Veður

Veður


Fréttamynd

Sjötti snjólétti veturinn í röð

Veðrið á árinu sem er að líða hefur almennt verið gott. Hlýtt var um land allt og ekkert lát virðist á þeim hlýindum sem hófust fyrir tíu árum. Í Reykjavík var hiti 1,1 stigi ofan meðallags og á Akureyri 1,3 stigi ofan meðallags.

Innlent
Fréttamynd

Jólaveðrið verður með ágætum

Ágætlega horfir með veður nú um jólahátíðina. Vindur gengur smám saman niður á landinu í dag og þegar jólaklukkur boða hátíð í bæ ætti víðast hvar að vera komið prýðilegasta veður. Einna síst verður veðrið allra austast á landinu þar sem vindstrengur lónir við ströndina en er í rénun og ætti vindur að vera gengin niður þar í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Ofsaveður og sumstaðar fárviðri

Afar slæmt veðurútlit er fyrir Vesturland og Vestfirði í nótt og norðanvert landið fyrir hádegi á morgun, gangi spár eftir. Eru horfur á að vindhviður á þessu svæðum geti farið um og yfir 50 m/s og að jafnaðarvindhraði verði á bilinu 23-33 m/s á þegar veðrið verður verst.

Innlent
Fréttamynd

Slæmt færi víða um land

Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir. Óveður er á Holtavörðuheiði, Kolgrafafirði og í Staðarsveit. Snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði er þæfingur og stórhríð, hálka er á vegum í Strandasýslu.

Innlent
Fréttamynd

Áfram vonskuveður víða um land

Áfram er búist við stormi víða á landinu í kvöld og fram eftir nóttu. "Já veðurspáin er slæm. Það má búast við mikilli ofankomu á Norður og Austurlandi í kvöld og nótt samfara sterkum vindi eða 15-23 m/s" segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Veðurstofu NFS.

Innlent
Fréttamynd

Horfur á vonskuveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi í allan dag

Veðurstofa NFS spáir áframhaldandi vonskuveðri á Vestfjörðum og á Norðurlandi í nær allan dag. "Það er mjög hvasst á þessum slóðum, í kringum 20 m/s, þó vindur sé heldur hægari sumstaðar inni á fjörðum. Einnig gengur á með snjókomu og éljum í allan dag og akstursskilyrði því afleit," segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur.

Innlent
Fréttamynd

Mikil ófærð á vegum

Þæfingur og óveður er á Öxnadalsheiði og þar er ekkert ferðarveður. Búið er að opna Óshlíð en fólki er bent á að vera ekki á ferðinni að ástæðalausu.

Innlent
Fréttamynd

Ófærð á Öxnadalsheiði

Lögreglan á Akureyri var kölluð upp á Öxnadalsheiðina undir kvöld vegna vöruflutningabifreiðar sem að lenti í vandræðum upp á Bakkaselsbrekku vegna vonskuveðurs.

Innlent
Fréttamynd

Björgunarsveitir á suðvesturhorninu í viðbragðsstöðu

Björgunarsveitir í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins sem á að ganga yfir suðvesturhluta landsins í nótt og í fyrramálið. Bílar frá þeim keyra sem stendur um hverfi og aðstoða fólk við að tryggja lausa hluti. Eitthvað er um að þau hafi líka fest niður hluti á byggingarsvæðum, svo sem stillasa.

Innlent
Fréttamynd

Björgunarsveitir í viðbragsstöðu

Björgunarsveitir á suðvesturlandi eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins sem á að ganga yfir í nótt. Veður er þegar byrjað að versna og hefur Lögreglan í Reykjavík kallað út svæðisstjóra til þess að undibúa nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Fólk beðið að tryggja lausahluti

Björgunarsveitin Ársæll, sem starfar á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, og Lögreglan í Reykjavík vilja koma því á framfæri við fólk að binda niður garðhúsgögn, trampólín og allt annað lauslegt sem gæti tekist á loft í veðrinu sem á að ganga yfir í fyrramálið. Minnt er á fólk þarf að borga fyrir þær skemmdir sem hljótast af eigum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Vegir opna á ný

Lögreglan á Egilsstöðum hefur opnað alla vegi, sem voru lokaðir fyrr í dag, á ný. Veður hefur gengið niður en er þó enn það slæmt að ekki er mælt með að fólk sé á ferli að óþörfu.

Innlent
Fréttamynd

Veðrið setti strik í reikning Samfylkingarinnar

Talning á atkvæðum úr prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi hefst klukkan tvö á morgun þar sem öll kjörgögn skiluðu sér ekki í hús í kvöld vegna veðurs. Kjörgögnin sem um ræðir eru atkvæði úr prófkjöri flokksins í Vestmannaeyjum.

Innlent
Fréttamynd

Veður á Austurlandi versnar enn

Lögreglan á Egilsstöðum skýrði frá því í dag að vegurinn á Möðrudalsöræfum væri lokaður vegna veðurs, sem og leiðin frá Egilsstöðum til Mývatns. Veginum á Sandvíkurheiði, sem liggur milli Vopnafjarðar og Bakkafjarðar, hefur einnig verið lokað.

Innlent
Fréttamynd

Tvö skip slitnuðu frá bryggju í Hafnafjarðarhöfn

Rúmlega tvöhundruð tonna bátur og skuttogari slitnuðu frá bryggju í Hafnarfirði í morgun og rak út á höfnina. Ekki er talið að miklar skemmdir hafi orðið á skipunum en hafsögumönnum og björgunarsveitarmönnum tókst að draga minna skipið af strandstað á ellefta tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Veðurfréttir: Athuga á með millilandaflug á hádegi

Ekkert hefur verði flogið á Keflavíkurflugvöll í morgun vegna veðurhamsins og var öllum vélum vísað til Glasgow þar sem þær bíða að veður skáni. Slíkt hefur ekki gerst í fjögur ár, að öllum flugvélum hafi verið beint framhjá landinu. Innanlandsflug liggur allt niðri sem stendur en áætlað er að athuga með flug til og frá Reykjavík klukkan tvö í dag.

Innlent
Fréttamynd

Búist við ofsaveðri í nótt og á morgun

Afar slæmar veðurhorfur eru fyrir komandi nótt og framan af degi á morgun. Um er að ræða mjög djúpa og krappa lægð sem verður um 960 mbör (hPa) þegar hún gengur yfir Vestfirði í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Hæg vestlæg átt á landinu öllu í dag

Það verður fremur hæg vestlæg átt á landinu öllu í dag, eitthvað sést til sólar víðast hvar á landinu og um að gera að fara að njóta sólskinsins núna því helgin verður líkast til vætusöm. Í dag verður hitinn á bilinu þrjú til níu stig en það stefnir allt í tveggja stafa hitatölur um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Hiti yfir meðallagi fimmta mánuðinn í röð

Meðalhiti í Reykjavík í mars mánuði var tæplega eitt stig, sem er tæpu hálfu stigi yfir meðallagi, samkvæmt samantekt Veðurstofunnar og var mars fimmti mánuðurinn í röð, sem hitinn var yfir meðallagi. Óvenju skörp veðraskil voru í mánuðinum, þar skiptust á kuldakaflar og óvenju hlýr hlákukafli, Í heild var mánuðurinn þurrviðrasamur.

Innlent
Fréttamynd

Ófært á Norðurlandi

Veðurstofan tilkynninr að greiðfært sé um Suður- og Vesturland en éljagangur er á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er búið að moka Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði, Klettsháls og Steingrímsfjarðarheiði en þar er hálkublettir og skafrenningur.

Innlent
Fréttamynd

Mikil ófærð víða um land

Ekkert flug hefur verið frá Reykjavík til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna óveðurs á þeim stöðum, en veðurskilyrði verða könnuð nánar nú á tólfta tímanum. Skólahaldi hefur verið aflýst í nokkrum skólum á Norðvesturlandi vegna ófæðrar og óveðurs og helstu fjallvegir á Vestfjörðum eru ófærir vegna snjóa.

Innlent
Fréttamynd

Víða ófært

Óveður er á Hellisheiði og á Kjalarnesi en sjólaust. Svipaða sögu er að segja af Vesturlandi en á Vestfjörðum er ófært um Klettsháls, Eyrarfjall og Steingrímsfjarðarheiði. Stórhríð er á Norðvesturlandi og ekkert ferðaveður, ófært á milli Blönduóss og Skagastrandar, á þverárfjalli og á milli Hofsóss og Siglufjarðar. Hálka er víða á Austurlandi , þæfingsfærð á Vopnafjarðarheiði og ófært um Öxi.

Innlent
Fréttamynd

Steingrímsfjarðarheiði ófær

Ófært er um Klettsháls, Eyrarfjall og á Steingrímsfjarðarheiði einnig er óveður í Langadal og ófært um Lágheiði. Hálka er víða á Austurlandi og þæfingur á Öxi. Óveður og ekkert ferðaveður er á leiðinni milli Djúpavogs og Víkur í Mýrdal og víða er hálka og éljagangur á Norðausturlandi.

Innlent