Fred framlengir við Fram til 2028 Fred Saraiva hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram í herbúðum félagsins til ársins 2028. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar reyndu Blikar að fá leikmanninn yfir í Kópavoginn. 5.9.2026 20:17
Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Leikur Utrecht og Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni var flautaður af í kvöld eftir að stuðningsmenn heimaliðsins köstuðu flugeldum inn á völlinn. Þeir Stefán Ingi Sigurðarson og Alfons Samstedt voru báðir í byrjunarliði Go Ahead Eagles í leiknum. 5.9.2026 19:21
Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Flensburg vann nokkuð þægilegan sigur á Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en lokatölur voru 38-33 en leikurinn fór fram í Flensburg. 5.9.2026 18:48
Schalke náði í stig gegn Bayern Bayern München varð að sætta sig við eitt stig í heimsókn sinni til nýliða Schalke í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Leiknum lauk með markalausu jafntefli, 0-0. 5.9.2026 18:43
Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Aston Villa er enn án sigurs og marka í ensku úrvalsdeildinni eftir markalaust jafntefli gegn nýliðum Hull City á MKM vellinum í dag. 5.9.2026 18:38
Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Nýliðar Selfoss unnu ótrúlegan sigur á Íslandsmeisturum Vals 25-21 á Hlíðarenda í dag. Staðan í hálfleik var 14-7 fyrir Selfoss sem fékk sæti í Olís-deild kvenna eftir að Víkingur dróg lið sitt úr deildinni. 5.9.2026 17:53
Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Framarar unnu fínan sigur á Þór í fyrsta leik liðanna á tímabilinu í Olís-deild karla. 5.9.2026 17:36
Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði mjög illa í leik KR og Víkinga á Meistaravöllum í vikunni. Um var að ræða mjög ljótt opið beinbrot. Bein Sveins stóð einfaldlega út úr upphandleggnum á honum og því fylgdi töluverð blæðing. Sveinn gekkst undir aðgerð á miðvikudaginn og verður töluvert frá keppni vegna meiðslanna. Við hittum Svein í Víkinni. 5.9.2026 09:02
Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Refsinguna fær hann eftir að skipta þurfti um vélarbúnað í bíl hans fyrir komandi keppnishelgi á Monza. 4.9.2026 17:16
Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, hefur gefið út nýjar leikreglur sem taka gildi nú í haust. 3.9.2026 21:33