Frumvarp um innleiðingu þriðja orkupakka lagt fram á Alþingi í næstu viku
Þingsályktun og frumvarp um innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins verða lögð fram á Alþingi í næstu viku. Utanríkisráðherra segir það sameiginlegan skilning Íslendinga og Evrópusambandsins að Íslendingar hafi áfram einir full yfirráð yfir raforkumálum landsins.