Sólgleraugu ársins og drepleiðinleg bókun
Í Hvað er að frétta? fer Tómas Arnar yfir það helsta sem brennur á fólki á mannamáli. Þar á meðal eru stærstu sólgleraugu og stærsta húfa í manna minnum. Einnig er snert á myndlistargjörningi fjármálaráðherra, tískunni á þingsetningunni og eldrauðu Íslandi. Í seinni helming þáttarins er hin drepleiðinlega bókun 35 útskýrð á léttu nótunum og í lokin fá allir sem horfa vegleg verðlaun.