Ísland í dag - Innlit Völu Matt í minnsta hús á Íslandi 13 fermetra!

Vala Matt fór fyrir Ísland í dag í innlit í minnsta hús á Íslandi 13 fermetra hús Valdísar Evu Hjaltadóttur. En Valdís hefur búið í húsinu og er alsæl með það. Og nú þegar hún hefur fengið vinnu á Vestfjörðum dregur hún einfaldlega húsið með sér því það er á hjólum. Valdís er svo að hanna og smíða stærra hús sem verður 18 fermetrar. Það er lygilegt hvað hægt er að komast af með lítið af hlutum og fötum þegar lifað er í naumhyggju og skynsemi. Svo fór Vala einnig og skoðaði 15 fermetra skrautdúfna kofa sem framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Best Verk Guðmundur Björgvin Baldursson smíðaði. En þessi kofi er búinn að vera draumur Björgvins frá því hann var smá polli og er svo flott innréttaður að með smá tilfæringum væri hægt að búa í honum.

107837
13:12

Vinsælt í flokknum Ísland í dag