Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Titringur í Evrópu vegna efnahagsáfalls á Spáni Markaðir í Evrópu hafa allir verið á niðurleið í dag vegna frétta frá Spáni um að skuldabréfaútboð hafi mistekist hrapallega. Samkvæmt niðurstöðum útboðsins er lánsfjárkostnaður tvöfalt hærri en þegar ríkið gaf síðast út skuldabréf. Búist er við því að matsfyrirtækið Moodys muni lækka mat á 21 spænskum banka í kjölfar niðurstöðunnar. Staðan er svo viðkvæm að spænska ríkisstjórnin hefur þurft að gefa út yfirlýsingu um að bankakerfið hafi ekki orðið fyrir áhlaupi. 17.5.2012 14:03
Frakkar munu ekki samþykkja áætlanir ESB að óbreyttu Nýr fjármálaráðherra Frakklands ítrekaði í sjónvarpsviðtali í gær að ný sósíalistastjórn Frakklands myndi ekki staðfesta fjárhagsáætlanir Evrópusambandsins óbreyttar. Ráðherrann, Pierre Moscovici, segir að áætlanirnar verði að miða að því að auka hagvöxt til að Frakkar geti staðfest hann. Fjárhagsáætlunin felur hins vegar aðallega í sér niðurskurð á fjárlögum aðildarríkja. Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, lagði mikla áherslu á það í aðdraganda forsetakosninganna að niðurskurður myndi einn og sér ekki bæta efnahagsástandið á evrusvæðinu. 17.5.2012 09:30
Diablo III loks lentur Tólf ára bið spilara lauk þegar dyr tölvuleikjaverslana víða um heim opnuðu í gærkvöld. Þúsundir spilara þustu þá inn og tryggðu sér eintak af einum eftirsóttasta tölvuleik allra tíma, Diablo III. 15.5.2012 22:00
Áhlaup á gríska banka - 700 milljónir evra teknar út Almenningur í Grikklandi tók út 898 milljónir evra af reikningum grískra banka í gær samkvæmt upplýsingum sem forseti Grikklands, Karolos Papoulias, lét þingmenn hafa í dag og vitnað er til á vef Wall Street Journal í dag. 15.5.2012 21:18
Amazon uppfærir Kindle vörulínuna Vefverslunin Amazon mun uppfæra spjaldtölvur sínar í sumar. Talið er að fyrirtækið muni kynna nýtt Kindle lesbretti sem og nýja og stærri Kindle Fire spjaldtölvu. 15.5.2012 12:10
Facebook hækkar verð á hlutabréfum sínum Samskiptamiðillinn Facebook hefur hækkað áætlað verð á hlutabréfum sínum úr 28 til 35 dollurum í 34 til 38 dollara. Gangi hlutafjárútboðið að óskum mun virði fyrirtækisins fara yfir 100 milljarða dollara. 15.5.2012 11:44
Moody's lækkar ítalska banka Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í gærkvöldi lánshæfi 26 banka á Ítalíu á einu bretti. Þar á meðal eru stærstu bankar landsins, Unicredit og Intesa Sanpaolo. Samdráttur hefur verið á Ítalíu eins og víða annars staðar og ríkisstjórnin stendur í viðamiklum breytingum á opinbera geiranum. Bankarnir eru því sagðir mun viðkvæmari fyrir áföllum. Tíu af bönkunum 26 voru færðir í svokallaðan ruslflokk en stóru bankarnir tveir, fóru úr einkunninni A3 og niður í A2. 15.5.2012 10:43
Krugman: Evruragnarrök hugsanlega framundan Paul Krugman, prófessor í hagfræði og Nóbelsverðlaunahafi árið 2008, spáir "evruragnarrökum“ á næstu mánuðum, ekki síst vegna óumflýjanlegs falls Grikklands með tilheyrandi hliðaráhrifum á nágrannaríkin Spán og Ítalíu. Hann spáir því að þetta gerist á næstu mánuðum, ekki árum. 15.5.2012 08:59
Rauðar tölur lækkunar á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu með rauðum tölum lækkunar í dag en áhyggjur fjárfesta vegna pólitískrar óvissu í Suður-Evrópu, þar helst Grikklandi, hafa farið vaxandi undanfarin misseri. Þannig lækkaði Nasdaq-vísitalan í Bandaríkjunum um 0,53 prósent strax við opnun, og var lækkunin öðru fremur rakin til svartsýni á stöðu mála á mörkuðum í Evrópu. 14.5.2012 16:38
The Avengers rýfur milljarð dollara múrinn Ofurhetjumyndin The Avengers er nú fjórða vinsælasta kvikmynd allra tíma en hún hefur halað inn rúmlega milljarði dollara á heimsvísu. 14.5.2012 14:40
Apple hefur selt 370 þúsund iphone á dag í hálft ár Hugbúnaðar-, tölvu- og fjarskiptarisinn Apple hefur átt ótrúlegri velgengni að fagna undanfarna tvo ársfjórðunga, samkvæmt opinberum rekstrarupplýsingum sem fyrirtækið hefur skilað til kauphallarinnar í New York. Mestu munar um sölutekjur af iphone-símunum og ipad-spjaldtölvunum. Í rekstrartölum fyrir síðasta ársfjórðung ársins 2011, sem tekur til fjórtán vikna rekstrartímabils sem lauk um síðustu áramót, seldust 37 milljónir iphone-síma en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs seldust 35 milljónir iphone-síma. Salan jafngildir því að 370 þúsund iphone-símar hafi selst á hverjum degi á þessu ríflega hálfs árs rekstrartímabili (196 dagar) í sögu fyrirtækisins. 14.5.2012 14:19
Meðstofnandi Facebook afsalar sér bandarískum ríkisborgararétti Eduardo Saverin, meðstofnandi Facebook, hefur afsalað sér bandarískum ríkisborgararétti. Þetta gerir hann aðeins nokkrum dögum áður en samskiptamiðillinn fer á hlutabréfamarkað. 14.5.2012 14:15
Apple breytir auglýsingum sínum - iPad ekki 4G Héðan í frá verður nýjasta spjaldtölva Apple, iPad, ekki auglýst sem 4G jaðartæki. Fyrirtækið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir auglýsingar sína eftir að í ljós kom að eiginleikar fjórðu kynslóðar farsímanetkerfa eru mismunandi milli landa — þannig er óvíst hvort að iPad geti í raun notast við 4G netkerfi mismunandi landa. 14.5.2012 13:54
Uppsagnir hjá JP Morgan í dag Búist er við því að tilkynnt verði um afsagnir háttsettra stjóra hjá stórbankanum JP Morgan síðar í dag. 14.5.2012 12:22
Hlutabréf falla skarplega í Evrópu Hlutabréf í Evrópu hafa fallið skarplega í verði í morgun, en ástæðan er vaxandi hræðsla á mörkuðum við það að Grikkir hverfi úr evrusamstarfinu og taki upp drökmuna á nýjan leik. Samræmd hlutabréfavísitala fyrir Evrópu, DAX, hefur lækkað um 2,3 prósent það sem af er degi, en mesta lækkunin er á mörkuðum í Suður-Evrópu. 14.5.2012 09:21
Rætt um það í fullri alvöru að Grikkland yfirgefi evruna Starfsmenn Seðlabanka Evrópu ræða nú um það í fullri alvöru, að Grikkland yfirgefi evrusvæðið, að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC, og taki upp drökmuna á nýjan leik. 13.5.2012 22:27
Jamie Dimon: Svona á ekki að stunda viðskipti "Svona á ekki að stunda viðskipti," sagði Jamie Dimon, forstjóri bandaríska bankans JP Morgan Chase, í viðtali við New York Times í dag, og vitnaði til viðskipta bankans með fyrirtækjaskuldabréf sem bankinn tapaði tveimur milljörðum dala á. 12.5.2012 11:34
iTV er raunverulegt - Foxconn undirbýr verksmiðjur sínar Stjórnarformaður Foxconn, Terry Gou, hefur staðfest að fyrirtækið sé nú að undirbúa framleiðslulínur sína fyrir fjöldaframleiðslu á iTV sjónvarpstækinu sem Apple hefur þróað síðustu ár. 11.5.2012 22:00
Levin: Sýnir að það verður að herða regluverkið Þetta sýnir hversu nauðsynlegt það er, að herða reglurverkið þegar kemur að viðskiptum bankanna sem eru of stórir til að falla," segir öldungadeildarþingmaðurinn Carl Levin, í viðtali við New York Times, vegna taps risabankans JP Morgan upp á tvo milljarða dala sem tilkynnt var um eftir lokun markaða í gær. Það er tilkomið vegna viðskipta með bandarísk fyrirtækjaskuldabréf, en bankinn veðjaði á að bandarískur efnahagur myndi rétta meira úr kútnum en raunin varð. 11.5.2012 09:49
JP Morgan tapar ótrúlegum upphæðum Stærsti banki Bandaríkjanna, JP Morgan Chase hefur greint frá tapi upp á heila tvo milljarða dollara eða 250 milljarða króna vegna flókinna hlutabréfaviðskipta sem ekki gengu upp. Fregnirnar koma flestum á óvart en búist er við að heildartap bankans á öðrum ársfjórðungi muni nema 800 milljónum dollara eða um 100 milljörðum króna. 11.5.2012 06:33
Facebook mun opna vefverslun Samskiptavefurinn Facebook mun opinbera vefverslun sína á næstu vikum. Áhersla verður lögð á smáforrit fyrir snjallsíma en fyrirtækið hefur hingað til átt í erfiðleikum með að afla tekna í gegnum snjallsímanotkun notenda sinna. 10.5.2012 12:49
Heilaskurðaðgerð á Twitter Læknar við Memorial Hermann-sjúkrahúsið í Houston framkvæmdu heilaskurðaðgerð í beinni útsendingu á Twitter-síðunni í gær. 10.5.2012 10:15
Pólitískur titringur í Evrópu skekur markaði Pólitískur titringur í Evrópu og vaxandi hætta á því að ríkissjóðir í Suður-Evrópu, einkum Grikkland og Spánn, lendi í greiðsluvanda, skók markaði í dag að því er segir á vef Wall Street Journal, en víðast hvar einkenndust hlutabréfamarkaðir af rauðum tölum lækkunar. Þannig lækkaði FTSE 100 vísitala hlutabréfamarkaða í Evrópu um 1,78 prósent og Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum lækkaði um 0,59 prósent. 8.5.2012 21:53
Ástralar grípa til aðgerða vegna skulda Fjármálaráðherra Ástralíu, Wayne Swan, segir að ríkisfjármálum Ástralíu verði komið á réttan kjöl á næstu tveimur árum, en stefnt er að því að rekstrarafgangur verði upp á 1,5 milljarða Ástralíudala, sem jafngildir um 187,5 milljörðum króna. 8.5.2012 11:48
Auðugur Dani er annar stærsti landeigandi á Bretlandseyjum Danskur auðmaður er orðinn næststærsti jarðeigandinn á Bretlandseyjum. Hann á orðið meiri jarðir þar en Karl Bretaprins. 7.5.2012 11:17
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkar áfram í Danmörku Gjaldþrotum fyrirtækja í Danmörku fækkaði áfram í apríl s.l. þriðja mánuðinn í röð. Hafa gjaldþrotin ekki verið færri í einum mánuði síðan í árslok árið 2008 að því er kemur fram í nýjum tölum frá dönsku hagstofunni. 7.5.2012 09:12
Allir Evrópumarkaðir opnuðu í rauðum tölum Hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu allir í rauðum tölum í morgun og fylgdu þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt. 7.5.2012 08:16
Hlutabréfamarkaðir í mínus, evran fellur og olíuverð lækkar Fyrstu afleiðingar kosningaútrslitanna í Frakklandi og Grikklandi voru að hlutabréfamarkaðir í Asíu tóku dýfu í nótt, evran veiktist og heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að falla. 7.5.2012 06:31
Besta frumsýningarhelgi allra tíma - stefnan tekin á Avatar Frumsýningarhelgi kvikmyndarinnar "The Avengers“ í Bandaríkjunum var vægast sagt góð - myndin sló öll met og þénaði rúmlega 200 milljón dollara eða um 25 milljarða króna. 6.5.2012 20:28
Buffet ætlar ekki að fjárfesta í Facebook Warren Buffet, einn þekktasti og ríkasti fjárfestir heims, segir að hann ætli ekki að kaupa hlutabréf í Facebook þegar fyrirtækið fer á hlutabréfamarkað. Þetta sagði Buffet, sem er stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Berkshire Hathaway, rétt áður en hluthafafundur hófst í Omaha í Nebraska í Bandaríkjunum. Fjöldi fjárfesta er þar samankominn til þess að hlýða á Buffet fjalla um hugleiðingar sínar varðandi fjárfestingar og stöðu markaðarins. 6.5.2012 19:58
David Beckham er ríkasti íþróttamaðurinn á Bretlandi David Beckham er ríkasti íþróttamaðurinn á Bretlandi samkvæmt nýjum lista sem Sunday Times hefur tekið saman. Hinn 37 ára gamli knattspyrnumaður, sem leikur með LA Galaxy, á eignir að andvirði 160 milljónir sterlingspunda, eða tæpa 33 milljarða króna. 6.5.2012 17:47
Bandaríkjamenn óðir í ofurhetjurnar Ofurhetjurnar í „The Avengers" hafa slegið enn eitt metið. Kvikmyndin var frumsýnd í Bandaríkjunum í gær og halaði hún inn 80.5 milljón dollurum eða rúmum 10 milljörðum króna en það er önnur besta opnun kvikmyndasögunnar. 5.5.2012 17:23
Fréttaskýring: Söguleg skráning FB á markað Stefnt er að skráningu Facebook á markað 18. maí næstkomandi en samfélagsmiðillinn verður með einkennið FB á markaðsvaktinni í Bandaríkjunum. Skráningin er um margt söguleg en um er að ræða langsamlega umfangsmestu skráningu internetfyrirtækis í sögunni þegar horft er til markaðsvirðis við skráningu. 4.5.2012 23:03
Atvinnuleysi mælist 8,1 prósent í Bandaríkjunum Um 115 þúsund störf urðu til í Bandaríkjunum í apríl, samkvæmt tölum sem birtar voru í morgun, en atvinnuleysi mælist nú 8,1 prósent. Það er minnkun frá stöðunni sem var í mars, en þá mældist atvinnuleysið 8,2 prósent. 4.5.2012 13:32
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu þessa stundina og hefur verðið verið í frjálsu falli frá því síðdegis í gærdag. 4.5.2012 10:24
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðfellur Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið síðasta sólarhringinn og er nú komið á svipaðar slóðir og skömmu eftir áramótin. 4.5.2012 06:37
Samsung Galaxy S III er mættur Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti hulunni af nýjasta snjallsíma sínum í dag, Galaxy S III. Samsung er stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar og eru Galaxy símarnir vinsælustu vörur fyrirtækisins. 3.5.2012 23:30
Facebook metið á 85 til 95 milljarða dala Verðmæti Facebook er á bilinu 85 til 95 milljarðar dala, samkvæmt því verði sem hlutir í fyrirtækinu verða skráðir á, að því er upplýst var í dag. Hlutir í fyrirtækinu, sem líklega verður skráð á markað undir einkenninu FB hinn 18. maí, verða skráðir á bilinu 28 til 35 dali. 3.5.2012 22:04
Ein af hverjum fimm tölvum sýkt Samkvæmt niðurstöðum úr nýrri rannsókn inniheldur ein af hverjum fimm Mac-tölvum einhverja tegund óværu. Það er töluvert hærra hlutfall en fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós. 3.5.2012 20:42
Skuldabréfaútgáfa spænska ríkisins á ríflega 4 prósent vöxtum Spænska ríkið lauk í dag við skuldabréfaútgáfu upp á liðlega 2,5 milljarða evra á að meðaltali 4,04 prósent vöxtum, að því er breska ríkisútvarpið BBC greindi frá í dag. Það eru töluvert hærri vextir en ríkinu bauðst í síðustu útgáfu en þá voru vextirnir 2,6 prósent. 3.5.2012 14:29
Gleymd auglýsing Apple komin í leitirnar Gleymt og grafið framhald auglýsingarinnar „1984" sem Apple framleiddi hefur nú komið í leitirnar. Auglýsingin ber vitni um það að jafnvel Steve Jobs gat gert mistök. 3.5.2012 13:18
„Áratugur tækifæra“ framundan í Kanada Kanada hefur komist vel frá kreppunni á heimsvísu, á undanförnum árum, og er horft til þess að næsti áratugur verði góður fyrir landið, ef tækifærin eru nýtt. 3.5.2012 09:12
Málverkið Ópið selt fyrir metfé hjá Sotheby´s Málverkið Ópið eftir norska málarann Edvard Munch var selt á 120 milljónir dollara eða um 15 milljarða króna á uppboði hjá Sotheby´s í New York í gærkvöldi. 3.5.2012 06:57
Danska flugfélagið Cimber Sterling er gjaldþrota Danska flugfélagið Cimber Sterling er orðið gjaldþrota. Félagið hét áður Sterling og var þá í eigu Íslendinga. 3.5.2012 06:53
Kalt stríð á tölvuleikjamarkaðinum um jólin Það stefnir í kalt stríð á tölvuleikjamarkaðinum um jólin. Tölvuleikjaframleiðandinn Activision boðaði komu tölvuleiksins Call of Duty: Black Ops 2 um miðbik nóvember en um svipað leyti fer Halo 4 í almenna sölu. 2.5.2012 13:53