Hreppti sex verðlaun
Friðrik Hilmarsson var meðal þeirra sem fögnuðu innilega þegar norska kvikmyndin Sentimental Value var valin besta erlenda kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fór fram í Hollywood í nótt. Friðrik er titlaður framleiðandi myndarinnar en hann á að baki gott samstarf með leikstjóra myndarinnar Joachim Trier. Kvikmyndin One Battle After Another eftir Paul Thomas Anderson varð hlutskörpust á Óskarnum.