Exton færir út kvíarnar
Robert Downey Jr og kona hans Susan eignuðust strák hnokka á dögunum sem fékk afar athyglisvert nafn. Guttinn var skírður Exton og þá óneitanlega fór maður að hugsa um hversu gott þetta gæti verið fyrir íslenska fyrirtækið Exton sem sérhæfir sig í ljósabúnaði, mynd og hljóði. Þarna eru þau komin með barn hjá frægu fólki sem ber sama heitið og fyrirtækið og það getur bara veitt á gott. Ég talaði við Agnar sem er fjölmiðlafulltrúi fyrirtækisins og spurði hann hvaða áhrif þetta á eftir að hafa á Exton fyrirtækið á heimsmælikvarða.