Fleiri fréttir Atvinnuleysi á evrusvæðinu nær nýjum hæðum Atvinnuleysi á evrusvæðinu náði nýjum hæðum í ágúst. Rúmlega átján milljónir manna eru nú án vinnu í sautján aðildarlöndum myntbandalagsins. Þetta kemur fram í nýjustu tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. 1.10.2012 11:45 Nokia að semja um kortabúnað við Oracle Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia hefur nú samning við hugbúnaðarrisann Oracle á teikniborðinu, sem miðar að því að gefa notendur hubúnaðar frá Oracle færi á því að tengjast við ört vaxandi kortahugbúnað frá Nokia, að því er segir í frétt á vef Wall Street Journal. 1.10.2012 09:03 Toyota og Honda að ná vopnum sínum í Bandaríkjunum Bílaframleiðendurnir Toyota og Honda eru að ná vopnum sínum á Bandaríkjamarkaði og er búist við því að nýjar sölutölur fyrir septembermánuð, sem birtar verða á þriðjudag, sýni það. Frá þessu greinir Wall Street Journal (WSJ) í dag. Greinendur búast við að sala á nýjum bifreiðum hafi verið 11 prósent betri í september á þessu ári heldur en í fyrra, sem þýðir að um 1,1 milljón bifreiða hafi selst, að því er fram kemur á vef WSJ. 30.9.2012 23:36 Félagarnir hjá Google yngstir á meðal þeirra 20 ríkustu Þeir einu sem eru á meðal tuttugu ríkustu einstaklinga Bandaríkjanna, samkvæmt lista Forbes, sem eru undir fertugu, eru félagarnir hjá Google, Sergey Brin og Larry Page. Þeir eru í 13. sæti á listanum en auður þeirra beggja, hvor um sig, er metinn á 20,3 milljarðar dala, eða sem nemur ríflega 2.500 milljörðum króna. 30.9.2012 10:28 Walmart-fjölskyldan ríkust í Bandaríkjunum Fjórir meðlimir Walton fjölskyldunnar, sem stofnaði smásölurisann Walmart í Bandaríkjunum, eru á meðal þeirra tíu sem Forbes telur ríkasta fólk Bandaríkjanna. Samanlagður auður þeirra nemur meira en 100 milljörðum dala, eða sem nemur 12.500 milljörðum króna. Það jafngildir tæplega áttfaldri árlegri landsframleiðslu Íslands. 30.9.2012 08:30 iPhone 5 úr gulli og demöntum Breskt fyrirtæki ætlar að selja hundrað stykki af sérstakri útgáfu af iPhone fimm símanum sem Apple gaf út á dögunum. Munurinn á þessum símum og þeim upprunalega er að hann er úr gulli og demöntum. 29.9.2012 14:34 Spænskir bankar þurfa 9.500 milljarða króna Spænskir bankar þurfa 59,3 milljarða evra, eða sem nemur ríflega 9.500 milljörðum króna, til þess að lifa af erfiðleika á fjármálamörkuðum í Evrópu, þar ekki síst á Spáni. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag, og er vitnað til sjálfstæðrar úttektar sérfræðinga. 29.9.2012 13:30 Mestu árásir tölvuþrjóta í sögunni á stórbanka í Bandaríkjunum Nokkrir stórbankar í Bandaríkjunum hafa orðið fyrir umfangsmestu árásum tölvuþrjóta í sögunni. Vegna árásanna hafa heimasíður þessarar banka meir og minna lamast frá því í síðustu viku. 28.9.2012 07:03 Sjálfsstýrðir bílar í Kaliforníu Yfirvöld í Kaliforníu munu á næstu dögum hefja prófanir með sjálfsstýrða bíla á helstu umferðaræðum sínum. 27.9.2012 14:17 Ótrúlegar sölutölur Apple - 10 þúsund ipad tölvur selst hér á landi Mikil sala hefur verið á vörum Apple hér á landi það sem af er ári líkt og víðast hvar annars staðar erlendis. Umboðsaðili Apple á Ísland reiknar með því að selja fimmtán þúsund i pad spjaldtölvur á þessu ári. 27.9.2012 12:15 Nubo leitar hófanna um byggingu skemmtigarðs í Óðinsvéum Borgaryfirvöld í Óðinsvéum í Danmörku eru bjartsýn á að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo muni byggja H.C. Andersen skemmtigarð í borginni en viðræður um slíkt hafa farið fram milli borgarstjórans Anker Boye og Nubo. 27.9.2012 06:50 Flestir Danir að breytast í Jóakim Aðalönd Bankainnistæður almennings í Danmörku hafa aldrei vaxið hraðar en í ár. Svo virðist sem hver Dani sé að breyta sér í Jóakim Aðalsönd. 27.9.2012 06:27 Lofar upprisu BlackBerry Thorstein Heins, framkvæmdastjóri Research in Motion, steig á svið í Kaliforníu á dögunum og kynnti nýjasta Blackberry stýrikerfið. RIM hefur átt í gríðarlegum erfiðleikum undanfarið en talið er að fyrirtækið hafi tapað um 80 milljörðum dollara á síðustu misserum. Upphæðin nemur 9.988 milljörðum íslenskra króna. 26.9.2012 14:44 Google Play: 25 milljarðasta niðurhalið Google Play, vefverslun Google, náði í dag þeim merka áfanga að þangað var sótt forrit í 25 milljarðasta skiptið. Þetta þykir mikið afrek, ekki síst fyrir þær sakir að aðeins var um niðurhal á smáforritum að ræða en verslunin býður einnig upp á kvikmyndir, tónlist og bækur. 26.9.2012 11:51 Rússar banna innflutning á erfðabreyttu korni Rússar hafa bannað innflutning á erfðabreyttu korni frá Bandaríkjunum, það er korni sem hefur verið erfðabreytt af líftæknifélaginu Monsanto. 26.9.2012 09:15 Jákvæð upplifun skapar hollustu Bernd Schmitt er prófessor í alþjóðaviðskiptum við Columbia Business School í New York. Er hann þekktur fyrir skrif sín og kenningar á sviði markaðssetningar, vörumerkjastjórnunar og stefnumótunar en hann hefur í rannsóknum sínum lagt áherslu á nýsköpun í markaðssetningu og upplifun viðskiptavina. Markaðurinn ræddi við Schmitt um rannsóknir hans og hvernig þær geta komið fyrirtækjum að gagni við markaðssetningu. 26.9.2012 07:00 Forstjóri Total varar við olíuvinnslu á norðurslóðum Christophe de Margerie forstjóri eins af stærstu olíufélögum heimsins, hins franska Total SA, segir að olíufélög eigi alls ekki að leita að olíu við Grænland eða Norðurskautið. 26.9.2012 06:51 MySpace gengur í endurnýjun lífdaga Samskiptasíðan fornfræga MySpace hefur fengið andlitslyftingu en hún hefur nú verið endurhönnuð frá grunni. Stjórnendur MySpace reyna nú eftir mesta megni að blása lífi í síðuna en notendum hennar hefur fækkað verulega á síðustu misserum. 25.9.2012 22:00 Bankastjóri Vestjysk Bank rekinn úr starfi Frank Kristensen bankastjóri Vestjysk Bank í Danmörku hefur verið rekinn. Stjórn bankans tók þessa ákvörðun í morgun. 25.9.2012 08:47 Viðskipti stöðvuð með hlutabréf í dönskum banka Viðskipti með hlutabréf í danska bankanum Vestjysk Bank hafa verið stöðvuð í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. 25.9.2012 07:55 Reikna með að 7.500 Dönum verði sagt upp fyrir áramótin Samtök iðnaðarins í Danmörku segja að skuldakreppan í Evrópu muni koma verulega við kaunin á rekstri danskra fyrirtækja fyrir áramótin. Samtökin reikna með að um 7.500 manns verði sagt upp störfum á næstu þremur mánuðum. 25.9.2012 06:42 iPhone 5 fáanlegur á Íslandi í dag Símafyrirtækið Nova byrjar að selja nýja iPhone símann, iPhone 5 klukkan fimm í dag. Um takmarkað magn er að ræða. "Þeir eru fleiri en 50 og færri en 100,“ segir Margrét Tryggvadóttir, yfirmaður markaðssviðs Nova í samtali við Vísi. Í tilkynningu frá félaginu kemur aftur á móti fram að ný sending er væntanleg síðar í vikunni. 24.9.2012 16:25 Yfir 5 milljónir síma seldust Yfir fimm milljónir iPhone 5 síma seldust í Bandaríkjunum um helgina, en þetta er fyrsta helgin sem síminn var seldur. Tim Cook, forstjóri Apple, sagði í tilkynningu að salan hefði verið ótrúleg. Hann segir að unnið sé hörðum höndu að því að anna eftirspurn. Á vef USA Today segir að þrátt fyrir að síminn hafi nánast selst upp um helgina hafi sérfræiðngar fundið nokkra galla á símanum. Víða er síminn uppseldur í verslunum en sömu verslanir eiga von á frekari sendingum frá framleiðanda í dag. 24.9.2012 13:55 Slagsmál og ólæti hjá Foxconn Fyrirtækið Foxconn, sem framleiðir m.a. iphone síma fyrir hugbúnaðarrisann Apple, þurfti í morgun að stöðvar framleiðslu í einni af verksmiðjum sínum vegna slagsmála sem brutust út meðal starfsmanna. Mikið álag er á starfsmönnum vegna hraðrar sölu á framleiðsluvörum fyrirtækisins. 24.9.2012 12:16 Soros: Þörf á markvissari aðgerðum í Evrópu Fjárfestirinn George Soros segir að stjórnvöld Evrópuríkja þurfi að efla samstarf sitt til þess að koma í veg fyrir dýpri efnahagslægð í Evrópu. Mikilvægt sé fyrir ríkin að grípa til markvissra aðgerða, sem hafi bæði góð skammtíma- og langtímaáhrif. 24.9.2012 08:48 Enginn úr fjölskyldunni lengur í stjórn Bang & Olufsen Í fyrsta sinn síðan hið þekkta danska hljómtækjafyrirtæki Bang & Olufsen var stofnað fyrir 87 árum situr enginn úr fjölskyldum stofnendanna í stjórn fyrirtækisins. 24.9.2012 06:35 Keypti fyrsta iPhone 5 símann 24.9.2012 17:27 Loksins íslenskt lyklaborð á Apple græjunum Nýja stýrikerfið iOS 6 frá Apple skartar mörgum nýjungum. Ein þeirra er alvörunni íslenskt lyklaborð með stafina Æ, Þ, Ð og Ö sýnilega. Þetta kemur fram á tækniblogginu Símon.is. 23.9.2012 17:19 Þjófar komust fyrstir í iPhone 5 í Japan Margir virðast hafa áhuga á nýjustu græju Apple, iPhone 5, þeirra á meðal japanskir bófar, því nú lítur út fyrir að verslanir í Japan hafi verið rændar stuttu áður en síminn átti að koma í almenna sölu. Ránsfengurinn er talin um 100 þúsund dollara virði, eða rúmlega 12 milljóna króna. 23.9.2012 16:16 Hundruð Íslendinga forpöntuðu iPhone 5 Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, býst við því að eftirspurn eftir iPhone 5 verði meiri en framboðið hér á landi og erfitt verði að komast yfir gripinn fram að jólum. 22.9.2012 16:58 Apple biðst afsökunar Tæknirisinn Apple hefur beðið viðskiptavina sína afsökunar og heitir því að uppfæra staðsetningarþjónustu sína á næstu vikum. Fyrirtækið ákvað að slíta samstarfi sínu við Google fyrir nokkru en fyrri kynslóðir iPhone snjallsímanna sem og iPad spjaldtölvanna hafa notað Google Maps kortaþjónustuna. 21.9.2012 21:45 iPhone 5 kemur í búðir í dag - Þjóðverji segir símann betri en kynlíf Nýjasti iPhone-síminn frá Apple kemur í verslanir í dag og mynduðust langar raðir við verslanir um allan heim þar sem aðdáendur símans börðust um að vera fyrstir til að fjárfesta í gripnum. Búist er við að Apple muni selja allt að tíu milljónir síma um helgina. 21.9.2012 12:58 Deilu Actavis og Sanofi vísað til Evrópudómstólsins Dómari í London hefur vísað deilu Actavis og franska lyfjaframleiðandans Sanofi til Evrópudómstólsins. Deilan snýst um að Actavis vill fá leyfi til að framleiða samheitalyfjaútgáfu af lyfinu Aprovel en einkaleyfi Sanofi á því er runnið út. 21.9.2012 07:52 Spánverjar þurfa minna fé til að bjarga bönkum sínum Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að Spánverjar þurfi minna lánsfé til að bjarga bankakerfi sínu en talið var að þeir þyrftu í sumar. Lánsfjárþörfin sé nær 40 milljörðum evra en þeim 100 milljörðum evra, eða um 16.000 milljörðum kr., sem rætt var um í sumar. 21.9.2012 06:36 Brasilía á fullri ferð - á allt undir hrávörum Brasilíska hagkerfið á allt undir hrávöruútflutningi, ekki síst útflutningi til Asíu. Á undanförnum sex árum hefur árlegur hagvöxtur verið á bilinu 5 til 10 prósent, ekki síst vegna ört vaxandi olíuiðnaðar í landinu. 20.9.2012 09:00 Gates er áfram auðugasti Bandaríkjamaðurinn Bill Gates er áfram auðugasti maður Bandaríkjanna samkvæmt nýbirtum lista Forbes tímaritisins um 400 auðugustu einstaklinga landsins. 20.9.2012 06:50 Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu fallli Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið í frjálsu fallli undanfarna daga og er verðið á Brent olíunni komið undir 108 dollara á tunnuna. Fyrir tæpri viku stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 10% á þessum tíma. 20.9.2012 06:20 Japanski seðlabankinn grípur til aðgerða Japanski seðlabankinn hefur ákveðið að grípa til aðgerða með það fyrir augum að styðja við hagvöxt og styrkja efnahag landsins. Áætlun bankans gengur út að stækka stuðningssjóðs landsins um 78 milljarða dala, eða sem jafngildir tæplega 10 þúsund milljörðum króna. Sjóðurinn er nýttur til þess að kaupa skuldabréf á markaði með það fyrir augum að halda lántökukostnaði Japans niðri, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. 19.9.2012 14:41 Gríðarlegur hagnaður hjá eiganda Zöru Smásölurisinn Inditex, sem meðal annars á vörumerkið Zöru, hagnaðist um 944 milljónir evra, eða 149 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 32 prósent milli ára, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið. Indetex rekur 5.693 verslanir í 85 löndum, en á fyrstu sex mánuðum ársins opnaði félagið 166 nýjar verslanir. 19.9.2012 11:39 Saudiarabar skrúfa frá olíukrönum sínum til að lækka olíuverðið Saudiarabar ætla sér að skrúfa enn frekar frá olíukrönum sínum til þess að lækka heimsmarkaðsverð á olíu. Þeir telja að verðið sé of hátt og vilja að það lækki niður í um 100 dollara á tunnuna. 19.9.2012 10:39 Allar bestu vefsíðurnar fyrir konur Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes tók á dögunum saman lista yfir 100 bestu vefsíðurnar á netinu fyrir konur. Á listanum eru margvíslegar vefsíður, um hin ýmsu mál, sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla sérstaklega um áhugamál kvenna. 19.9.2012 09:25 Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert undanfarna tvo daga og kostar Brent olían nú 112,5 dollara á tunnuna. S.l. föstudag stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 4%. Hið sama gildir um bandarísku léttolíuna sem er í tæpum 96 dollurum á tunnuna eftir að hafa farið yfir 99 dollara á föstudag. 19.9.2012 06:32 Sala á rafbókum eykst um 188 prósent í Bretlandi Frá áramótum hefur sala á rafbókum í Bretlandi aukist um 188 prósent miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þá hafa vinsældir barnabóka á rafbókarformi aukist verulegan meðan sala á hefðbundnum bókum hefur dregist saman. 18.9.2012 21:30 Minni ásókn í tveggja ára MBA-nám í bandarískum háskólum Dregið hefur stórlega úr umsóknum í tveggja ára MBA-nám í Bandaríkjunum á undanförnum árum, og dró enn úr umsóknum fyrir haustönnina á þessu ári sem var að hefjast. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal (WSJ) í dag, og er vitnað til nýrra talna frá Graduate Management Admission Council (GMAC), sem hefur annast hin svokölluðu GMA próf, sem nemendur þurfa oft að klára með ákveðnum lágmarksárangri til þess að eiga möguleika á því að fá inni í skólum. 18.9.2012 14:12 Danir tapa stórfé á örum frumsýningum kvikmynda Danskir kvikmyndagerðarmenn tapa stórfé á því hve ört danskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar í haust. 18.9.2012 06:28 Sjá næstu 50 fréttir
Atvinnuleysi á evrusvæðinu nær nýjum hæðum Atvinnuleysi á evrusvæðinu náði nýjum hæðum í ágúst. Rúmlega átján milljónir manna eru nú án vinnu í sautján aðildarlöndum myntbandalagsins. Þetta kemur fram í nýjustu tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. 1.10.2012 11:45
Nokia að semja um kortabúnað við Oracle Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia hefur nú samning við hugbúnaðarrisann Oracle á teikniborðinu, sem miðar að því að gefa notendur hubúnaðar frá Oracle færi á því að tengjast við ört vaxandi kortahugbúnað frá Nokia, að því er segir í frétt á vef Wall Street Journal. 1.10.2012 09:03
Toyota og Honda að ná vopnum sínum í Bandaríkjunum Bílaframleiðendurnir Toyota og Honda eru að ná vopnum sínum á Bandaríkjamarkaði og er búist við því að nýjar sölutölur fyrir septembermánuð, sem birtar verða á þriðjudag, sýni það. Frá þessu greinir Wall Street Journal (WSJ) í dag. Greinendur búast við að sala á nýjum bifreiðum hafi verið 11 prósent betri í september á þessu ári heldur en í fyrra, sem þýðir að um 1,1 milljón bifreiða hafi selst, að því er fram kemur á vef WSJ. 30.9.2012 23:36
Félagarnir hjá Google yngstir á meðal þeirra 20 ríkustu Þeir einu sem eru á meðal tuttugu ríkustu einstaklinga Bandaríkjanna, samkvæmt lista Forbes, sem eru undir fertugu, eru félagarnir hjá Google, Sergey Brin og Larry Page. Þeir eru í 13. sæti á listanum en auður þeirra beggja, hvor um sig, er metinn á 20,3 milljarðar dala, eða sem nemur ríflega 2.500 milljörðum króna. 30.9.2012 10:28
Walmart-fjölskyldan ríkust í Bandaríkjunum Fjórir meðlimir Walton fjölskyldunnar, sem stofnaði smásölurisann Walmart í Bandaríkjunum, eru á meðal þeirra tíu sem Forbes telur ríkasta fólk Bandaríkjanna. Samanlagður auður þeirra nemur meira en 100 milljörðum dala, eða sem nemur 12.500 milljörðum króna. Það jafngildir tæplega áttfaldri árlegri landsframleiðslu Íslands. 30.9.2012 08:30
iPhone 5 úr gulli og demöntum Breskt fyrirtæki ætlar að selja hundrað stykki af sérstakri útgáfu af iPhone fimm símanum sem Apple gaf út á dögunum. Munurinn á þessum símum og þeim upprunalega er að hann er úr gulli og demöntum. 29.9.2012 14:34
Spænskir bankar þurfa 9.500 milljarða króna Spænskir bankar þurfa 59,3 milljarða evra, eða sem nemur ríflega 9.500 milljörðum króna, til þess að lifa af erfiðleika á fjármálamörkuðum í Evrópu, þar ekki síst á Spáni. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag, og er vitnað til sjálfstæðrar úttektar sérfræðinga. 29.9.2012 13:30
Mestu árásir tölvuþrjóta í sögunni á stórbanka í Bandaríkjunum Nokkrir stórbankar í Bandaríkjunum hafa orðið fyrir umfangsmestu árásum tölvuþrjóta í sögunni. Vegna árásanna hafa heimasíður þessarar banka meir og minna lamast frá því í síðustu viku. 28.9.2012 07:03
Sjálfsstýrðir bílar í Kaliforníu Yfirvöld í Kaliforníu munu á næstu dögum hefja prófanir með sjálfsstýrða bíla á helstu umferðaræðum sínum. 27.9.2012 14:17
Ótrúlegar sölutölur Apple - 10 þúsund ipad tölvur selst hér á landi Mikil sala hefur verið á vörum Apple hér á landi það sem af er ári líkt og víðast hvar annars staðar erlendis. Umboðsaðili Apple á Ísland reiknar með því að selja fimmtán þúsund i pad spjaldtölvur á þessu ári. 27.9.2012 12:15
Nubo leitar hófanna um byggingu skemmtigarðs í Óðinsvéum Borgaryfirvöld í Óðinsvéum í Danmörku eru bjartsýn á að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo muni byggja H.C. Andersen skemmtigarð í borginni en viðræður um slíkt hafa farið fram milli borgarstjórans Anker Boye og Nubo. 27.9.2012 06:50
Flestir Danir að breytast í Jóakim Aðalönd Bankainnistæður almennings í Danmörku hafa aldrei vaxið hraðar en í ár. Svo virðist sem hver Dani sé að breyta sér í Jóakim Aðalsönd. 27.9.2012 06:27
Lofar upprisu BlackBerry Thorstein Heins, framkvæmdastjóri Research in Motion, steig á svið í Kaliforníu á dögunum og kynnti nýjasta Blackberry stýrikerfið. RIM hefur átt í gríðarlegum erfiðleikum undanfarið en talið er að fyrirtækið hafi tapað um 80 milljörðum dollara á síðustu misserum. Upphæðin nemur 9.988 milljörðum íslenskra króna. 26.9.2012 14:44
Google Play: 25 milljarðasta niðurhalið Google Play, vefverslun Google, náði í dag þeim merka áfanga að þangað var sótt forrit í 25 milljarðasta skiptið. Þetta þykir mikið afrek, ekki síst fyrir þær sakir að aðeins var um niðurhal á smáforritum að ræða en verslunin býður einnig upp á kvikmyndir, tónlist og bækur. 26.9.2012 11:51
Rússar banna innflutning á erfðabreyttu korni Rússar hafa bannað innflutning á erfðabreyttu korni frá Bandaríkjunum, það er korni sem hefur verið erfðabreytt af líftæknifélaginu Monsanto. 26.9.2012 09:15
Jákvæð upplifun skapar hollustu Bernd Schmitt er prófessor í alþjóðaviðskiptum við Columbia Business School í New York. Er hann þekktur fyrir skrif sín og kenningar á sviði markaðssetningar, vörumerkjastjórnunar og stefnumótunar en hann hefur í rannsóknum sínum lagt áherslu á nýsköpun í markaðssetningu og upplifun viðskiptavina. Markaðurinn ræddi við Schmitt um rannsóknir hans og hvernig þær geta komið fyrirtækjum að gagni við markaðssetningu. 26.9.2012 07:00
Forstjóri Total varar við olíuvinnslu á norðurslóðum Christophe de Margerie forstjóri eins af stærstu olíufélögum heimsins, hins franska Total SA, segir að olíufélög eigi alls ekki að leita að olíu við Grænland eða Norðurskautið. 26.9.2012 06:51
MySpace gengur í endurnýjun lífdaga Samskiptasíðan fornfræga MySpace hefur fengið andlitslyftingu en hún hefur nú verið endurhönnuð frá grunni. Stjórnendur MySpace reyna nú eftir mesta megni að blása lífi í síðuna en notendum hennar hefur fækkað verulega á síðustu misserum. 25.9.2012 22:00
Bankastjóri Vestjysk Bank rekinn úr starfi Frank Kristensen bankastjóri Vestjysk Bank í Danmörku hefur verið rekinn. Stjórn bankans tók þessa ákvörðun í morgun. 25.9.2012 08:47
Viðskipti stöðvuð með hlutabréf í dönskum banka Viðskipti með hlutabréf í danska bankanum Vestjysk Bank hafa verið stöðvuð í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. 25.9.2012 07:55
Reikna með að 7.500 Dönum verði sagt upp fyrir áramótin Samtök iðnaðarins í Danmörku segja að skuldakreppan í Evrópu muni koma verulega við kaunin á rekstri danskra fyrirtækja fyrir áramótin. Samtökin reikna með að um 7.500 manns verði sagt upp störfum á næstu þremur mánuðum. 25.9.2012 06:42
iPhone 5 fáanlegur á Íslandi í dag Símafyrirtækið Nova byrjar að selja nýja iPhone símann, iPhone 5 klukkan fimm í dag. Um takmarkað magn er að ræða. "Þeir eru fleiri en 50 og færri en 100,“ segir Margrét Tryggvadóttir, yfirmaður markaðssviðs Nova í samtali við Vísi. Í tilkynningu frá félaginu kemur aftur á móti fram að ný sending er væntanleg síðar í vikunni. 24.9.2012 16:25
Yfir 5 milljónir síma seldust Yfir fimm milljónir iPhone 5 síma seldust í Bandaríkjunum um helgina, en þetta er fyrsta helgin sem síminn var seldur. Tim Cook, forstjóri Apple, sagði í tilkynningu að salan hefði verið ótrúleg. Hann segir að unnið sé hörðum höndu að því að anna eftirspurn. Á vef USA Today segir að þrátt fyrir að síminn hafi nánast selst upp um helgina hafi sérfræiðngar fundið nokkra galla á símanum. Víða er síminn uppseldur í verslunum en sömu verslanir eiga von á frekari sendingum frá framleiðanda í dag. 24.9.2012 13:55
Slagsmál og ólæti hjá Foxconn Fyrirtækið Foxconn, sem framleiðir m.a. iphone síma fyrir hugbúnaðarrisann Apple, þurfti í morgun að stöðvar framleiðslu í einni af verksmiðjum sínum vegna slagsmála sem brutust út meðal starfsmanna. Mikið álag er á starfsmönnum vegna hraðrar sölu á framleiðsluvörum fyrirtækisins. 24.9.2012 12:16
Soros: Þörf á markvissari aðgerðum í Evrópu Fjárfestirinn George Soros segir að stjórnvöld Evrópuríkja þurfi að efla samstarf sitt til þess að koma í veg fyrir dýpri efnahagslægð í Evrópu. Mikilvægt sé fyrir ríkin að grípa til markvissra aðgerða, sem hafi bæði góð skammtíma- og langtímaáhrif. 24.9.2012 08:48
Enginn úr fjölskyldunni lengur í stjórn Bang & Olufsen Í fyrsta sinn síðan hið þekkta danska hljómtækjafyrirtæki Bang & Olufsen var stofnað fyrir 87 árum situr enginn úr fjölskyldum stofnendanna í stjórn fyrirtækisins. 24.9.2012 06:35
Loksins íslenskt lyklaborð á Apple græjunum Nýja stýrikerfið iOS 6 frá Apple skartar mörgum nýjungum. Ein þeirra er alvörunni íslenskt lyklaborð með stafina Æ, Þ, Ð og Ö sýnilega. Þetta kemur fram á tækniblogginu Símon.is. 23.9.2012 17:19
Þjófar komust fyrstir í iPhone 5 í Japan Margir virðast hafa áhuga á nýjustu græju Apple, iPhone 5, þeirra á meðal japanskir bófar, því nú lítur út fyrir að verslanir í Japan hafi verið rændar stuttu áður en síminn átti að koma í almenna sölu. Ránsfengurinn er talin um 100 þúsund dollara virði, eða rúmlega 12 milljóna króna. 23.9.2012 16:16
Hundruð Íslendinga forpöntuðu iPhone 5 Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, býst við því að eftirspurn eftir iPhone 5 verði meiri en framboðið hér á landi og erfitt verði að komast yfir gripinn fram að jólum. 22.9.2012 16:58
Apple biðst afsökunar Tæknirisinn Apple hefur beðið viðskiptavina sína afsökunar og heitir því að uppfæra staðsetningarþjónustu sína á næstu vikum. Fyrirtækið ákvað að slíta samstarfi sínu við Google fyrir nokkru en fyrri kynslóðir iPhone snjallsímanna sem og iPad spjaldtölvanna hafa notað Google Maps kortaþjónustuna. 21.9.2012 21:45
iPhone 5 kemur í búðir í dag - Þjóðverji segir símann betri en kynlíf Nýjasti iPhone-síminn frá Apple kemur í verslanir í dag og mynduðust langar raðir við verslanir um allan heim þar sem aðdáendur símans börðust um að vera fyrstir til að fjárfesta í gripnum. Búist er við að Apple muni selja allt að tíu milljónir síma um helgina. 21.9.2012 12:58
Deilu Actavis og Sanofi vísað til Evrópudómstólsins Dómari í London hefur vísað deilu Actavis og franska lyfjaframleiðandans Sanofi til Evrópudómstólsins. Deilan snýst um að Actavis vill fá leyfi til að framleiða samheitalyfjaútgáfu af lyfinu Aprovel en einkaleyfi Sanofi á því er runnið út. 21.9.2012 07:52
Spánverjar þurfa minna fé til að bjarga bönkum sínum Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að Spánverjar þurfi minna lánsfé til að bjarga bankakerfi sínu en talið var að þeir þyrftu í sumar. Lánsfjárþörfin sé nær 40 milljörðum evra en þeim 100 milljörðum evra, eða um 16.000 milljörðum kr., sem rætt var um í sumar. 21.9.2012 06:36
Brasilía á fullri ferð - á allt undir hrávörum Brasilíska hagkerfið á allt undir hrávöruútflutningi, ekki síst útflutningi til Asíu. Á undanförnum sex árum hefur árlegur hagvöxtur verið á bilinu 5 til 10 prósent, ekki síst vegna ört vaxandi olíuiðnaðar í landinu. 20.9.2012 09:00
Gates er áfram auðugasti Bandaríkjamaðurinn Bill Gates er áfram auðugasti maður Bandaríkjanna samkvæmt nýbirtum lista Forbes tímaritisins um 400 auðugustu einstaklinga landsins. 20.9.2012 06:50
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu fallli Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið í frjálsu fallli undanfarna daga og er verðið á Brent olíunni komið undir 108 dollara á tunnuna. Fyrir tæpri viku stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 10% á þessum tíma. 20.9.2012 06:20
Japanski seðlabankinn grípur til aðgerða Japanski seðlabankinn hefur ákveðið að grípa til aðgerða með það fyrir augum að styðja við hagvöxt og styrkja efnahag landsins. Áætlun bankans gengur út að stækka stuðningssjóðs landsins um 78 milljarða dala, eða sem jafngildir tæplega 10 þúsund milljörðum króna. Sjóðurinn er nýttur til þess að kaupa skuldabréf á markaði með það fyrir augum að halda lántökukostnaði Japans niðri, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. 19.9.2012 14:41
Gríðarlegur hagnaður hjá eiganda Zöru Smásölurisinn Inditex, sem meðal annars á vörumerkið Zöru, hagnaðist um 944 milljónir evra, eða 149 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 32 prósent milli ára, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið. Indetex rekur 5.693 verslanir í 85 löndum, en á fyrstu sex mánuðum ársins opnaði félagið 166 nýjar verslanir. 19.9.2012 11:39
Saudiarabar skrúfa frá olíukrönum sínum til að lækka olíuverðið Saudiarabar ætla sér að skrúfa enn frekar frá olíukrönum sínum til þess að lækka heimsmarkaðsverð á olíu. Þeir telja að verðið sé of hátt og vilja að það lækki niður í um 100 dollara á tunnuna. 19.9.2012 10:39
Allar bestu vefsíðurnar fyrir konur Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes tók á dögunum saman lista yfir 100 bestu vefsíðurnar á netinu fyrir konur. Á listanum eru margvíslegar vefsíður, um hin ýmsu mál, sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla sérstaklega um áhugamál kvenna. 19.9.2012 09:25
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert undanfarna tvo daga og kostar Brent olían nú 112,5 dollara á tunnuna. S.l. föstudag stóð verðið í rúmum 117 dollurum og hefur því lækkað um 4%. Hið sama gildir um bandarísku léttolíuna sem er í tæpum 96 dollurum á tunnuna eftir að hafa farið yfir 99 dollara á föstudag. 19.9.2012 06:32
Sala á rafbókum eykst um 188 prósent í Bretlandi Frá áramótum hefur sala á rafbókum í Bretlandi aukist um 188 prósent miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þá hafa vinsældir barnabóka á rafbókarformi aukist verulegan meðan sala á hefðbundnum bókum hefur dregist saman. 18.9.2012 21:30
Minni ásókn í tveggja ára MBA-nám í bandarískum háskólum Dregið hefur stórlega úr umsóknum í tveggja ára MBA-nám í Bandaríkjunum á undanförnum árum, og dró enn úr umsóknum fyrir haustönnina á þessu ári sem var að hefjast. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal (WSJ) í dag, og er vitnað til nýrra talna frá Graduate Management Admission Council (GMAC), sem hefur annast hin svokölluðu GMA próf, sem nemendur þurfa oft að klára með ákveðnum lágmarksárangri til þess að eiga möguleika á því að fá inni í skólum. 18.9.2012 14:12
Danir tapa stórfé á örum frumsýningum kvikmynda Danskir kvikmyndagerðarmenn tapa stórfé á því hve ört danskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar í haust. 18.9.2012 06:28