Fréttaskýring: Bandaríkjamenn vita ekki um skattalækkun
Kosið er til fulltrúadeildar og öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag. Því er spáð að repúblíkanar vinni sigur í fulltrúadeild þingsins, en að demókratar haldi líklega naumum meirihluta í öldungadeildinni. Magnús Sveinn Helgason, sagnfræðingur og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir að enda þótt þingið hafi gjarnan unnið með forsetanum, verði sjálfsagt lítið um það nú, nái repúblíkanar meirihluta í fulltrúadeildinni.