Vel gekk að hífa upp prammann sem sökk í Reyðarfirði í fyrra
Vel gekk í dag að hýfa upp fóðurprammann Muninn sem sökk við fiskeldisstöð í Reyðarfirði í janúar í fyrra.Verið er að sigla með prammann að Reyðarfjarðarhöfn þar sem fóður verður tæmt úr honum áður en farið verður í viðgerðir og honum fleytt á ný.