Þekktasta rödd pílukastsins leggur míkrafóninn á hilluna Russ Bray, dómari og líklega þekktasta rödd pílukastsögunnar, ætlar sér að leggja míkrafóninn á hilluna eftir heimsmeistaramótið í pílukasti sem hefst í næsta mánuði. 24.11.2023 23:30
FIFA rannsakar óeirðirnar fyrir viðureign Brasilíu og Argentínu Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur hafið rannsókn á þeim atburðum sem áttu sér stað uppi í stúku og urðu til þess að viðureign Brasilíu og Argentínu seinkaði á aðfaranótt miðvikudags. 24.11.2023 22:30
Frönsku meistararnir styrktu stöðu sína á toppnum Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain unnu góðan 5-2 sigur er liðið tóka á móti Monaco í topplsag frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 24.11.2023 22:10
Átjánda mark Kane skaut Bayern á toppinn Harry Kane skoraði eina mark leiksins er Bayern München vann nauma 1-0 útisigur gegn botnliði Köln í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 24.11.2023 21:28
Viktor Gísli fór á kostum í öruggum sigri Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti virkilega góðan leik fyrir Nantes er liðið vann öruggan 14 marka sigur gegn Saran í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 38-24. 24.11.2023 21:02
Hildur og María komu að fjórum mörkum í risasigri Íslensku knattspyrnukonurnar Hildur Antonsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros léku stórt hlutverk fyrir Fortuna Sittard er liðið vann sannkallaðan risasigur gegn Telstar í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld, 7-1. 24.11.2023 20:50
Ronaldo skoraði tvö er Al-Nassr vann áttunda leikinn í röð Cristiano Ronaldo heldur áfram að skora fyrir Al-Nassr í Sádi-Arabíu, en portúgalska stórstjarnan skoraði tvö mörk í 3-0 sigri liðsins gegn Al-Akhdoud í kvöld. 24.11.2023 20:05
Sex íslensk mörk er Melsungen tyllti sér á toppinn Elvar Örn Jónsson, Arnar Freyr Arnarsson og félagar þeirra í MT Melsungen tylltu sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta er liðið vann góðan þriggja marka sigur gegn Eienach í kvöld, 27-24. 24.11.2023 19:46
Guðmundur bjargaði stigi á Krít Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson skoraði eina löglega mark OFI Crete er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Volos í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 24.11.2023 19:17
Mosfellingar þremur mörkum undir fyrir seinni leikinn Bikarmeistarar Aftureldingar máttu þola þriggja marka tap er liðið mætti slóvakíska liðinu Tatran Presov í fyrri leik liðanna í Evrópubikarnum í handbolta í kvöld, 24-27. 24.11.2023 18:52