Arsenal - Sunderland 3-0
Martin Zubimendi kom Arsenal í 1-0 á 42. mínútu með frábæru skoti eftir sendingu frá Leandro Trossard. Svíinn Viktor Gyökeres virðist líka vera að vakna og hann bætti við öðru marki á 66. mínútu eftir stoðsendingu frá Kai Havertz. Gyökeres var ekki hættur og bætti við öðru marki sínu í uppbótartíma eftir sendingu frá Gabriel Martinelli.