Veður

Veður


Fréttamynd

Hlýindatímabili lokið í bili

Hlýindatímabilið er búið í bili og hitatölur eru aftur farnar að nálgast meðallag. Hiti var yfir meðallagi á Íslandi 31 mánuð í röð og árið 2003 var eitt hlýjasta ár sem mælst hefur hér á landi síðan um 1940.

Innlent
Fréttamynd

Nýjar veðurspár birtar strax

Breytingar á útgáfutíma veður­spáa hjá Veðurstofu Íslands taka gildi í dag. "Breytingar eru gerðar til að laga gerð og miðlun veðurspáa að þeim tímum sem nýjustu tölvu­reikn­aðar veður­spár eru til­bún­ar," segir á vef stofn­unar­inn­ar. Nýjar spár eru birtar strax á vef Veður­stof­unn­ar, www.vedur.is, á texta­varpi Ríkisútvarps­ins og í sím­svara Veður­stof­unnar (902-0600).

Innlent
Fréttamynd

Fólksbíll valt

Fólksbíll fór út af Ólafsfjarðarvegi við Ársskógsskóla um tvö-leytið í dag. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í krapi og bíllinn fór út af og valt á hliðina. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Bíllinn er nánast óskemmdur.

Innlent
Fréttamynd

Sendibíll valt í Vatnsskarði

Óhapp varð í Vatnsskarði í kvöld þegar sendibíll með fimm farþegum valt út af. Engin slys urðu á fólki. Björgunarsveitir aðstoðuðu við að ná bílnum upp á veginn aftur og hélt hann svo för sinni áfram.

Innlent
Fréttamynd

Slys í Skorholtsbrekku

Slys varð í Skorholtsbrekkunni í Borgarfirðinum í gær þegar dráttarbíll með gámavagn rann út af í vindhviðu og valt ofan á fólksbíl sem hafði fokið út af nokkru áður. Þetta gerðist upp úr sex í gærkvöld. Umferðin stöðvaðist á þessum stað en bílum var beint niður Melasveitaveginn. Veður var vont fram eftir kvöldi í gær.

Innlent
Fréttamynd

Kaldasti september í 23 ár

Nýliðinn septembermánuður var sá kaldasti um land allt í 23 ár, samkvæmt mælingum Veðurstofunnar. Frost mældist 3,4 gráður í Reykjavík sunnudaginn 25. september og hefur ekki mælst jafn mikið í rúm 30 ár.

Innlent
Fréttamynd

Kaldasti september síðan 1982

Frost mældist 3,4 gráður í Reykjavík sunnudaginn 25. september og þarf að fara rúm þrjátíu ár aftur í tímann til að finna dæmi um slíkan kulda í höfuðborginni í september. Mánuðurinn var kaldur um land allt og hefur ekki verið kaldara í september um land allt síðan árið 1982.

Innlent
Fréttamynd

Óveður í aðsigi

Veðurstofa Íslands spáir í dag stormi á Norðvestanverðu landinu, á Suðausturströndinni og á hálendinu. Reiknað er með að vindhraðinn geti farið allt upp í 23 metra á sekúndu.

Innlent
Fréttamynd

Vegurinn um Víkurskarð lokaður

Bílar hafa verið að festast á veginum um Víkurskarð í dag og vill lögreglan á Akureyri koma því á framfæri að veginum hefur verið lokað vegna færðarinnar en verður hugsanlega opnaður síðar í dag. Veghefill er á leiðinni þangað til að ryðja veginn.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstir til að festa sig í snjó

Lögreglan á Húsavík þurfti að koma ökumönnum og farþegum tveggja bíla til aðstoðar eftir að þeir festu bíla sína í snjó á Dettifossvegi. Vegurinn er einna helst fær jeppum en báðir bílarnir sem festust eru fólksbílar. Þetta er í fyrsta skipti í haust sem lögreglumenn á Húsavík þurfa að hjálpa þeim sem festa sig í snjó.

Innlent
Fréttamynd

Fjallvegir ruddir í morgun

Vegagerðarmenn þurftu að dusta rykið óvenju snemma af snjóruðningstækjum sínum í haust og ruddu þeir snjó af nokkrum fjallvegum í morgun. Meðal annars þurfti að ryðja Hrafnseyrarheiði og Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Næturfrost dregur úr sprettu

Veðurstofa Íslands segir frostanætur hafa verið alltíðar það sem af er maímánuði, en gróður vex hægar af þeim sökum. "Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt," segir í tilkynningu Veðurstofunar.

Innlent
Fréttamynd

Frostnætur tíðar í maí

Það sem af er þessum maímánuði hafa frostnætur verið alltíðar. Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt í mánuðinum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Í Reykjavík hefur næturfrost einnig verið oftar en venja er til eða átta sinnum líkt og á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Skjálftahrina gengin niður

Jarðskjálftahrinan sem hófst á Reykjaneshrygg er að mestu gengin niður þótt þar finnist enn stöku skjálfti, að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur, deildarstjóra eftirlitsdeildar Veðurstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Varað við snjóflóðum

Varað hefur verið við snjóflóðahættu á ákveðnum gönguleiðum í Hvannadalshnjúk. Lögreglu á Höfn í Hornafirði barst ábending í gær um mögulega hættu og að höfðu samráði við þjóðgarðsvörð í Skaftafelli og Veðurstofuna var gefin út viðvörun sem gildir fram yfir helgi.

Innlent
Fréttamynd

Hiti yfir meðallagi

Hiti var vel yfir meðallagi síðari hluta apríl, að tveimur síðustu dögunum undanskildum, samkvæmt samantekt Trausta Jónssonar veðurfræðings.

Innlent
Fréttamynd

Afstaðinn vetur fór öfga á milli

Snjóflóð, hafís, metkuldi og óvenju mikil hlýindi eru meðal þess sem Vetur konungur bauð upp á. Hálendisvegir verða líklega opnaðir fyrr en venjulega.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Hálka á Holtavörðuheiði

Snjóþekja er víða á Suður- og Vesturlandi. Hálka er á Holtavörðuheiði og ófært er á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði. Snjóþekja og éljagangur eru víða á Norðausturlandi og snjóþekja og snjókoma á Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Síðbúið páskahret

Mikil snjókoma helltist yfir landsmenn í gær og kom mörgum í opna skjöldu. Veðurstofan hafði þó spáð fyrir um snjókomuna en samkvæmt upplýsingum hennar hefur þó ekki snjóað að ráði síðan um miðjan febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Milt og hlýtt um páskana

Ekkert páskahret er í kortum veðurfræðinga yfir páskana en gert er ráð fyrir mildu og tiltölulega góðu veðri á landinu öllu fram á þriðjudag.

Innlent
Fréttamynd

Gæti lokað Grímsey af

Hafísinn fyrir norðan land er á hægri ferð vestur á bóginn og gera veðurfræðingar ráð fyrir að siglingaleiðin fyrir Horn verði áfram lokuð næstu daga. Íslaust er orðið að heita fyrir austan landið en samfelld ísbreiða nálgast Grímsey og gæti lokað eyjuna af breytist haf- og vindáttir ekki næstu daga.

Innlent
Fréttamynd

Hafís nær landi á Ströndum

Hafísinn þokast enn nær landinu og hefur náð landi á Ströndum. Siglingaleiðir í Húnaflóa og þar fyrir norðan gætu lokast. Olíuflutningaskip er innlyksa og bíður átekta í Eyjafirði.

Innlent
Fréttamynd

Áfram kalt

Áfram verður kalt í veðri í dag og á morgun en heldur á að draga úr frostinu upp úr miðri viku. Áttin verður norðlæg í dag og vindhraðinn 10-15 metrar á sekúndu og jafnvel meiri austast á landinu.

Innlent
Fréttamynd

Hafísinn hamlaði skipaumferð

"Við máttum prísa okkur sæla að vera ekki mikið seinna á ferð enda var flóinn við það að lokast," sagði Stefán Sigurðsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Árbaki, en hann lenti í hrakningum vegna hafíss í Húnaflóa í gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Siglingar varasamar fyrir norðan

"Öll siglingaleiðin frá Ísafjarðardjúpi að Bakkaflóa í austri er varasöm vegna hafíss og miklar líkur á að bæti í næstu dagana," segir Þór Jakobsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Hafís rekur hratt til lands

"Ég hef búið hér alla mína ævi og man ekki eftir jafnmiklum hafís og nú er hér í kring," segir Hulda Signý Gylfadóttir, leiðbeinandi að Sólbrekku í Grímsey. Mikinn hafís hefur rekið að landi fyrir vestan og norðan síðustu daga og gera veðurspár ráð fyrir áframhaldandi sterkum norðanáttum næstu daga.

Innlent
Fréttamynd

Miklar vetrarhörkur í Evrópu

Miklar vetrarhörkur ríkja víðast hvar á meginlandi Evrópu. Snjóalög í Hollandi eru víða upp undir 50 sentímetra þykk og í mörgum stórborgum Norður-Ítalíu er fólki ráðlagt að vera ekki á ferðinni að tilefnislausu

Erlent
Fréttamynd

Febrúar var óvenju snjóléttur

"Óvenju snjólétt var á landinu og sérstaklega um norðanvert landið," segir Trausti Jónsson veðurfræðingur um veður í febrúar. Hann nefnir sem dæmi um þetta að aðeins hafi orðið alhvítt á Akureyri þrjá daga í mánuðinum og snjódýpt mest mælst fimm sentimetrar.

Innlent
Fréttamynd

Flug liggur enn niðri

Annan daginn í röð liggur þykk þoka yfir höfuðborginni og truflar m.a. innanlandsflug. Vélar hafa lent í Keflavík í allan en reynt verður að lenda í Reykjavík núna á næstunni. Farþegar hafa verið ferjaðir frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkur með rútum og verður því að líkindum haldið áfram þangað til léttir til.

Innlent