
Stígi skref til baka í átt að sjálfstæðara FME
Seðlabankastjóri segir að sér finnist ekki ólíklegt að stigin verði skref til baka frá sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í átt að því að gera eftirlitið sjálfstæðara.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Seðlabankastjóri segir að sér finnist ekki ólíklegt að stigin verði skref til baka frá sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í átt að því að gera eftirlitið sjálfstæðara.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Unnur Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits munu mæta á opinn fund í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sem hefst klukkan 9:15 í dag.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Þingvallanefndar ætlar að þrýsta á að tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu á Suðurlandi fari af stað að nýju. Verkefnið var sett á ís í Covid en þingmaðurinn segir nú kominn tíma til að hefja það að nýju, þegar von er á miklum fjölda ferðamanna til landsins.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir að gott hefði verið ef framhaldsskólanemendur hefðu fengið sæti við borðið í stýrihópi menntamálaráðuneytisins sem falið var að kanna fýsileika á sameiningum menntaskóla.
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir nýja skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar við Íslandsstrendur vekja upp spurningar hvort endurskoða þurfi hvort atvinnugreinin tilheyri fortíðinni frekar en framtíð. Ekki sé þó hægt að afturkalla veiðileyfi fyrir þetta sumar.
Innviðaráðherra vill ekkert segja um það hvenær hægt verður að bjóða út næstu jarðgöng á Íslandi né hvort hann leggi til í nýrri samgönguáætlun að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni. Óvissa ríkir um fjármögnun.
Enn var tekist á um flugvöllinn í Vatnsmýrinni að þessu sinni í frísklegum umræðum í Pallborði Vísis og Stöðvar 2. Þar mættust þeir Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fóru yfir þetta sígilda hitamál.
Í lok liðins mánaðar voru staðfest þau gleðilegu tíðindi að Íslensk Erfðagreining muni taka þátt í því að rannsaka riðu í íslensku sauðfé, en riða er langvinnur og ólæknandi smitsjúkdómur sem leggst á sauðfé og veldur svampkenndum hrörnunarskemmdum í heila og mænu.
Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um meðferð einka- og sakamála sem beinir sjónum að frásögn fjölmiðla af skýrslutökum úr dómsal. Frumvarpið er hugsað sem viðbragð við stóra kókaínmálinu og því ástandi sem skapaðist þegar dómari bannaði fréttaflutning úr dómsal í heilar sjö vikur.
Kjaragliðnun er pólitísk ákvörðun. Lög um almannatryggingar tryggja lífeyristaka gegn kjaragliðnun, en þrátt fyrir það er kjaragliðnun staðreynd á Íslandi.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir óviðunandi að ekki sé símasamband við þjóðveg 1 eða stærstu ferðamannastaði landsins. Hann kallar eftir að byggt verði upp 5G fjarskiptakerfi eftir færeyskri fyrirmynd.
Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, rís upp til varnar vini sínum og félaga Ásmundi Friðrikssyni þingmanni sem hefur verið sakaður um að vera á fullum launum sem þingmaður við að stofna ferðaþjónustufyrirtæki.
Minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur að stjórnvöld hefðu frekar átt að beita sér gegn því að fjárfesting í kjarnorku yrði felld undir skilgreininguna á sjálfbærum fjárfestingum heldur en að krefjast undanþágu frá álagningu losunarkostnaðar í millilandaflugi.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fákeppnismarkað eins og Ísland þurfi að regluvæða: „Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Landsbankanum í opinberri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opinbert viðmið um eðlilega arðsemi, eðlileg kostnaðarhlutföll.“
Markmið núverandi ríkisstjórnar í loftslagsmálum eru metnaðarfull. Ríkisstjórnin vill gera betur en Parísarsamkomulagið og stefnir að kolefnishlutlausu Íslandi í síðasta lagi árið 2040. Auk þess er stefnt að því að Ísland nái að verða óháð jarðefnaeldsneyti í lofti, láði og legi árið 2050.
Fyrir rúmu ári skrifaði ég grein þar sem ég rakti erfiðleika ríkisstjórnarinnar við að innleiða afglæpavæðingu neysluskammta vímuefna og tengdi erfiðleikana við stefnuleysi stjórnarinnar.
Uppbygging varaflugvalla á Íslandi hafa ekki verið í samræmi við vöxt alþjóðarflugs síðustu misseri. Flestar ferðir til og frá landinu eru í gegnum Keflavíkurflugvöll en hins vegar erum við að sjá aukið millilandaflug gegnum flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum.
Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra var brugðið þegar hann fékk að vita það á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun að Íslendingum hafi fjölgað um þrjú þúsund frá áramótum.
Nú í vikunni var birt sláandi mynd af ástandi Siglufjarðarvegar. Þar sést greinilega hversu mikið hefur hrunið úr hlíðinni, en það er stutt í að vegurinn verði í raun ófær eða honum lokað sem öryggisráðstöfun.
Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra og formaður lögreglustjórafélags Íslands vill gjalda varhug við afglæpavæðingu neysluskammta. Hún telur engum blöðum um það að fletta að ef varsla neysluskammta verði gerð refsilaus þá auki það neyslu ávana- og fíknefna.
Ásgeir Jónsson segist binda miklar vonir við að ný forysta ASÍ komi sambandinu á þann stað að það verði aftur leiðandi á vinnumarkaði. Vinnumarkaðurinn þurfi að taka ábyrgð á sínum þætti í verðbólgunni og fara að grípa til aðgerða til að árangur náist í baráttu gegn henni.
Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, er látinn, níræður að aldri.
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis klukkan 9:15 í dag.
Willum Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra upplýsti á þinginu fyrr í dag að hann hefði ákveðið að leggja ekki fram fyrirhugað frumvarp um afglæpavæðingu að svo stöddu.
Framkvæmdastjóri þingflokks Pírata hefur sagt upp störfum. Þá hefur verið gengið frá starfsflokum við tvo starfsmenn þingflokksins.
Heilbrigðisráðherra mun ekki leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta, líkt og áður hafði verið boðað. Hann segist frekar munu leggja áherslu á skaðaminnkandi úrræði.
Þegar okkur mistekst ætlunarverk okkar þurfum við að setjast niður og finna nýtt leikskipulag, hvort sem er í einkalífi okkar, við leik og störf eða rekstur samfélags.
Þegar nýjar upplýsingar birtast um lítinn árangur í loftslagsmálum kallar umhverfisráðherra til þjóðarinnar og hvetur hana til að hlaupa hraðar og beisla vindorkuna í þágu orkuskipta.
Þingmenn streymdu í pontu í dag til að ræða þá alvarlegu stöðu sem upp er komin vegna ópíóðafíknar á Íslandi. Yfirlæknir á Vogi óttast að andlátum vegna ópíóðafíknar muni fjölga til muna. Þingmaður segir að grípa þurfi til stórtækra aðgerða.
Dómsmálaráðherra segir væntanlega reglugerð um styrki til hælisleitenda sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi og hafa ýmist dregið umsókn sína til baka eða fengið synjun vera til hagsbóta fyrir báða aðila. Það væri ódýrara að styðja fólk til að yfirgefa landið sjálfviljugt en flytja það nauðugt úr landi.