

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Ók á hjólreiðamann og fór af vettvangi
Ökumaður bifhjóls ók í dag á hjólreiðamann á göngustíg í Breiðholti í dag. Ökumaður bifhjólsins fór af vettvangi án þess að kanna ástanda hjólreiðamannsins, en sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku.

Glæpahópar flytji inn konur til að stunda vændi
Lögregla telur að skipulagðir glæpahópar á Íslandi sendi konur til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vændi. Viðskipti með fólk er eitt það arðbærasta í skipulagðri glæpastarfsemi að sögn lögreglufulltrúa.

Söguleg ákæra vegna skorts á brunavörnum á Smiðshöfða
Ákæra héraðssaksóknara gegn eiganda starfsmannaleigu um hættubrot og brot á lögum um brunavarnir er sú talin sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi að sögn saksóknara. Maðurinn er ákærður fyrir að stofna á ófyrirleitinn hátt heilsu og lífi á þriðja tug starfsmanna í hættu. Aðalmeðferð fer fram í næstu viku og er málið fordæmisgefandi.

Lögmaður Sölva segir málið komið í réttan farveg
„Það er auðvitað komið fram núna að það séu komnar kærur og það er auðvitað bara rétti farvegurinn. Þar getur hann tekið til varna,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns.

Þrír börðu aldraðan mann til óbóta með bareflum
Aldraður maður var barinn til óbóta af þremur mönnum sem réðust að honum með bareflum í austurbænum í dag. Mennirnir stálu ýmsum munum af manninum og brutu gleraugu hans. Maðurinn lá í blóði sínu þegar lögregluþjóna bar að garði.

Tvær konur hafa tilkynnt Sölva til lögreglu vegna meints ofbeldis
Tvær konur hafa stigið fram og sagt frá meintu ofbeldi sem þær hafi verið beittar af Sölva Tryggvasyni, dagskrárgerðarmanni. Þær hafa báðar leitað til lögreglu vegna meints ofbeldis.

Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi
Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur.

Deilir áhyggjum lögreglu af albönsku mafíunni
Dómsmálaráðherra tekur undir áhyggjur lögreglu um að albanska mafían fari að láta til sín taka hér á landi. Það þurfi með öllum mætti að tryggja öryggi borgaranna með því að styrkja lögregluna.

Skorar á ríkisstjórnina að opna augun eftir umfjöllun Kompáss
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórnina hafa brugðist því að verja þjóðina gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta sagði hún eftir að hafa horft á umfjöllun Kompáss um málefnið.

Ákærður fyrir tilraun til að drepa eiginkonu sína á Hótel Borg
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem fréttastofa hefur undir höndum.

„Þetta var bara aftaka“
Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi.

Dvalargestur sóttkvíarhótels í annarlegu ástandi hafði í hótunum við annan gest
Lögregla var kölluð á vettvang snemma í gærkvöldi vegna dvalargests á sóttkvíarhóteli í póstnúmerinu 105. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var til vandræða; hafði meðal annars haft í hótunum við annan gest. Þá er hann grunaður um eignaspjöll.

Íslenskt par talið hafa grætt 84 milljónir vegna sölu lyfseðilskyldra lyfja
Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi stundað glæpi kerfisbundið í tæpan áratug.

Sölvi segir sögurnar þvætting frá upphafi til enda
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur tjáð sig á samfélagsmiðlum um sögusagnir sem gengið hafa um hann undanfarna daga. Hann segir þær enga stoð eiga í raunveruleikanum og birtir upplýsingar úr málaskrá lögreglu sem sýna að lögregla hefur engin afskipti haft af honum undanfarnar vikur.

Rauðagerðismálið til héraðssaksóknara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur afhent embætti héraðssaksóknara gögn vegna rannsóknar Rauðagerðismálsins. Mun það falla í hlut embættisins að ákveða hvort ákærur verða gefnar út í málinu.

Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum
Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands.

Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg
Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna.

Umferðarslys vegna blindandi sólarljóss og tillitslausrar gæsar
Ökumaður bifhjóls var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið í gærkvöldi eftir að hann lenti aftan á bifreið sem snögghemlaði þegar gæs gekk yfir götu í Seljahverfi.

Handtekinn eftir að hafa kastað búslóðinni fram af svölum
Rúmlega hundrað mál voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt og hafði hún í nógu að snúast. Fimmtán hávaðakvartanir komu inn á borð lögreglu og voru fimm ökumenn stöðvaðir vegna vímuefnaaksturs, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Ógnaði fólki í miðbænum
Lögreglu barst tilkynning á áttunda tímanum í gærkvöldi um mann sem hafði verið að ógna fólki í miðbænum. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn í mjög annarlegu ástandi og enn að ógna fólki, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Mældu ökumann á 190 km/klst og veittu eftirför
Lögreglan á Suðurnesjum hóf eftirför í gær þegar bifreið mældist á 190 km/klst, þar sem henni var ekið í átt að Hafnarfirði. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var gert viðvart en í Hafnarfirði náði ökumaður að stinga lögreglu af um stund.

Rauðagerðismálið til ákærusviðs á morgun
Rannsókn á morðinu í Rauðagerði er að mestu lokið og stefnt er að því að senda málið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Þetta segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, í samtali við fréttastofu.

Yfirheyra loks manninn sem rauf einangrun og er talinn hafa komið af stað hópsmitinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hyggst á næstu dögum taka skýrslu af karlmanni sem er bæði grunaður um brot á sóttkví og einangrun. Þá er grunur um að hann tengist hópsmitinu sem upp kom á leikskólanum Jörfa.

Sextíu prósent Íslendinga eru fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta
Sextíu prósent landsmanna eru nú fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna, ef marka má nýja könnun Félagsvísindastofnunar.

Maðurinn sem lýst var eftir er kominn í leitirnar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti fyrr í kvöld eftir manni á áttræðisaldri sem ekkert hafði til spurst frá sunnudeginum 25.apríl.

Fjögurra ára drengur lést af slysförum
Fjögurra ára drengur lést á Landspítala í fyrradag eftir að aðskotahlutur festist í hálsi hans á miðvikudag í síðustu viku.

Ölvaðir til vandræða í miðborginni
Nokkuð annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, ekki síst vegna ökumanna sem grunur lék á að væru undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Litla systir án öryggisbeltis og með höfuðið út um topplúguna
Lögregla stöðvaði bifreið í gær þar sem farþeginn var ekki í öryggisbelti heldur stóð í bílsætinu með höfuðið út um topplúgu bifreiðarinnar. Í ljós kom að þarna var ökumaður á ferð með ellefu ára systur sína og var málið tilkynnt til Barnaverndar.

Óvíst hvort reglur hafi verið brotnar á hundrað manna árshátíð VA
Árshátíð í Verkmenntaskóla Austurlands, sem haldin var á föstudag, hefur verið rannsökuð af lögreglu og hefur málið nú verið sent til ákærusviðs embættisins sem mun taka ákvörðun um framhaldið. Talið er að mögulega hafi sóttvarnareglur verið brotnar en tæplega 100 voru viðstaddir árshátíðinni í Neskaupstað.

Ofbeldi gegn barni á leikskóla til rannsóknar hjá lögreglu
Lögregla rannsakar nú mál starfsmanns á leikskólanum Sólborg í Sandgerði sem sakaður er um að hafa beitt barn í skólanum ofbeldi. Starfsmanninum hefur verið vikið frá störfum og var málið kært til lögreglu.