörg dæmi sanna, hrifin af tækifærum sem færa okkur skyndilega hagsbætur, eða að minnsta kosti fljótlega. Helst miklar á skömmum tíma. Auðvitað er þetta ekkert sérkenni Íslendinga einna en hefur lengi loðað við.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki flókið verkefni

Það þarf ekki að setja forseta Íslands flóknar eða viðamiklar reglur um hvernig hann höndlar utanríkismál Íslands á erlendum vettvangi, þvert ofan í orð Össurar Skarphéðinssonar.

Skoðun
Fréttamynd

Ómöguleikhúsið

Hvert og eitt okkar sem fylgist með stjórnmálum spyr sig fyrr eða síðar hvort lýðveldið virki eins og vera ber. Hvort þingbundna stjórnin sé jafnan skilvirk, heiðarleg, sanngjörn og hliðholl almenningi.

Skoðun
Fréttamynd

Spurt... og svarað?

Ekki veit ég með vissu hvort heppilegt sé að spyrja þriggja meginspurninga nú þegar umræður um aðildar- (eða aðlögunar-) viðræður við Evrópusambandið hafa keyrst fastar í gamalkunnum farvegi. Svör við þessum spurningum (og nokkrum afleiddum) gætu varpað ljósi á hvernig við rekum það sem kallast lýðveldi með þingbundinni stjórn

Skoðun
Fréttamynd

Okkur vantar upplýsingar

Ég verð vonandi seint sakaður um að vera lítill áhugamaður um umhverfis- og náttúruvernd. Þegar kemur að deilunum um veitumannvirki sunnan við Þjórsárver og að lagaumhverfinu, ákvarðanaferlinu og fleiru skyldu, fallast mér þó hendur. Ég átta mig á litlum hluta málefnisins. Mig grunar að þannig fari fyrir flestum.

Skoðun
Fréttamynd

Hverjum eiga þjóðaratkvæðagreiðslur að vera þóknanlegar?

Þjóðaratkvæðagreiðslur bar hátt í umræðunni um nýja stjórnarskrá. Þær geta ýmist verið bindandi eða ráðgefandi, eftir því hvernig lög eða reglur kveða á um. Núna er ekkert slíkt að finna hjá okkur, nema þau ákvæði stjórnarskrár sem lúta að atkvæðagreiðslu vegna synjunar forseta Íslands á samþykki við nýafgreitt lagafrumvarp Alþingis.

Skoðun
Fréttamynd

Orkulindir – enn einu sinni

Óljóst tal, ofmat, rangar upplýsingar og/eða eitthvað annað veldur því að fjölmargir útlendingar halda að Ísland sé nærri ónumið orkubú handa meginlandi Evrópu. Ég ræddi við breska þingmenn fyrir nokkrum vikum sem héldu það, 38 breska landfræðinga skömmu síðar, þýskan fjárfesti og meira að segja íslenskan þingmann. Allir héldu að mikil orka biði umheimsins á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Orkumál: Vantar í umræðuna?

Margar blikur eru á lofti þegar kemur að jákvæðum og neikvæðum þáttum í umræðu um sæstreng til meginlandsins. Í ágætri grein og yfirliti Fréttablaðsins um málefnið og einnig í leiðara 23. október vantar höfuðatriði

Skoðun
Fréttamynd

Ferðaþjónusta á krossgötum

Þegar milljónasti ársgesturinn nálgast í ferðaþjónustunni gerist margt í einu. Þolmörkum er náð á sumum stöðum, umræður um gjaldtöku og höfðatölu (kvóta) magnast og allt í einu hafa fjárfestar augastað á nýjum þjónustu- og gistifyrirtækjum

Skoðun
Fréttamynd

Stóra regnhlífin?

Í langtímastjórnmálum snúast verkefnin um að móta helstu grunnþætti samfélagsins, ýmist ýta þeim í átt að miklum jöfnuði og völdum alþýðu manna eða í hina áttina, sem lengst að úrslitaáhrifum fjármagns og markaðar.

Skoðun
Fréttamynd

Nýja sýn á norðrið

Hlýnun jarðar breytir lífsskilyrðum jarðarbúa afar hratt. Á norðurslóðum eru breytingarnar hraðari en flesta óraði fyrir. Mönnum er tíðrætt um tækifærin sem fylgja en minna heyrist um vandkvæðin.

Skoðun
Fréttamynd

Jarðbundin sýn á orkulindir

Er Ísland ríkt af vatnsorku og jarðvarmaorku? Svarið felur í sér afstætt mat. Norðmenn hafa næstum fullvirkjað sín vatnsföll. Heildaraflið er um 30.000 MW. Afl núverandi íslenskra vatnorkuvera er tæplega 2.000 MW, að meðtalinni Búðarhálsvirkjun.

Skoðun
Fréttamynd

Loftslagsbjörgun fyrir 36 milljarða dollara?

Flestöllum er ljóst að erfitt getur orðið að ná því marki að halda hlýnun loftslagsins innan við 2°C af meðalhita jarðar (undanfarin hækkun er aðeins 0,8°). Fátt hefur gerst sem miðar að verulegum hömlum á losun gróðurhúsagasa og eyðingu skóga. Samkvæmt niðurstöðum sérfræðinga þarf græna raforku, samgöngur með stórlega minni koldíoxíðmengun og orkusparnaðartækni til að ná markinu. Í þýska ritinu Wirtschaftswoche (21.01.13) kemur fram að með því að bæta 36 milljörðum Bandaríkjadollara við þá 96 milljarða Bandaríkjadollara sem ríkistjórnir heims eyða í málaflokkana, næðist í mark í kapphlaupinu um framtíð mannkyns. Þetta eru niðurstöður Green Growth Action Alliance, starfsfélags á vegum Alþjóða efnahagsþingsins (WEF) í Davos. Þar ráða alls konar áhrifamenn og minni spámenn ráðum sínum um þessar mundir. Upphæðin er víst mun lægri en sú sem Bandaríkjastjórn lagði fram vegna tjóns af fellibylnum Sandy í október síðastliðnum. Hvernig má þetta vera?

Skoðun
Fréttamynd

Drættir í heildarmynd óskast

Í stjórnmálum verða menn að sjá heildarmyndir og skoða margvísleg rök –ekki aðeins ræða þau sem henta einu sjónarmiði hverju sinni. Sé það ekki gert vaknar tortryggni og vantraust. Náttúrunytjar eru ein af undirstöðum samfélagsins. Brýnt er að menn læri af fortíðinni í þeim efnum og horfist í augu við framtíðina eins og gerst má sjá hana hverju sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Litla stúlkan með eldspýturnar?

Við Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari höfum mælt stöðu brúnar á Steinsholtsjökli í allmörg ár. Skriðjökullinn gengur norður úr Eyjafjallajökli. Hann hefur hopað og þynnst samfellt á mælitímabilinu og er fulltrúi allra skriðjökla landsins og raunar yfir 90% allra jökla utan Grænlands og Suðurskautslandsins en þeir eru um 300 þúsund. Allur jökulís heims geymir rúm 2% vatnsins á yfirborði jarðar. Hann er afar mikilvægt ferskvatnsforðabúr, einkum í fjalllendi heimsálfanna og á láglendi nærri því. Hin rúm 97% eru saltur sjór.

Skoðun
Fréttamynd

Eldislax frá Síle?

Á unglingsárum mínum var tiltekið yfirbragð yfir gamla hluta Reykjavíkur, t.d. Þingholtunum, sem nú er löngu horfið. Alls konar verslanir og verkstæði gegndu margvíslegum hlutverkum í næstum hverri götu. Þá var drengurinn sendur út í bakarí og ef til vill keypt sandkaka til að hafa með síðdegiskaffinu. Ég man vel hneykslan margra þegar byrjað var að flytja inn danskar sandkökur. Voru þær íslensku ekki nógu góðar

Skoðun
Fréttamynd

Með báðum augum – eða bara öðru?

Til er svolítil saga um gamla vörubílsökumanninn sem var blindur á hægra auga en taldi sig með öruggustu ökumönnum (kannski var hann það, þrátt fyrir allt). Aðspurður um ástæðuna sagði hann að það væri hægri umferð og hann sæi vel til allra sem óku á móti bílnum hans.

Skoðun
Fréttamynd

Auknar kröfur

Á ferðum vegna framboðs til embættis forseta Íslands barst Alþingi oft í tal. Vissulega telja margir ýmislegt athugavert við störf þess og enn fremur að verulega vanti upp á traustið og virðinguna. Helst var fundið að flýtimeðferð sumra stærri mála, málþófi, óvönduðum málflutningi, málafjölda og skorti á frumkvæði eða þekkingu í mikilvægum málum. Flestir töldu það einbert mál þingsins og stjórnmálaflokkanna að hlusta á gagnrýnina, ræða vandann og taka hressilega til á vinnustaðnum. Ástæða þeirrar afstöðu er sú vissa að aðkoma annarra að málinu er í orði en ekki á borði, og gildir einu hvort um er að ræða stjórnmálafræðing, Jón og Gunnu eða forseta Íslands.

Skoðun
Fréttamynd

Forsetinn minn

Sá sem hlýtur um 85.000 atkvæði frá 235.000 kjósendum er löglega kjörinn forseti Íslands, að því gefnu að aðrir hljóti líka atkvæði og um 30% kjósenda greiði ekki atkvæði. Hefur hann þá umboð þjóðarinnar? Já, samkvæmt lýðræði og lögum. En í reynd er það fremur formlegt en raunverulegt því meirihlutinn er allur annar. Í því ljósi er vafasamt að skilgreina sem svo að umboðið sé "umboð þjóðarinnar til halda áfram lýðræðisbyltingu“ sem á að hafa hafist með beitingu málskotsréttar og tilheyrandi þjóðaratkvæðagreiðslum. Einkum ef viðtekin stefna þessarar byltingar er ekki til; aðeins almennur vilji fólks til beinna og skilvirkara lýðræðis.

Skoðun
Fréttamynd

Taflmennska án nægrar íhugunar

Sem forsetaframbjóðandi í þeirri stöðu að vera "númer þrjú“ í alls konar kosningakönnunum, tek ég stundum þátt í umræðu um hvernig (ekki hverja!) beri að kjósa. Tillögur koma fram um að nú beri að draga framboðið til baka og fá fylgisfólk til að kjósa Ólaf Ragnar eða Þóru (allt eftir hvoru viðkomandi er verst við).

Skoðun
Fréttamynd

Meira kjöt á beinin

Nafnabylgjan sem ríður yfir eftir fremur óljós orð forsetans um eigin stöðu og endurkjör í vor á eftir að hjaðna. Eflaust kristallast álitleg framboð úr henni seint í vetur. Líklegast er að 5 til 10 manns reyni söfnun meðmælenda og fjármuna, og skipuleggi snarpa framboðshrinu. Með það í huga verður að telja það galla, að ekki skuli að lokum kosið aftur og þá milli tveggja efstu frambjóðenda.

Skoðun
Fréttamynd

Næsta skref, takk

Mér er sagt að sífellt fleiri meðallaunamenn, og þá einkum þeir eldri, gangi nú á lífeyrissparnað sinn til þess að standa í lánaskilum. Líklega er meirihlutinn ráðdeildarfólk sem alls ekki er unnt að gera samábyrgt hruninu eins og tíska er um þessar mundir.

Skoðun
Fréttamynd

Umhverfið kallar

Árið 2012 ber í sér frekari hækkun sjávarborðs um allan heim. Hún er nú um 3 mm á ári, eða nálægt 10 cm á þriðjungi langrar mannsævi. Það bætir heldur í hækkunina en hitt. Ef íhaldssamar spár ganga eftir og hlýnun veðurfars verður álíka og nú má búast við 50 til 100 cm hækkun í sjó áður en öldin er úti.

Skoðun
Fréttamynd

Jafnvægi í náttúrunni

Veiðinytjar eru eðlilegur þáttur í mannvist á Íslandi. Ég hef stundað fugla- og fiskveiðar og horft á veiðar á sjávar- og landspendýrum. Enda þótt veiðisaga landsins einkennist af athöfnum sem miða að ásættanlegri mataröflun og útivist er þar líka annað að finna; allt frá sorglegum veiðiþjófnaði eða drápum á friðuðum dýrum til athafna sem miða að því að fækka því sem okkur hefur orðið tamt að kalla meindýr eða varg. Þegar kemur að fuglum eða spendýrum er t.d. átt við hrafn, ref og háhyrning. Hugmyndafræðin er þessi: Ef við drepum ekki nógu marga einstaklinga ræna þeir af okkur bráð eða spilla landbúnaði. Einfalt og klárt. Um leið er að mestu litið framhjá þeim flóknu ferlum í náttúrunni sem stjórna því að ein tegund (sem hefur átt sér langtíma þróun í landinu) hvorki útrýmir né knésetur margar aðrar.

Skoðun
Fréttamynd

Allir þessir hinir

Ritstjóri Fréttablaðsins vitnar í Kristin H. Gunnarsson (12.10) sem svo að oft gleymist að þótt allir (!) hafi það heldur verra en fyrir hrun, er ekki nema (!) fimmtungur í verulegum erfiðleikum. Hinir borga af lánum sínum (upphr. ATG). Þetta notar ritstjórinn til þess að lýsa eftir umræðu um lánamál heimila á grunni blákaldra staðreynda. Eina telur hann vera þá að allar lagfæringar á lánum lenda fyrr eða síðar á skattborgurunum. Þetta eru auðvitað mikil tíðindi og bláköld staðreynd sem almenningur hefur ekki vitað. Væri þá, Ólafur og Kristinn, eins með lagfæringar á lánum bólufyrirtækja og nokkur hundruð hrunvalda sem lánastofnanir taka á sig? Almenningur hefur væntanlega ekki heldur skilið að þær lenda fyrr eða síðar á skattborgurunum. Líklega hefur alþýða manna aldrei fattað að almenningur leysir samfélagið að mestu út úr kreppum, með fé sínu og vinnu. Stórmerkilegt.

Skoðun
Fréttamynd

Við og dýrin

Mannleg reisn er sögð koma fram í umgengni við dýr. Mannúð sömuleiðis. Á ferðum sl. vetur sá ég horuð hross híma án skjóls í freðnum úthaga. Veit reyndar að slíkt er undantekning en ekki regla. Ég hef mætt troðfullum flutningabílnum sem aka þarf mörg hundruð kílómetra með sláturfé vegna hagræðingar í þeim geira. Ég hef séð skelfilegar myndir í íslensku sjónvarpi af meðferð sláturdýra í útlöndum. Eitt sinn átti ég orðastað við refaskyttu sem elti dýrin á snjósleða og ók yfir þau. Ekki steypi ég þessu öllu í einn stamp sem einhverri ákæru, heldur vegna þess að dæmin hafa lengi vakið mig til umhugsunar.

Skoðun
Fréttamynd

Burt af hvaða svæði?

Kreppa leggur byrðar á þegnana. Því miður er þeim misskipt. Þorri Íslendinga hefur borið þær af töluverðri reisn. Samtímis sleppa sumir byrðalausir, einhverjir hagnast jafnvel á ástandinu en margir kikna undan öllu saman. Mitt í þessu ástandi standa stjórnvöld í ströngu og telja sig vera að skipta byrðunum og bjarga samfélaginu eða reisa það við. Í sumu hefur tekist að finna nothæfa leið en í öðru ekki. Aðstoð við þá sem eru komnir á hnén er margvísleg en umdeild og tæplega næg.

Skoðun
Fréttamynd

Hugvekja við áramót

Merkileg er slagsíðan á samfélaginu. Og enn merkilegri er hagfræði sérgæskunnar. Ein hjón gambla hátt og hratt og stofna hlutafélag eða

Skoðun
Fréttamynd

Mikilvæg vitneskja um eldvirkni

Eldgos eru algengt umræðuefni um þessar mundir og oft spurt: - Hvar gýs næst? Af nógu er að taka. Eldvirku svæðin á Íslandi ná yfir um fjórðung af flatarmáli landsins.

Skoðun