Fleiri fréttir

Fréttaskýring: Nýmarkaðsríkin komast til enn meiri áhrifa

Spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir þetta ár gerir ráð fyrir að nýmarkaðsríkin (BRICS), með Indland og Kína í broddi fylkingar, muni standa undir meira en 60 prósent alls hagvaxtar í heiminum. Til BRICS-landanna teljast Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður Afríka.

Risaviðskipti hjá lyfjasölurisum

Bandaríski smásölurisinn Walgreen tilkynnti í morgun að félagið hygðist kaupa 45 prósent hlut í fyrirtækinu Alliance Boots, sem rekur meira en þrjú þúsund apótek og verslanir í ellefu löndum. Kaupverðið er 4,3 milljarðar punda, eða sem nemur um 860 milljörðum króna. Um er að ræða ein stærstu kaup í smásölugeiranum á alþjóðavísu undanfarið ár.

Facebook að þróa nákvæmustu andlitsgreiningar-tækni heims?

Facebook ætlar að kaupa sprotafyrirtækið face.com. Fyrirtækið sérhæfir sig í að greina og þekkja andlit á myndum. Þannig geta notendur facebook tagg-að vini sína á myndum með því einu að samþykkja tillögur sem forritið gerir.

Verðbólgan 2,8 prósent í Bretlandi

Verðbólga heldur áfram að falla í Bretlandi en hún mælist nú 2,8 prósent, samkvæmt tölum sem hagstofan breska birti í morgun. Verðbólgan fór hæst í 5,2 prósent í september í fyrra, sem skýrðist ekki síst af háu hrávöruverði á alþjóðamörkuðum.

Atvinnuleysi hjá ungu dönsku menntafólki slær met

Atvinnuleysi meðal ungs menntafólks hefur aldrei verið meira í sögunni í Danmörku. Í umfjöllun Berlingske Tidende um málið kemur fram að nær 30% af því fólki sem lauk háskólanámi fyrir ári síðan hefur enn ekki fengið atvinnu við hæfi.

Niðursveifla á mörkuðum í nótt

Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um 0,8% og Hang seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um 0,5%. Þá lækkaði tunnan af Brent olíunni um rúman dollar og er komin undir 96 dollara.

17. júní gæti orðið sögulegur fyrir Færeyjar

Dagurinn 17. júní 2012 gæti orðið söglegur fyrir Færeyjar. Þann dag var borinn settur í færeyska landgrunnið í áttundu tilraun til að finna færeysku olíuna. Þannig hefst frétt á færeyska netmiðlinum oljan.is en kínverski borpallurinn Cosl Pioneer mun bora næstu 4-5 mánuði.

Spænskir vextir rufu 7% múrinn í morgun

Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til tíu ára fóru yfir 7% markið í morgun og standa nú í 7,125%. Undanfarna daga hafa þessir vextir dansað rétt undir 7% mörkunum.

Fasteignaverð í Kína heldur áfram að lækka

Fasteignaverð í 55 af 70 borum í Kína lækkaði í síðasta mánuði miðað við sama mánuð árið á undan. Áhyggjur fara nú vaxandi af því að stjórnvöld hafi þrengt of mikið að fasteignamarkaðnum með aðgerðum sem í upphafi voru hugsaðar til þess að koma kæla hagkerfið niður, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá.

Uppsveifla á mörkuðum í Evrópu

Markaðir í Evrópu eru í uppsveiflu í fyrstu viðskiptum dagsins. Fylgja þeir þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt.

Burger King ætlar að opna 1000 staði í Kína

Hamborgarakeðjan Burger King stefnir að því að opna um þúsund veitingastaði í Kína á næstu fimm til sjö árum. Nú þegar eru 60 staðir í landinu en með þessu ætlar keðjan að hasla sér völl á þessum risastóra markaði. Keðjan á þó langt í land samanborið við samkeppnisaðilann McDonalds sem er með 1400 útibú í Kína. Á síðustu mánuðum hefur keðjan opnað hundruði staða í Rússlandi og Brasilíu. Yfir 12.500 Burger King-staðir eru víðsvegar um heiminn, flestir í Evrópu.

Meiri aðstoð í boði frá Seðlabanka Evrópu

Seðlabanki Evrópu er reiðubúinn til að styðja enn frekar við bankakerfi evrusvæðisins ef nauðsyn ber til. Mario Draghi, seðlabankastjóri segir að evrusvæðið verði enn tilbúið til að "leggja viðkvæmum bönkum til lausafé ef þörf er á."

Neyðaraðgerðir í Englandi vegna kreppunnar

Englendingar tilkynntu í gær að enskir bankar muni fá hjálp frá Seðlabanka landsins og Fjármálaráðuneytinu sem gæti numið allt að 80 milljörðum punda (rúmum 15.000 milljörðum króna).

Ekkert samkomulag hjá OPEC, olíuverðið lækkar áfram

Olíumálaráðherrar OPEC samtakanna náðu ekki samkomulagi um að draga úr olíuframleiðslu sinni á árlegum fundi samtakana í Vín sem lauk í gærdag. Því er reiknað með að olíuverðið haldi áfram að lækka.

Man. Utd. horfir til Bandaríkjanna eftir nýju hlutafé

Forsvarsmenn og eigendur enska knattspyrnufélagsins Manchester United skoða nú það möguleika afla nýs hlutafjár í Bandaríkjunum frekar en Singapore eins og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Félagið hyggst afla um einum milljarði punda í nýtt hlutafé, sem jafngildir um 200 milljörðum íslenskra króna.

SAAB verður einungis rafmagnsbíll í framtíðinni

SAAB fyrirtækið, sem um árabil hefur verið eitt af flaggskipum sænsks iðnaðar, hefur endanlega verið selt til kínversks-sænks fjárfestingafélags sem hyggst nýta sér vörumerkið fyrir framleiðslu á rafmagnsbílum. Fjárrfestingafélagið heitir National Electric Vehicle Sweden (NEVS).

Færeyingar ræða við Kínverja um umskipunarhöfn

Atvinnumálaráðherra Færeyja vill að á eyjunum verði umskipunarhöfn vegna norðurslóðasiglinga. Hann ætlar að taka málið upp í viðræðum við kínverska sendinefnd sem væntanleg er til Færeyja í næstu viku. Í viðtali við netmiðilinn oljan.fo segir Johan Dahl landsstýrismaður, en svo nefnast færeysku ráðherrarnir, að þegar skip fari að sigla yfir Norður-Íshafið liggi Færeyjar vel við sem umskipunarhöfn vegna siglingaleiðarinnar.

Niðursveifla á mörkuðum

Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt og evran féll í verði að nýju. Hlutabréfavísitölur í Japan og Hong Kong lækkuðu um rúmt prósent og heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði einnig.

Verk eftir danskan málara selt á tæplega 350 milljónir

Málverk eftir danska málarann Vilhelm Hammershöj var slegið á uppboði í London í gærdag fyrir tæplega 350 milljónir króna og er verkið þar með dýrasta málverkið sem selt hefur verið á uppboði í sögu Danmerkur.

Útflutningur eykst skarplega í Kína en samt merki um minni hagvöxt

Þrátt fyrir að útflutningur frá Kína inn á erlenda markaði hafi verið 15,3 prósentum meiri í maí en í sama mánuði í fyrra, eru áhyggjuraddir vegna hjöðnunar í Kína orðnar háværar. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að þessi mikla hækkun bendi ekki til mikils vaxtar heldur sé um að ræða skammtímasveiflu, sem sé ekki svo mikil þegar horft sé ársins í heild.

Spánverjar óska eftir neyðaraðstoð

Spánn hefur óskað eftir neyðaraðstoð vegna spænskra banka. Þetta gaf fjármálaráðherra Spánar upp eftir að fjármálaráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í dag.

Obama hefur áhyggjur af evrusvæðinu

Barack Obama, bandaríkjaforseti, sagði í gær að þjóðarleiðtogar í Evrópusambandinu þyrftu að taka erfiðar ákvarðanir til að forða evrusvæðinu undan kreppu. Hann sagði að djúp kreppa í Evrópu myndi hafa áhrif á bandarískan efnahag, enda er Evrópusambandið stærsti viðskiptaaðili Bandaríkjanna.

Liggur á að leysa vanda Spánar

Það liggur á að leysa vandamál Spánar miðað við orð Jean-Claude Juncker, sem stýrir fundum fjármálaráðherra Evrópusambandsins (ESB). Talið er að stjórnvöld í Brussel og Þýskalandi vilji afgreiða vandamál Spánar fyrir þingkosningar sem fara fram í Grikklandi 17. júní næstkomandi.

Spánn þarf 6.500 milljarða króna aðstoð

Bankar á Spáni þurfa að safna um 40 milljörðum evra til að mæta áföllum á mörkuðum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birtist í gærkvöldi. Spánn er miklum vandræðum en búist er við að ríkið leiti formlega eftir fjárhagslegri aðstoð Evrópusambandsins í dag. Spán vantar peninga til að endurfjármagna bankakerfið í landinu sem er lamað. Hingað til hafa yfirvöld landsins aftur á móti þvertekið fyrir að þörf sé á aðstoð vegna bankakerfisins.

Þrýst á spænsk stjórnvöld um að leita hjálpar

Vaxandi þrýstingur er nú á spænsk stjórnvöld meðal evruríkja um að þau leiti á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins og óski formlega eftir fjárhagsaðstoð vegna slæmrar stöðu fjármálakerfisins í landinu og mikilla ríkisskulda. Á vef Wall Street Journal segir að embættismenn ríkja Evrópusambandsins muni funda um helgina vegna alvarlegrar stöðu Spánar og reyna að komast að niðurstöðu fyrir mánudaginn nk. um hvað gera skuli.

Heimsmarkaðsverð á olíu fellur hratt að nýju

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið hratt að nýju í nótt. Verðið á bandarísku léttolíunni hefur lækkað um 3% síðan í gær og stendur í rúmum 82 dollurum á tunnuna. Verðið á Brent olíunni hefur lækkað um 2% á sama tíma og kostar tunnan af henni nú 98 dollara.

Kínverjar lækka stýrivexti

Stjórnvöld í Kína lækkuðu stýrivexti í landinu í gær. Það er tilraun til að örva hagvöxt landsins. Hagvöxtur í Kína hefur verið mikill undanfarin ár. Nú hefur hægt nokkuð á honum en hann var 8,1% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við ársfjórðung árið í fyrra. Stýrivaxtalækkunin er hugsuð til að örva lánastarfsemi í landinu og auka þar með hagvöxtinn. Þar í landi hefur lánastarfsemi staðið undir stórum hluta hagvaxtarins.

Spænska ríkið fær sex prósent vexti

Spænska ríkið aflaði lánsfjár á mörkuðum í dag en á þriðjudaginn var frá því greint að lánamarkaðir væru nú lokaðir fyrir spænska ríkinu og fjármálafyrirtækjum með öllu.

Sjá næstu 50 fréttir