Nýtt skattþrep fyrir lægstu laun verður til um áramótin
Nýtt skattþrep fyrir lægstu laun verður til um áramótin - þar sem skattar verða lækkaðir um fimm og hálft prósent í tveimur áföngum á næsta og þarnæsta ári. Skattar á millitekjufólk hækka hins vegar lítillega en skattar á hæstu tekjur breytast ekki. Ýmis gjöld hækka um áramótin. Fjárlagafrumvarp næsta árs var kynnt í morgun.