Akstursíþróttir

Fréttamynd

Hvað er motocross ?

Margir hafa eflaust velt fyrir sér hvað motocross þýðir í raun og veru. Í þessari grein mun ég fara ofan í hvað motocross er í raun og veru og útskýra hvernig keppnir fara fram o.fl.

Sport
Fréttamynd

Stelpur í motocrossi

Það eru aðeins þrjú ár síðan einungis 1-3 stelpur voru í motocrossi. Sportið var stimplað sem strákasport og engum lét sér detta það í hug að ungar stúlkur gætu nokkurn tíman sest upp á mótorfák og brunað í drullupolla o.svf. En þetta er að gerast, yfir 50 stúlkur eru í sportinu eins og stendur og hækkar þessi fjöldi mjög hratt.

Sport
Fréttamynd

Þolakstursmótið á Klaustri komið aftur á dagatalið!

Mikil umræða hefur átt sér stað um hvort þolakstursmótið á Klaustri muni fara fram í ár. Ljóst er að Kjartan Kjartansson, frumkvöðull mótsins, hefur ákveðið að draga sig í hlé frá mótshaldi. Nú hefur Hrafnkell Sigtryggsson, formaður VÍK staðfest að búið er að semja við landeigendur á Klaustri og undirbúningur mótsins að komast aftur á fullt skrið. Það er því ljóst að Klaustur 2007 verður að veruleika.

Sport
Fréttamynd

ThumpStar fær Terra-Moto andlitslyftingu

Pit-Bike smáhjól voru sannarlega æði síðasta árs. Verslunin Nitro reið á vaðið og flutti inn ThumpStar smáhjól í gámavís og ruku þau út eins og heitar lummur, enda ódýr hjólakostur og einfallt að hjóla á þeim. Nú hefur framleiðandinn gefið hjólinu allsherjar uppfærslu, betrumbætt og stílfært. Þessi nýja uppfærsla verður seld undir nafninu Terra-Moto mun eftir sem áður fást hjá Nitro.

Sport
Fréttamynd

Ný stjórn kosin á Aðalfundi VÍK

Á aðalfundi VÍK, sem fram fór í gærkvöldi var kosin ný stjórn. Hrafnkell Sigtryggsson verður áfram formaður en með honum í stjórn munu næsta árið sitja Jóhann Halldórsson, Birgir Már Georgsson, Einar Sverrisson og Sverrir Jónsson.

Sport
Fréttamynd

Stewart og Carmichael prufa nýjan hálskraga.

Þeir James Stewart og Ricky Carmichael hafa áhveðið að leggja sitt að mörkum í bættu öryggi ökumanna í bæði Supercross og Motocrossi með því að prufa nýjan hálskraga frá Leatt Corp.inc.

Sport
Fréttamynd

Skiptir VÍK um nafn á aðalfundi í kvöld?

Aðalfundur Vélhjólaíþróttaklúbbsins (VÍK) verður haldinn í dag, fimmtudaginn 15. febrúar í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg kl. 20.30. Á dagskránni verða hefðbundin aðalfundarstörf s.s. skýrsla stjórnar og kosning stjórnar og nefnda. Fyrir liggur lagabreytingartillaga um að breyta nafni VÍK úr "Vélhjólaíþróttaklúbburinn" í "Vélhjólaíþróttafélagið VÍK" og munu fundarmenn kjósa um tillöguna. Fáist hún samþykkt mun nafni félagsins verða breytt í framhaldinu.

Sport
Fréttamynd

Dean Olsen á leið til Íslands

Hinn þekkti motocross þjálfari hjá MX skóla Gary Semics, Dean Olsen, hefur staðfest komu sína til Íslands nú í sumar. Hann mun þjálfa íslenska motocross ökumenn í allt sumar, alla flokka, og einnig taka þátt í sumum mótum. Þetta er gífurleg lyftistöng fyrir sportið og sennilega hefur jafn þekktur þjálfari á heimsvísu ekki komið áður til Íslands til að þjálfa.

Sport
Fréttamynd

Lites Houston úrslit

Enn og aftur kom sá og sigraði Ryan Villopoto í Houston. Ekkert lát virðist vera á því að Kawasaki/Monster ökumaðurinn Ryan Villopoto hætti að vinna í minni flokknum og virðist enginn geta tekið fram úr undrabarninu.

Sport
Fréttamynd

Fjör á opinni MX æfingu Nitro

Mikið fjör var á opinni MX æfingu Nitro um síðustu helgi. Um 50 manns tóku þátt og áttu frábæran dag. Haukur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Nitro, var hæstánægður með daginn og sagði aðspurður að góð þátttaka og frábær stemning væri hvatning til að halda fleiri slíkar æfingar. Fjöldi fólks hefði óskað eftir fleiri skipulögðum æfingum og stefnir Nitro á að halda fleiri slíkar æfingar í vetur. Þær halda hjólafólki betur saman, draga úr akstri á viðkvæmum svæðum og eru umfram allt stórskemmtilegar.

Sport
Fréttamynd

KTM ísland í Englandi

Nú er að færast ferðahugur í íslenska motocross ökumenn og er KTM Racing team Íslands að halda til Wheeldon farm í suðvestur hluta Englands,en þar er meðal annars að finna innanhús braut sem liðið hefur sótt í undanfarinn ár.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að vera jafngóður og Gylfi íslandsmeistari.

Já hann Gylfi íslandsmeistari er settur í fyrsta sæti ásamt honum Ricky Carmichael, ef marka má hann Unnar Erni Valtýsson sem varð 6 ára um daginn. Unnar bað sérstaklega að Gylfi yrði settur á afmæliskökuna sína og sagðist hann ætla að vera "Krossaramaður" eins og Gylfi þegar hann verður stór.

Sport
Fréttamynd

Safn til minningar um Heiðar

Ákveðið hefur verið að koma á fót vélhjólasafni til heiðurs einum virtasta mótorhjólamanni Íslands, Heidda #10 sem lést í fyrra af slysförum. Það eru vinir hans og bræður sem standa fyrir þessu.

Sport
Fréttamynd

6th TransAtlantic Offroad Challenge aflýst

Tilkynning barst áðan inn á vef "Vélhjólaíþróttaklúbbsins" að það væri búið að aflýsa stærstu og vinsælustu endurokeppni Íslands. Bréfið er svohljóðandi: Bölvanlegt að þurfa að tilkynna þetta. En því miður verður ekki keppt hérna á Klaustri í ár.

Sport
Fréttamynd

Anaheim 3 úrslit.

James Stewart var fljótastur alla helgina og náði hann að landa sínum þriðja sigri í Anaheim í Kalíforníu. Chad Reed lét hann þó vinna fyrir kaupinu sínu og virðist sem hann sé allur að koma til eftir að hafa meiðst á öxl en hann lenti í öðru sæti. Tim Ferry endaði þriðji,30 sekúndum á eftir fyrsta manni.

Sport
Fréttamynd

Opin mótorkross æfing á morgun

Á morgun, laugardaginn 3. febrúar verður Nítró með opna motocross æfingu. Farið verður í allar helstu grunnæfingarnar, t.d. beygjur, stört, þvottabretti, stökk ofl. Æfingarnar eru opnar öllum og það kostar ekkert að taka þátt.

Sport
Fréttamynd

Var eldsneytið ólöglegt ?

Það virðist sem eldsneytið sem Nick Way ásamnt þeim Joshua Hill og Jason Thomas hafi kannski ekki verið ólöglegt. Yamaha heldur því fram að niðurstöður úr rannsóknum sem AMA gerir séu ekki sannfærandi.

Sport
Fréttamynd

Kyle Chisholm í ökla aðgerð

Kawasaki ökumaðurinn Kyle Chisholm undirgekkst aðgerð á hægri ökkla eftir slæma byltu á æfingum fyrir supercrossið í Phoenix. Kyle er nú með stál plötu og átta skrúfur í ökklanum og má hann ekki stíga í fótinn næstu 8 vikurnar.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta umferð í Snocross að hefjast

Nú um helgina hefst fyrsta umferð í Snocrossi á Húsavík. Von er á fjölda keppenda þar sem sportið fer sí stækkandi með hverju árinu sem líður. Alexenader Kárason eða Lexi eins og hann er kallaður af sleðamönnum hefur haldið sportinu vel uppi með virkri heimasíðu og á snocrossið það honum að þakka að sportið er orðið það sem það er í dag

Sport
Fréttamynd

1200 hestafla mótorhjól

Fyrrum ofurtrukkabílstjórinn Nick Argyle hætti nýlega í "monster truck" bransanum og seldi bílinn sinn. Einhverjar leifar voru þó eftir af bílnum hans og þar á meðal vélin. Karlinn tók sig til og smíðaði eitt stykki mótorhjól, 1200 hestöfl.

Sport
Fréttamynd

Tucker Hibbert vinnur í X-Games

Arctic Cat ökumaðurinn og undrið Tucker Hibbert kom sá og sigraði í X-Games á laugardaginn. Liðstjóri og viðgerðamenn hans tóku þó mikla áhættu með bensínið hjá kappanum,því þegar Tucker tók köflótta flaggið varð hann bensínlaus.

Sport
Fréttamynd

Þrír með ólöglegt bensín í Anaheim.

Nick Way ásamnt þeim Joshua Hill og Jason Thomas voru teknir með ólöglegt bensín í þriðju umferð AMA supercross í Anaheim nú á dögunum. Eldsneyti var tekið til athugunar úr níu hjólum og reyndust þessi þrjú hjól vera með eldsneyti sem ekki leyfist AMA supercrossinu. Þeim hefur því verið refsað með því að taka af þeim stigin sem þeir fengu ásamnt því að fá sekt fyrir athæfið.

Sport
Fréttamynd

Supercross í kvöld

Sýnt verður frá supercrosskeppninni sem fram fór í Anaheim síðustu helgi á Sýn í kvöld kl. 21:30. Sýnt verður frá keppninni í mótorhjólaversluninni Nítró á slaginu 21:30.

Sport
Fréttamynd

Asterisk með nýjar spelkur

Hnéspelkuframleiðandinn Asterisk frumsýndi á dögunum 2007 línuna af Asterisk hnéspelkunum. Spelkurnar eru nánast þær sömu og 2006 nema að nýjar festingar og teygjur eru komnar á bakhlið spelknanna.

Sport
Fréttamynd

Anaheim II úrslit

Nú þegar Ricky Carmichael er ekki lengur með í stigabaráttunni í supercrossinu þá er má segja að James Stewart hafi engan til að leika við. Yfirburðir Stewarts eru það miklir að fyrsta sætið er eiginlega upptekið sem eftir er af tímabilinu.

Sport
Fréttamynd

Stefan Everts þjálfar KTM á spáni

Stefan Everts sem hefur lagt krossskóna á hilluna og þjálfar nú Redbull / KTM liðið á spáni. Everts sem er hefur orðið tíu sinnum Evrópumeistari í motocross hefur tekið við sem liðstjóri Redbull / KTM og þjálfar liðið nú stíft í motocross skóla Everts norður af Valencia.

Sport
Fréttamynd

Snjóflóðanámskeið

LÍV-Reykjavík og Motormax standa fyrir verklegu námskeiði í snjóflóðaleit nk. miðvikudagskvöld 24.jan í Bláfjöllum / Framskálanum. Farið verður yfir helstu atriði í noktkun snjóflóðaýla og snjóflóðastanga við leit í snjóflóði. Námskeiðið er öllum opið og er ókeypis. Munið að koma með snjóflóðaýlu, snjóflóðastöng og skóflu. Aukabúnaður verður til staðar á staðnum fyrir þá sem ekki eiga, en eru menn hvattir til að kaupa slíkan búnað.

Sport
Fréttamynd

Kawasaki kemur með 450cc endurohjól

Kawasaki hefur kynnt nýtt enduro hjól sem er væntanlegt til landsins í apríl 2007. Þetta hjól er nánast það sama og Kawasaki kxf450 nema þetta er enduro. Það er ekkert sparað í þessari hönnun og er hjólið glæsilegt í alla staði. Miklar líkur eru á því að hjólið muni fá götuskráningu en það mun skýrast innan tíðar.

Sport
Fréttamynd

Vélhjól reka á fjörur í Englandi

Fólk hefur flykkst á strendur í Branscombe í Englandi í dag og hefur farið þar um ruplandi því sem rekið hefur í land frá flutningaskipinu MSC Napoli, sem strandaði við Englandsstrendur í síðustu viku. Meðal þess sem fólk hefur haft á brott með sér eru BMW-vélhjól.

Sport