Blöskrar að ekki hafi verið leitað til heimafólks Rekstrarstjóri hljóðkerfa- og ljósaleigu á Akureyri segir óeðlilegt að tæki og tól sem notuð voru á árshátíð Landsvirkjunar hafi verið keyrð austur frá Reykjavík í stað þess að þau væru leigð af aðilum á Norðurlandi. Hann segir Þóru Arnórsdóttir fara með rangt mál þegar hún fullyrði að ferðin skili nærsamfélaginu tugum milljóna. 16.4.2024 15:27
„Stundum þarf enga bévítans heimild“ Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid veittu verðlaun í flokknum Heimildamynd ársins á Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Guðni notaði tækifærið og impraði á mikilvægi þess að geta heimilda og að hafa eitthvað fyrir sér. Eliza sagði hann yfirleitt skemmtilegri en þetta á laugardagskvöldum. 14.4.2024 14:28
Loka Bláa lóninu vegna gasmengunar Vegna mengunar frá eldgosinu í Sundnhjúkagígaröðinni á Reykjanesskaga þurfti að loka öllum starfsstöðvum Bláa lónsins í morgun. Opnað verður aftur klukkan 14. 14.4.2024 11:15
Ísland fordæmir árásina Ísland fordæmir árás Írana á Ísrael. Þetta kemur fram í færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í færslu á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í Ísrael að láta vita af sér. 14.4.2024 09:25
Bankasýslan, búvörulög og ríkisstjórnarsamstarfið Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. 14.4.2024 09:01
Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut alls níu Eddur þegar á verðlaunafhending á vegum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían fór fram við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Myndin hlaut meðal annars verðlaun fyrir leikstjórn, handrit, leikara og leikkonu í aðalhlutverki, auk þess að hreppa eftirsótta titilinn kvikmynd ársins. 14.4.2024 08:09
Rændu bifreið vopnaðir skotvopni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um rán á bifreið í gærkvöldi. Ökumaður bílsins sagði sér hafa verið ógnað með skotvopni. Fjórir voru handteknir í heimahúsi síðar um kvöldið, grunaðir um aðild að málinu. 14.4.2024 07:37
Neyðarfundur hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna árásar Íran á Ísrael. Fundurinn fer fram síðdegis. Þá mun þjóðstjórn í ríkisstjórn Netanjahús funda með morgninum. 14.4.2024 07:21
Aðsóknarmet slegið í Listaháskólanum Tvöfalt fleiri fleiri sóttu um nám í Listaháskóla Íslands í ár heldur en í fyrra. Skammt er síðan tilkynnt var að skólagjöld yrðu felld niður frá og með haustönn ársins 2024. Rektor hefur ekki áhyggjur af auknu brottfalli nemenda og fagnar aukinni aðsókn. Hún býst við enn frekari aðsókn á næsta ári. 13.4.2024 14:17
„Minn tími er ekki búinn“ Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, segist sannarlega hafa fengið sinn skerf af skoðunum frá sjálfskipuðum sérfræðingum. Hann reyni að láta þær ekki trufla sig og í mörg ár hafi rödd innra með honum sagt að „hans tími væri ekki búinn.“ Þó sé mikilvægt að svara fyrir sig á málefnalegum nótum en ekki með sleggjudómum eða netárásum. 13.4.2024 12:30