Halleluwah - K2R

Tvíeykið Halleluwah, Sölvi Blöndal og Tiny, frumsýna hér myndband við lag sitt K2R. Myndbandinu er leikstýrt af hinum sænska Måns Nyman, en hann hefur m.a. gert myndbönd fyrir nokkra af þekktari listamönnum Svía eins og Rebeccu og Fionu, Markus Price o.fl. Myndbandið var að öllu leyti tekið í Stokkhólmi, þar sem borgarmyndin spilar stórt hlutverk. Lagið var gefið út í netútgáfu fyrir örfáum vikum. Um miðjan október er síðan fyrirhuguð útgáfa á tíu tommu (einnig með áföstum cd) sem mun innihalda lögin ”K2R” á A-hlið, og ”Whiplashes” á B-hlið.

24855
03:47

Vinsælt í flokknum Tónlist