Hestar

Hestar

Fréttir af hestamennsku og þættir af Stöð 2 Sport.

Fréttamynd

Úrslit í úrtöku hjá Sleipni, Ljúf, Háfeta og Trausta

Sigurður Vignir Matthíasson sigraði í A flokki gæðinga í úrtöku hjá Sleipni, Ljúf, Háfeta og Trausta sem lauk nú í kvöld á Kvist frá Hvolsvelli með 8,59. Þórður Þorgeirsson lenti í öðru sæti á Snædísi frá Selfossi með 8,55 og Elsa Magnúsdóttir húsfreyja á Sólvangi endaði í því þriðja á Þyt frá Kálfhóli með 8,51 en þessi þrjú kepptu fyrir Sleipni.

Sport
Fréttamynd

Þórður Þorgeirsson sigraði A flokk gæðinga á úrtökumóti Geysis

Þórður Þorgeirsson sigraði A flokk gæðinga á úrtökumóti Geysis, Sindra, Smára og Loga sem fram fór um helgina með 8,60 í einkunn. Ævar Örn Guðjónsson varð í öðru sæti á Bergþóri frá Feti með 8,48. Ísleifur Jónasson sigraði B flokk á Röðli frá Kálfholti með 8,78 og Árni Björn Pálsson hafnaði í öðru sæti á Tign frá Teigi ll með einkunina 8,59. Maríanna Magnúsdóttir sigraði Ungmennaflokk með einkunina 8,43 á Tý frá Þúfu og Helga Björk Helgadóttir varð í öðru sæti á Eydísi frá Djúpadal með 8,43.

Sport
Fréttamynd

Kóngur um stund

Hestaþátturinn Kóngur um stund, sem var á Stöð 2 í fyrra, heldur áfram á RÚV í sumar. Áfram er tilgangurinn að skemmta áhorfendum og vekja áhuga á íslenska hestinum og hestamennsku um leið, líka meðal þeirra sem lítið sem ekkert hafa kynnst þessu ótrúlegu og einstöku skepnu.

Sport
Fréttamynd

Úrslit hjá Hornfirðingi

Félagsmót hestamannafélagsins Hornfirðings fór fram í blíðskaparveðri nú um helgina. Mótið sem jafnframt var úrtaka fyrir landsmót var vel sótt og gekk mjög vel að sögn mótshaldara. Um 60 knapar og hross mættu til leiks.

Sport
Fréttamynd

Skráningarfrestur vegna ræktunarbússýninga á LM

Hrossaræktendur eru minntir á að frestur til að skrá ræktunarbú á Landsmót 2006 rennur út sunnudaginn 11. júní nk. Hægt er að sækja um þátttöku með því að senda tölvupóst á landsmot@landsmot.is merkt "Ræktunarbú." Þar þurfa að koma fram upplýsingar um þau hross er ætlunin er að sýna, aldur, ættir og árangur, ásamt stuttri kynningu á búinu.

Sport
Fréttamynd

Gæðingakeppni Faxa úrslit

Blær frá Hesti sigraði A- flokk á gæðingamóti Faxa með glæsibrag knapi á Blæ var Þorvaldur Árni Þorvaldsson.Blær hlaut einkunnina 8,93, fékk hann meðal annars 9,4 fyrir brokk og 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið og má vænta þess að þeir félagar verði í toppbaráttunni á LM í sumar. Blær var einnig valin glæsilegasti hestur mótsins

Sport
Fréttamynd

Geisli sigraði af öryggi í Gusti

Gæðingakeppni Gusts, sem jafnframt var úrtaka fyrir Landsmót, fór fram nú um helgina. Þátttaka var góð og keppnin hörð enda mikið í húfi. Þekktir gæðingar sigruðu í A – og B flokki, en sigurvegari síðasta Landsmóts Geisli frá Sælukoti sýndi hvers megnugur hann og knapi hans Steingrímur Sigurðarson geta verið þegar þeir hreinlega rúlluðu upp úrslitakeppninni og hlutu meteinkunn 9,16 og mikið lófatak frá áhorfendum.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum 2006

Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum fer fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 14.-16. júlí nk. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og stefna Gustarar að því að halda glæsilegt mót. Hin þekktu listahjón Baltasar og Kristjana Samper hafa hannað glæsilega verðlaunagripi sem veittir verða fyrir efstu sætin, en þeir eru sannkölluð listaverk og verða aðeins framleiddir í takmörkuðu magni.

Sport
Fréttamynd

Meistarar hjá Sóta

Gæðingakeppni Sóta fór vel fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag. Aldrei hafa svo margir meistaraknapar tekið þátt í einu og er greinilegt að eigendur hrossanna leggja metnað sinn í að hesturinn sýni sitt allra besta, enda var þetta mót einnig úrtaka fyrir komandi Landsmót.

Sport
Fréttamynd

Þóroddur sigrar í A-flokki gæðinga hjá Fáki

Þóroddur frá Þóroddsstöðum og Daníel Jónsson unnu A-flokk gæðinga á MESTA gæðingamóti Fáks í gærkvöld með einkunina 8,81. Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson náðu öðru sæti með 8,76 og Ormur frá Dallandi og Atli Guðmundsson höfnuðu í því þriðja með 8,75.

Sport
Fréttamynd

Rökkvi frá Hárlaugsstöðum sigraði í B-flokki hjá Fák

Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Þorvaldur Árni Þorvaldsson sigruðu í B-flokki gæðinga á MEST gæðingamóti hjá Fáki í dag með 9,30 í einkunn. Muggur frá Hafsteinsstöðum og Árni Björn urðu í öðru sæti með 8,74 í einkunn og Töfri frá Kjartansstöðum og Daníel Jónsson höfnuðu í þriðja sæti. Úrslit í A flokki verða riðin klukkan 16,30.

Sport
Fréttamynd

Forkeppni í A-flokki hjá Fáki

Sigurbjörn Bárðarson og Kolskeggur frá Oddhóli hafa nauma forustu eftir forkeppnina í A- flokki gæðinga á MEST gæðingamóti Fáks í gær.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti stöðulisti í tölti fyrir LM 2006

Fyrsti stöðulisti vegna þátttökuréttar í tölti á LM 2006 birtist hér. Athugið að listinn er birtur með fyrirvara um breytingar og hann er eingöngu byggður á þeim mótum sem skilað hefur verið inn í tölvukerfið Mótafeng.

Sport
Fréttamynd

Aðalheiður Anna með besta tíman í Þolreiðinni

Þolreiðarkeppni Laxnes og Icelandair var haldin í gær í þokkalegu veðri. 20 keppentur tóku þátt í reiðinni og skiluðu allir sér í mark. Dýralæknir stöðvaði 3 keppendur áður en keppnin hófst þar sem ástand hesta var ekki nógu gott. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir vann unglinga- og ungmennaflokk en þetta er annað árið sem hún vinnur og Pétur Andersen vann fullorðins flokk.

Sport
Fréttamynd

Dagskrá gæðingamóts og úrtöku Fáks 2006

Glæsilegir gæðingar eru skráðir til leiks og má þar nefna Þórodd frá Þóroddsstöðum, Orm frá Dalland, Töfra frá Kjartansstöðum, List frá Vakurstöðum og Rökkva frá Hárlaugsstöðum. Leiknir frá Vakurstöðum, sigurvegar B flokksins í fyrra er skráður í unglingaflokk ásamt ótal fleiri glæsilegum gæðingum.

Sport
Fréttamynd

Skeiðleikar Skeiðfélagsins

Skeiðfélagið hélt sínar fyrstu kappreiðar í gærkvöldi á félagssvæði Sleipnis að Brávöllum á Selfossi. Vegna bilunar í tímatökubúnaði dróst dagskrá aðeins en þegar búnaðarinn var kominn í lag gekk allt að óskum. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur og var örlítill mótvindur.

Sport
Fréttamynd

Mikil spenna á íþróttamóti Sóta

Mikil spenna skapaðist á íþróttamóti Sóta, sem fór fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag. Flest úrslit voru jöfn og þurfti að ríða bráðabana í úrslitum í tölti fullorðinna. Í fjórgangi fullorðinna skákuðu konurnar körlunum og röðuðu sér í tvö efstu sætin. Eftir mótið var grillað á nýja pallinum við félagsheimilið og skemmtu menn, konur og börn sér langt fram eftir kvöldi.

Sport
Fréttamynd

OPNA Reykjavíkurmeistaramótið hefst í dag

OPNA Reykjavíkurmeistaramót Akkúrat og Höfðabíla hefst í dag klukkan fjögur og byrjar keppnin á gæðingaskeiði PP1 ungl, ungm, og 1. fl, meistara á kappreiðavelli. Þetta mót er án efa eitt af þeim stærri sem haldin eru á þessu ári, en það stendur yfir til sunnudags.

Sport
Fréttamynd

Atli Guðmundsson er sigurvegari í Meistaradeild VÍS

Atli Guðmundsson sigraði fyrstu Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum. Í gærkveldi var síðasta keppni í Meistaradeildinni og keppt var í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Atli Guðmundsson og Tenór sigruðu gæðingaskeiðið, Viðar Ingólfsson og Gandur í öðru sæti og Sigurður Sigurðarson á Fölva enduðu í þriðja sæti.

Sport
Fréttamynd

Þolreiðarkeppni Laxnes og Icelandair

Undanfarinn 15 ár hefur verið haldin Þolreiðarkeppni á Íslandi í samstarfi við Laxnes og Icelandair. Þolreiðarkeppni snýst um samspil manns og hests og verða allir hestar skoðaðir af dýralækni fyrir keppni og þegar keppni er lokið. Passa þarf allan tímann að ofgera ekki hestinum og að halda púls í lágmarki, ef að púls er of hár eftir keppni þá hlýtur keppandi refsistig.

Sport
Fréttamynd

Úrslit frá Firmakeppni Smára

Firmakeppni Smára í Hreppum fór fram á Kálfárbökkum við Árnes þann 1. maí í blíðskaparveðri og var aðsókn með mesta móti. Þáttaka var góð og góð tilþrif sáust, enda voru keppendur óspart hvattir áfram af þuli mótsins. Nú var í fyrsta skipti keppt í flokki heldri manna og kvenna. Það var Sigurður Sigmundsson frá Syðra-Langholti sem gaf verðlaunagrip í þennan nýja flokk.

Sport
Fréttamynd

Opna Reykjavíkur- meistaramótið

Opna Reykjavíkurmeistaramót Akkúrat og Höfðabíla verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 10 – 14 maí. Glæsileg dagskrá þar sem nokkrir af helstu gæðingum landsins etja kappi í hestaíþróttum. Einnig verða sýndar vonarstjörnur úr röðum kynbótahrossa sem sýndar verða á sérstökum sýningum.

Sport
Fréttamynd

Miðaverð á LM 2006

Miðaverð á Landsmót Hestamanna liggur nú fyrir og er verðskráin eftirfarandi. Fyrirkomulag forsölu verður kynnt nánar síðar og eins sala á stúkusætum. Gert er ráð fyrir að forsala hefjist í júníbyrjun

Sport
Fréttamynd

Úrslit opna töltmóts Anvara

Opna töltmót Andvara var haldið síðastliðin föstudag og voru skráningar á mótið í mesta lagi. Það var Ríkharður Flemming Jensen á Hæng frá Hæl sem sigraði opna flokkinn, Sara Lind Ólafsdóttir á Iðunni frá Eystri Hóli, sigraði áhugamannaflokkinn og Margrét Ríkharðsdóttir á Sál frá Múlakoti sem sigraði flokkinn undir 17 ára.

Sport
Fréttamynd

Síðasta mót Meistaradeildar VÍS verður haldið á Selfossi

Sú breyting hefur orðið á að síðasta mót Meistaradeildar VÍS verður haldið á félagssvæði Sleipnis á Selfossi í stað Glaðheima í Gusti fimmtudaginn 4. maí og verður þá keppt í tveimur greinum gæðingaskeiði og 150 m. skeiði. Ástæða þessa breytinga er að í 150 m skeiði munu fjórir knapar keppa í einu og eru startbásar sem til eru í Gusti ekki hentugir, því var mótið flutt austur. Mótið hefst kl. 19:00 og er aðgangur ókeypis.

Sport
Fréttamynd

Kraflar hefur það gott í Húsdýragarðinum

Höfðinginn mikli, Kraflar frá Miðsitju, hefur dvalið í góðu yfirlæti í Húsdýragarðinum í vetur. Klárinn lítur ótrúlega vel út og að sögn dýrahirða í garðinum er hann hvers manns hugljúfi. Kraflar er alltaf jafn unglegur og ef ekki væri fyrir gráu hárin í enni hans myndi maður alveg getað trúað því að þarna væri ungfoli á ferð. Feldurinn svartur og glansandi, byggingin létt og fasið unglegt.

Innlent
Fréttamynd

Æskulýðsdagur Andvara

Mánudaginn 1.maí n.k. verður hinn árlegi æskulýðsdagur Andvara. Lýsi hf. er styrktaraðilinn í ár, fjórða árið í röð og heitir því dagurinn Lýsisdagurinn. Haldið verður Lýsismót fyrir félagsmenn að Andvaravöllum og hefst mótið kl. 12.00.

Sport