
Fjölmiðlar svekktir yfir því að fá ekki að fara inn í Grindavík
Miðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna náttúruhamfaranna í Grindavík var opnuð í dag. Þýskur fréttamaður á heimleið segist svekktur yfir að hafa ekki fengið að fara inn í Grindavík.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Miðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna náttúruhamfaranna í Grindavík var opnuð í dag. Þýskur fréttamaður á heimleið segist svekktur yfir að hafa ekki fengið að fara inn í Grindavík.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum ríflega eitt hundrað heimila í Grindavík inn í bæinn í dag. Þá verður starfsfólki fyrirtækja leyft að fara inn í bæinn eftir klukkan 15.
Karlmaður var handtekinn í gærkvöldi fyrir ógnandi tilburði og að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Eftir að varðstjóri hafði rætt við manninn á lögreglustöð var hann hvattur til að fara heim til sín að hvíla sig. Hann kom í tvígang aftur á lögreglustöðina og endaði á því að fá að gista fangageymslur.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa afmörkuðum hópi Grindvíkinga inn í bæinn í dag. Búið er að hafa samband við alla þá sem mega fara að sækja verðmæti. „Vakin er athygli á því að það er ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði sem hefur verið rýmt af öryggisástæðum.“
Í gærkvöldi var tilkynnt um unglingasamkvæmi í uppsiglingu í hesthúsahverfi í Kópavogi. Allir unglingarnir voru kurteisir og skildu afskipti lögreglu af samkvæminu.
Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu rannsóknar lögreglu á skotárás í Úlfarsárdal í Reykjavík í byrjun mánaðarins.
Kona á fimmtugsaldri, sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík, mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember næstkomandi. Rannsókn lögreglu krefst þess að smáhundur sem fannst dauður í frysti á vettvangi verði krufinn.
Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum, sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni að Silfratjörn í Úlfarsárdal þann 2. nóvember síðastliðinn, rennur út í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm.
Löggæsla í Grindavík hefur verið aukin eftir að tilkynningar bárust um grunsamlegar mannaferðir að næturlagi. Lögregla stendur nú vaktina allan sólarhringinn. Fjölmiðlum er hins vegar meinaður aðgangur að bænum í dag.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur kært þriffyrirtækið Vy-þrif til lögreglu fyrir ólöglega matvælageymslu í kjallara í Sóltúni í Reykjavík. Fyrirtækið hafði frest til 14. nóvember til að bregðast við erindi eftirlitsins en gerði það ekki.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að verið væri að veita áfengi á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur eftir lokun.
Vinnuslys varð í Kópavogi í dag þar sem starfsmaður ónefnds fyrirtækis féll niður stiga stigahúss. Starfsmaðurinn var aumur á nokkrum stöðum og með svima eftir fallið. Hann var flutt á bráðamóttöku til skoðunar.
Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér.
Stefán Logi Sívarsson, rúmlega fertugur karlmaður sem á að baki langan sakaferil fyrir ofbeldisbrot, sætir nú gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði. Hann er sakaður um stórfellda líkamsárás fyrir rúmri viku.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, segir nóttina hafa verið nokkuð rólega og tíðindalausa. Dagurinn byrji núna með mati vísindamanna á nýjum gögnum.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir að vonandi verði hægt að hleypa Grindvíkingum aftur tímabundið inn í bæinn á morgun. Bærinn var rýmdur í dag þegar tugir íbúa voru þar, en rýmingin tók 95 sekúndur.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir í samtali við Vísi að Grindavík hafi verið rýmd vegna þess að lögreglu barst boð þess efnis frá samhæfingarstöð almannavarna.
Verið er að rýma Grindavík í þessum töluðu orðum af öryggisástæðum. Samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum mældist SO2 gas í gasmælum Veðurstofunnar. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi áréttar að ekki sé um neyðarrýmingu að ræða. Rýming verði gerð skipulega.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa öllum íbúum Grindavíkur inn í bæinn núna.
Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að bíl hafði verið ekið á ljósastaur í hverfi 103 í Reykjavík. Þegar að var komið var bíllinn var ofan á ljósastaurnum og ökumaðurinn enn í ökumannssætinu.
Lögregla sinnti nokkrum útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem tilkynnt var um einstaklinga í annarlegu ástandi og aðstoðar þurfti við til að koma þeim á brott.
Lögreglan á Suðurnesjum og aðrir viðbragðsaðilar eru nú í biðstöðu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir nóttina hafa verið viðburðarlitla en viðbragðsaðilar munu funda klukkan 11:00.
Einn var handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa ekið ölvaður á gangandi vegfaranda í miðbæ Reykjavíkur. Vegfarandinn hlaut minniháttar meiðsl en ekki er nánar greint frá áverkum hans.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna, þar sem mikið magn reiðufjár var í bifreiðinni.
Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um hóp manna að veitast að einum manni. Einn var sagður hafa haldið hníf upp að árásarþola. Lögregla fór þegar á vettvang ásamt sérsveit en málið reyndist minniháttar rifrildi.
Fyrsta heimsókn starfsfólks Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) í geymslurými í kjallaranum í Sóltúni 20 virðist hafa komið fólki á svæðinu í opna skjöldu. Þeir tóku á rás og ekki náðist að ræða við þá.
Tæplega fimm tonn af matvælum sem höfðu nýlega verið flutt til Íslands voru á meðal þeirra sem fundust í geymslu í kjallara húsnæðis við Sóltún í Reykjavík í lok september. Þá eru vísbendingar um að fólk hafi dvalið í geymslunni og er sá angi málsins kominn á borð lögreglu.
Leit lögreglunnar á Vesturlandi og Landhelgisgæslunnar að ísbirni á Langjökli í gær skilaði litlu. Enginn hvítabjörn fannst og enginn ummerki eftir slíkt dýr heldur.