Láðist að færa 900 milljóna kostnað inn í fjárfestingaráætlun
Stjórnendum Sorpu láðist að færa 900 milljóna kostnað vegna tækjabúnaðar og verðbóta inn í fjárfestingaráætlun en alls hækkar viðbótarkostnaður til næstu fjögurra ára um tæplega 1,4 milljarða. Framvkæmdarstjórinn segir stjórnendur Sorpu bera ábyrgð á mistökunum. Þau séu óheppileg og óskiljanleg og megi ekki koma fyrir aftur.