Viðskiptavinum brá í brún við óvænta rukkun í heimabanka Margir viðskiptavinir Orkunnar lentu í því nýlega að fá afturvirkan reikning frá Orkunni. Málið tengist vanda í samskiptum tölvukerfa Orkunnar og Salt pay. Samkvæmt heimildum fréttastofu hleypur heildarupphæðin vegna málsins á hundruðum milljóna króna. 12.8.2021 15:59
Sigurður Guðmundsson gefur listaverk að verðmæti 125 milljóna króna Ars longa, nýstofnuðu alþjóðlegu samtímalistasafni staðsettu á Djúpavogi, hefur borist listaverkagjöf tuttugu og sjö listaverka eftir myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson. Öll verkin má finna á sýningu Sigurðar, Alheimurinn er ljóð, sem opnuð var í Bræðslunni á Djúpavogi 10. júlí og stendur til 15. ágúst næstkomandi. Sýningin er sú síðasta sem haldin er í Bræðslunni eftir átta ára samfellt sýningarhald. 12.8.2021 14:50
Skeljungur setur fjölda fasteigna á sölu Skeljungur hf. hefur hafið söluferli á stórum hluta fasteignasafns síns. Um er að ræða flestar bensínstöðvar félagsins á stórhöfuðborgarsvæðinu. 12.8.2021 14:13
Þórólfur, Víðir og Páll fóru yfir stöðu mála á 189. upplýsingafundinum Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar í dag klukkan 11. 12.8.2021 10:30
Tók á að lesa skýrslu um loftslagsbreytingar Samtök ungra umhverfissinna stóðu fyrir loftslagsmótmælum á Austurvelli í dag í tilefni nýrrar skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Formaður samtakanna segir að sér hafi brugðið þegar hún las skýrsluna. 9.8.2021 23:00
Leituðu við Ölfusá vegna bakpoka sem fannst við ána Vegfarandi fann bakpoka við Ölfusá, rétt ofan við Ölfusárbrú og skilaði honum inn til Lögreglunnar á Suðurlandi. Bakpokinn var þá búinn að liggja á árbakkanum í yfir klukkustund að sögn tilkynnanda. Mikið af útivistarbúnaði var í bakpokanum en ekkert sem gaf vísbendingar um hver væri eigandi hans. Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. 9.8.2021 22:19
Furðar sig á því að hafa ekki þurft að sýna rándýrt vottorð á landamærunum Ómar Úlfur Eyþórsson, útvarpsmaður á X-977, borgaði 34 þúsund krónur fyrir hraðpróf á Gardermoen, flugvellinum í Osló, þar sem hann taldi sig munu þurfa að framvísa vottorði um neikvæða niðurstöðu Covid-19 sýnatöku. Þegar á hólminn var komið reyndust útgjöldin óþarfi. 9.8.2021 20:59
Segja aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar boða grundvallarbreytingar til hins verra Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, lýsa stuðningi við markmið stjórnvalda að styðja við Landspítalann í því ástandi sem þar er uppi vegna faraldurs Covid-19. Hins vegar segja samtökin að hluti aðgerðanna feli í sér grundvallarbreytingar til hins verra á getu hjúkrunarheimila landsins til að tryggja öryggi og heilsu íbúa sinna. 9.8.2021 18:18
Þyrlan sótti slasaðan ferðamann á gossvæðið Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli á þriðja tímanum í dag vegna slasaðs ferðamanns. Erlend kona hafði hrasað í miklum halla en þyrla Landhelgisgæslunnar var í næsta nágrenni við æfingar ásamt varðskipinu Þór. 9.8.2021 17:35
Bólusetja aftur í Laugardalshöll Til stendur að bólusetja börn á aldrinum tólf til fimmtán ára seinna í mánuðinum og þegar hafa endurbólusetningar þeirra sem fengu bóluefni Jansen hafist. Til að bólusetja svo marga á skömmum tíma mun Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins nýta Laugardalshöll á ný. 8.8.2021 17:02