Kominn toppur á kross Sagrada Familia-kirkjunnar

Tæplega hundrað og fimmtíu árum eftir að uppbygging Sagrada Familia-kirkjunnar í Barcelon á Spáni hófst, er kominn toppur á kross hennar. Katalónski hönnuðurinn Antoní Gaudí hannaði kirkjuna og hófust framkvæmdir árið 1882. Hann lést fyrir hundrað árum og liggja jarðneskar leifar hans í grafhýsi kirkjunnar. Í fyrra varð kirkjan hæsta kirkja í heimi þegar byrjað var að koma fyrir neðri hluta krossins. Með toppinum er kirkjan orðin 172 og hálfur metri. Framkvæmdir halda þó áfram á næstunni en vonast er til að helstu framkvæmdum ljúki í ár.

102
00:38

Vinsælt í flokknum Fréttir