Albert fær liðsfélaga frá Leeds Albert Guðmundsson er að fá nýjan liðsfélaga hjá ítalska knattspyrnufélaginu Fiorentina en það er enski kantmaðurinn Jack Harrison sem kemur að láni frá Leeds. 16.1.2026 10:48
Guðrún klæðist grænu á nýjan leik Íslenska landsliðskonan Guðrún Arnardóttir hefur fundið sér nýtt félag, eftir skamma dvöl í Portúgal, og snýr nú aftur í toppbaráttu sænsku úrvalsdeildarinnar til félags með íslenskan yfirmann íþróttamála. 15.1.2026 16:33
KR í samstarf við akademíu í Gana Tveir knattspyrnumenn eru væntanlegir til KR á næstu dögum úr Field Masters Academy, knattspyrnuakademíu í Accra í Gana. Koma þeirra er hluti af nýju samstarfi KR við akademíuna. 15.1.2026 15:49
Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Körfuknattleikssamband Íslands fær meira en hálfa milljón króna vegna sekta sem aga- og úrskurðarnefnd sambandsins hefur nú tilkynnt um að hafi verið útdeilt. Hæstu sektina fá Grindvíkingar og þjálfari Sindra á Hornafirði hefur verið sektaður um samtals 90.000 krónur. 15.1.2026 14:30
Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Arsenal vann 3-2 á útivelli gegn Chelsea og fer því með eins marks forystu í seinni leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins. Viktor Gyökeres skoraði og lagði upp fyrir Skytturnar en Alejandro Garnacho skoraði tvennu fyrir Chelsea. 14.1.2026 22:00
Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Nýliðarnir í Bestu deild kvenna í fótbolta, sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur, hafa tryggt sér „frábæran varnarmann“ fyrir átökin í sumar. 14.1.2026 17:32
Blikar farnir að fylla í skörðin Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur komist að samkomulagi við bandaríska miðjumanninn Katelyn Duong, um að hún leiki með liðinu á komandi leiktíð. Meistararnir hafa misst stóran hóp sterkra leikmanna. 14.1.2026 16:44
María í eitt besta lið Svíþjóðar en tekur íslenska landsliðið fram yfir það sænska Hin 22 ára gamla, akureyska fótboltakona María Ólafsdóttir Gros, sem valin var í A-landsliðshópinn fyrir síðustu leiki, var í dag kynnt sem leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Djurgården. 14.1.2026 15:46
Sigvaldi ekki hafnað launalækkun Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson segir það eflaust verða skrýtið að fylgjast með komandi stórmóti í handbolta í sjónvarpinu. Hann er nú að skoða sín mál hjá norska félaginu Kolstad sem neyðist til að lækka laun hans og fleiri leikmanna. 14.1.2026 12:08
Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Ola Lindgren, fyrrverandi þjálfari og lykilleikmaður sænska landsliðsins í handbolta, hefur gríðarlega trú á íslenska landsliðinu fyrir komandi Evrópumót. 14.1.2026 11:02