Í Dalskóla var tekin afstaða til stefnuskráa flokka
Sveitastjórnarkosningar eru ekki þær einu sem fara fram þessa dagana því í Dalskóla var tekin afstaða til stefnuskráa flokka sem nemendur höfðu stofnað. Stefnumálin eru fjölmörg svo sem að fá frítt í strætó og krafa um að nemendum sé kennt betur á sjálft lífið.