Metnaðarfull markmið um endurreisn Odda

Við kynnumst Odda á Rangárvöllum í þættinum Um land allt á Stöð 2. Forystumenn Oddafélagsins lýsa áformum um endurreisn staðarins sem menningar- og fræðaseturs. Við förum á Oddahátíð, hittum prestinn og bændur, sem nytja jörðina, og heyrum af rannsókn, þar sem grafist er fyrir um upphaf ritmenningar með Sæmundi fróða og veldi Oddaverja, sem reis hæst á tíma Jóns Loftssonar. Þetta fornfræga höfuðból státar einnig af Þorláki helga, Snorra Sturlusyni og Matthíasi Jochumssyni.

1306
00:34

Vinsælt í flokknum Um land allt