Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. 23.2.2026 16:45
Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands segist hafa rætt í tvígang við Andrew fyrrverandi Bretaprins í Davos í Sviss árið 2010. Í bæði skiptin hafi hann rætt við hann um hagsmuni Íslands og sjónarmið í Icesave deilunni og í bæði skiptin innan um annað fólk. Hann segir samskiptunum ítarlega lýst í bóki sinni, Þjóðin og valdið sem kom út árið 2024. 20.2.2026 13:42
Tveir starfsmenn á heilsugæslu með berklasmit Tveir starfsmenn einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) greindust með berklasmit við skimun á starfsfólki stöðvarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu. 20.2.2026 11:05
Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Bestu íslensku vörumerkin 2025 voru heiðruð í Hörpu í gær fyrir fullum sal þar sem þrjátíu tilnefnd vörumerki fögnuðu sterkri stöðu sinni í íslensku atvinnulífi. Meðal vörumerkja sem voru valin voru vörumerki Ölgerðarinnar og 66°N. 20.2.2026 10:11
Þeim fjölgar sem skilja Mikill meirihluti fólks sem giftir sig skilur á einhverjum tímapunkti, í hið minnsta í Bandaríkjunum. Klínískur félagsráðgjafi segir vísbendingar um að staðan sé svipuð á Íslandi og segir fólk fara of geyst af stað í sambönd. 19.2.2026 20:03
Rósa Björk býður sig fram í formann VG Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formann VG. Landsfundur flokksins fer fram í byrjun mars en Svandís Svavarsdóttir núverandi formaður hyggst ekki gefa kost á sér áfram. 19.2.2026 14:46
Árekstur á Sprengisandi Árekstur varð á Sprengisandi í Reykjavík á öðrum tímanum í dag þegar strætisvagn og fólksbíll skullu saman. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. 19.2.2026 13:39
Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Lögmaður vistmanna sem dvöldu á barnaheimilinu við Hjalteyri á áttunda áratugnum hefur gert kröfu um bætur fyrir tjón og miska af völdum rekstraraðila barnaheimilisins á hendur íslenska ríkinu og send forsætisráðherra til meðferðar og lúkninga. Vinnsla málsins hafi strandað í forsætisráðuneytinu í tíð Katrínar Jakobsdóttur. 19.2.2026 13:31
Andrew handtekinn á heimili sínu Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall. 19.2.2026 10:08
Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda. 19.2.2026 06:45