Puyol slasaðist illa | missir af El Clasico

Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, verður ekki með liðinu næstu átta vikurnar eftir að hann fór úr olnbogalið í sigrinum á Benfica í Meistaradeildinni í gær. Puyol fór beint á sjúkrahús eftir að hann meiddist en flaug samt með félögum sínum heim í gærkvöldi. Puyol fór beint inn á spítala við komuna til Barcaelona í nótt og var síðan settur í frekari rannsóknir í morgun. Þar kom í ljós að hann getur ekki spilað með liðinu næstu átta vikur.

2003
00:59

Vinsælt í flokknum Fótbolti