Geðrænn vandi sem afleiðing kannabisneyslu að aukast

Málum þar sem ungir menn eru nauðungarvistaðir vegna geðræns vanda sem er afleiðing kannabisneyslu hefur fjölgað mikið fyrir dómstólum og skipta þau tugum á ári hverju. Þetta segir dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sem hefur haft mörg slík mál til meðferðar. Hann segir sögu mannanna yfirleitt nákvæmlega eins og kallar eftir átaki í fræðslu fyrir þennan hóp.

387
02:08

Vinsælt í flokknum Fréttir