Stórtækar breytingar á leikskólakerfinu
Með nýju Reykjavíkurmódeli í leikskólamálum gætu leikskólagjöld lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft greiða umtalsvert meira. Markmiðið er meðal annars að bæta mönnun, starfsaðstæður og faglegt starf á leikskólum.