Húsarústir blasa við hvert sem litið er
Lítið bíður flestra þeirra sem streyma nú inn á norðurhluta Gasa eftir að opnað var fyrir aðgengi að svæðinu í morgun. Mesta eyðileggingin eftir árásir Ísraela er á norðurhlutanum og húsarústir blasa við hvert sem litið er á myndum sem teknar voru á svæðinu í dag.