Fleiri fréttir

Paris Hilton vill stofna eigin hótelkeðju

Raunveruleikastjarnan og hótelerfinginn Paris Hilton hefur áhuga á að stofna sína eigin hótelkeðju og ganga þar með í fótspor langafa síns Conrad Hilton.

Metsala á notuðum bílum í Danmörku

Sala á notuðum bílum hefur aldrei verið meiri í sögunni í Danmörku. Í frétt um málið á vefsíðu börsen segir að á fyrstu fimm mánuðum ársins hafi um 217.000 notaðir bílar verið seldir í Danmörku eða að jafnaði 1.400 bílar á hverjum degi.

David Cameron segir framferði Barclays manna hneyksli

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir framferði starfsmanna Barclays-bankans, og eftir atvikum annarra bankamanna, er varðar vaxtasvindl bankans vera hneyksli og tilkynnti um það í breska þinginu í dag að ítarleg rannsókn myndi fara fram á starfsháttum banka í landinu.

Stjórnarformaðurinn yfirgefur Barclays

Barclays bankinn staðfesti í morgun fréttir breska ríkisútvarpsins, BBC, um að stjórnarformaðurinn, Marcus Aguis, myndi láta af störfum. Ástæðan er sú að bankinn var á dögunum sektaður um það sem samsvarar 57 milljörðum íslenskra króna fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á stýrivexti með ólöglegum aðgerðum. Bob Diamond, framkvæmdastjóri Barclays, mun gefa skýrslu fyrir fjármálanefnd breska þingsins á miðvikudag vegna hneykslisins. Aguis mætir svo fyrir nefndina á fimmtudaginn.

Atvinnuleysi á evrusvæðinu eykst áfram

Atvinnuleysi á evrusvæðinu heldur áfram að aukast. Atvinnleysið mældist 11,1% í maí samanborið við 11% í apríl og hefur aldrei verið meira í sögu evrusvæðisins.

Eignir Batista hrynja í verði

Brasilíski milljarðamæringurinn Eike Batista, einn ríkasti maður Brasilíu, hefur tapað helmingnum af auði sínu á síðustu þremur mánuðum, að því er fram kemur á vef Forbes. Þar segir að „ástarsambandi Batista“ við hlutabréfamarkaði sé lokið, en frá því í mars mánuði hefur hann tapað 15,5 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega 1.900 milljörðum krónum. Enginn milljarðamæringur í heiminum hefur tapað meiru á árinu en Batista, samkvæmt Forbes.

Stjórnarformaður Barclays mun segja upp

Marcus Agius stjórnarformaður Barclays mun segja upp vegna vaxtahneykslisins. Bankinn er sakaður um að hafa með markaðsmisnoktun reynt að hafa áhrif á stýrivexti. Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins BBC fullyrðir að Agius muni tilkynna afsögn sína á morgun. Barclays bankinn var sektaður um 290 milljónir sterlingspunda vegna hneykslisins. Royal Bank of Scotland hefur nú þegar rekið fjóra miðlara vegna þáttar þeirra í svindlinu.

Bankar fá fé beint úr neyðarsjóðum

Leiðtogar ríkjanna á Evrusvæðinu hafa komist að samkomulagi um lausn á vandræðunum með gjaldmiðilinn. Einnig hafa langtímamarkmið verið sett. Leiðtogarnir funduðu í Brussel í gær.

Yfirþjóðlegt fjármálaeftirlit í ESB

Seðlabanki Evrópu fær auknar valdheimildir með eins konar yfirþjóðlegu fjármálaeftirliti yfir bönkum í ríkjunum sautján á evrusvæðinu, en það var meðal þess sem ákveðið var á fundi leiðtoga evruríkjanna í Brussel í dag. Um er að ræða stórt skref í átt til sérstaks bankabandalags evruríkjanna. Þá var samþykkt að veita 100 milljarða evra í endurfjármögnun spænskra banka, en peningarnir verða ekki veittir fyrr en hinu evrópska fjármálaeftirliti hefur formlega verið komið á laggirnar. Markaðir brugðust vel við tíðindunum og gengi evru gagnvart dollar styrktist eftir að tilkynnt var um áformin í dag.

Nú er hægt að fá Chrome á iPhone

Tæknirisinn Gooogle tilkynnti fyrr í vikunni að Chrome netvafrinn yrði brátt fáanlegur fyrir iOS stýrikerfið. Það var síðan í gær sem að vafrinn vinsæli birtist í smáforrita safni Apple.

Allt á niðurleið hjá RIM

Svo virðist sem að dagar Research in Motion, framleiðanda BlackBerry snjallsímanna, séu taldir. Síðasti ársfjórðungur var afar erfiður fyrirtækinu og er talið að um 5 þúsund starfsmönnum verði sagt upp á næstu dögum.

Miklar hækkanir á hlutabréfamörkuðum

Fjárfestar hafa brugðist einkar vel við fréttum af fundi leiðtoga Evrópusambandsins (ESB), sem nú fer fram í Brussell, og er þar einkum horft til ákvarðana um að björgunarsjóður ESB fái heimildir til þess að endurfjármagna bankakerfi allra landa innan ESB, ef í óefni er komið.

Fréttaskýring: Fjársjóður og umhverfisvá á Norðurslóðum

Landsframleiðsla í Grænlandi mun aukast um 300 prósent á næstu þremur árum ef uppbyggingaráform London Mining og Alcoa ganga eftir. Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt The Economist á efnahagslegum tækifærum á Norðurslóðum sem birtist með tölublaði ritsins 16. júní sl. Ritið er 14 síður og er farið ítarlega yfir efnahagsleg og umhverfisleg áhrif þess ef farið verður út í mikla nýtingu á olíuauðlindum svæðisins, sem er raunar þegar komin af stað.

Neyðarsjóður ESB má lána beint til banka

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa samþykkt að sérstakur neyðarsjóður á vegum sambandsins geti lánað bönkum innan þess beint þannig að það hafi ekki áhrif á ríkisfjármál þeirra landa sem bankarnir eru staðsettir í.

New York Times reynir að ná til Kínverja

New York Times birti í gær, í fyrsta skipti, fréttavef sinn á kínversku og hyggst framvegis bjóða upp á að skoða fréttir á því tungumáli. Ætlun ritstjórnar fjölmiðilsins er að ná til þess fólks í Asíu og Kína sem hefur tök á því að skoða alþjóðlegar fréttir, og er þar ekki síst horft til ört vaxandi millistéttar, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um þessa breytingu hjá New York Times.

Leiðtogar funda á ný um skuldavanda

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna munu funda í Brussel í dag og á morgun. Leiðtogarnir funda um sama mál og oftast undanfarin ár, skuldavanda álfunnar og mögulegar lausnir á henni.

Barclays greiðir 57 milljarða króna í sekt

Barclays bankinn mun greiða 290 milljónir sterlingspunda, jafnvirði 57 milljarða íslenskra króna, í sekt fyrir að hafa haft óeðlileg áhrif á stýrivexti með markaðsmisnotkun. Það eru bresk og bandarísk yfirvöld sem leggja sektina á og segja þau að brotið sé alvarlegt og útbreitt. Umræddir bankavextir hafa áhrif á kostnað við lántöku einstaklinga, eins og húsnæðislán. Bob Diamond, forstjóri Barclays, og þrír aðrir stjórnendur bankans hafa afsalað sér launabónusum sínum í ár vegna þessa.

Google kynnir nýja spjaldtölvu

Ný tegund spjaltölvu er væntanleg frá Google vörumerkinu og talið er að hún verði kynnt á ráðstefnu sem hefst í San Fransisco í dag.

Air Finland gjaldþrota

Flugfélagið Air Finland er gjaldþrota. Erlendir fréttamiðlar greina frá því að stutta tilkynningu væri að finna á heimasíðu félagsins sem birtist í gærkvöldi. Félagið var stofnað árið 2002 og var með höfuðstöðvar í Helsinki.

Allir notendur Facebook fá nýtt netfang

Stærsta samskiptasíða heims, Facebook, hefur lengi boðið notendum sínum netföng. Nú hefur facebook hins vegar úthlutað öllum notendum netfang að þeim forspurðum.

Microsoft kaupir Yammer fyrir 150 miljarða króna

Microsoft hefur keypt samskiptaforritið Yammer fyrir 1,2 miljarða dala sem nemur 150 miljörðum króna. Samskiptasíðan sem ætluð er sem samskiptamáti í fyrirtækjum er fjögurra ára gömul og hefur yfir 5 miljón notendur.

Moody´s lækkar lánshæfiseinkunn 28 spænskra banka

Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunnir 28 spænskra banka. Sumar einkunnir voru lækkaðar um allt að 4 stig. Þar að auki voru allar einkunnir bankanna settar á neikvæðar horfur.

Katar vill fjárfesta fyrir 5 milljarða dala í Kína

Stjórnvöld í Katar hafa hug á því að fjárfesta í Kína fyrir fimm milljarða dala, eða sem nemur 625 milljörðum króna. Ef þessi áform eiga að ganga eftir þurfa yfirvöld í Katar að falla undir skilyrði sérstakrar áætlunar um erlenda fjárfestingu (China's Qualified Foreign Institutional Investor (QFII) programme) fagfjárfesta.

Fitch setur Kýpur í ruslflokk

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur lækkað lánshæfiseinkunn Kýpur niður í svokallaðan ruslflokk eða úr BBB- og niður í BB+. Þar að auki er einkunnin með neikvæðum horfum.

Hreinn hagnaður Iceland nam 36 milljörðum

Malcolm Walker virðist hafa gert mjög góð kaup þegar hann keypti Iceland Foods verslunarkeðjuna af slitastjórn Landsbankans fyrr í ár fyrir rúmlega 1,5 milljarð punda.

Stærstu evruríkin samþykkja áætlun um að styðja við hagvöxt

Leiðtogar fjögurra stærstu evruríkjanna, Þýskalands, Frakkalands, Ítalíu og Spánar, samþykktu í gær að vinna eftir áætlun til þess að efla og styðja við hagvöxt á evrusvæðinu. Um 130 milljarðar evra, ríflega 21 þúsund milljarðar króna, hafa verið eyrnamerktir í áætlunina, að því er breska ríkisútvarpið BBC greindi frá í morgun.

Ásælast námur á Grænlandi

Suðurkóreskir fjárfestar hafa sýnt áhuga á að kaupa stóran hlut í Kvanefjeld-námunni á Grænlandi. Þetta kemur fram á vef Berlingske.

Monti óttast „árásir“ fjárfesta á Evrópuríki

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, óttast að aðilar á markaði, eins og vogunarsjóðir og fleiri fjárfestar, muni stunda það að gera "árásir“ á hagkerfi einstakra þjóða í Evrópu ef þjóðarleiðtogar í álfunni koma sér ekki saman um trúverðugar og almennar aðgerðir til þess að sporna gegn djúpri kreppu í Evrópu.

Moody's lækkar lánshæfismat 15 banka

Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfismat 15 alþjóðlegra banka. Var þetta gert eftir lokun viðskiptamarkaða í Bandaríkjunum í dag.

Álverð lækkað um 30 prósent á einu ári

Álverð samkvæmt opinberum upplýsingum London Metal Exchange (LME) hefur lækkað um ríflega 30 prósent frá því í júlí í fyrra. Staðgreiðsluverð á markaði fór þá í 2.600 dali á tonnið en verðið er nú 1.879 dalir, samkvæmt upplýsingum um síðasta markaðsverð á vefsíðu LME. (sjá hér).

Sjá næstu 50 fréttir