Fleiri fréttir

Allt að 600 tonn af kjöti til Japan

Hvalur hf. hefur flutt á milli 500 - 600 tonn af langreyðakjöti til Japan það sem af er þessu ári. Þetta fullyrðir japanska fréttastofan Kyodo News. Þar er fullyrt að árlega sé markaðssett um 4000 tonn af hrefnukjöti á ári. Langreyðakjötið frá Íslandi komi til með að hafa áhrif á verðlagið á hvalkjöti á markaðnum.

Mikið magn af vopnum fannst á hafnarsvæði Mærsk í Lagos

Tollverðir í Lagos í Nígeríu hafa fundið mikið magn af vopnum á hafnarsvæði danska skipafélagsins A.P. Möller-Mærsk í borginni. Um er að ræða 13 gáma sem fullir eru af sprengjuvörpum, handsprengjum og skotfærum.

Bandaríkin eru á leið í fjárhagslegt járnbrautarslys

Hagfræðingurinn Nouriel Roubini segir að hagkerfi Bandaríkjanna sé á leiðinni í fjárhagslegt járnbrautarslys. Þetta kemur fram í grein sem Roubini skrifar í Financial Times í dag. Hagfræðingurinn er þekktur undir viðurnefninu dr. Doom en hann sá m.a. fyrir fjármálakreppuna árið 2007.

Windows og Office mala gull fyrir Microsoft

Hagnaður Microsoft jókst um 51% á þriðja ársfjórðungi ársins einkum vegna aukinnar sölu á Windows og Office. Þessi forrit hafa löngum malað gull fyrir tölvurisann á undanförnum árum.

Leiðtogar ESB samþykkja harðari evru-reglur

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komið sér saman um að setja harðar reglur sem miða að því að styrkja evrusvæðið og minnka líkurnar á frekari fjármálakreppum.

Ólíklegt að brotleg lönd verði svipt atkvæðisrétti

Fulltrúar Þýskalands og Frakklands reyna að fá fulltrúa annarra ríkja Evrópusambandsins (ESB) til að styðja nýjar reglur um ríkisútgjöld sem nauðsynlegar séu til að forða annarri skuldakreppu í Evrópu.

Uppljóstrari fær nær 11 milljarða úr Glaxo-máli

Fyrrum starfsmaður breska lyfjarisans GlaxoSmithKline (GSK), Cheryl Eckard, fær 96 milljónir dollara, eða nær 11 milljarða kr. í verðlaun fyrir að hafa ljóstrað upp um lögbrot lyfjarisans í tengslum við rekstur lyfjaverksmiðju í Puerto Rico.

Minnsta atvinnuleysi í Þýskalandi í 19 ár

Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í Þýskaland síðan árið 1991. Tölurnar um atvinnuleysi í Þýskalandi verða gerðar opinberar á morgun. Ursula von der Leyen atvinnumálaráðherra landsins er hinsvegar svo ánægð með stöðuna að hún greindi frá tölunum á blaðamannafundi í dag.

GlaxoSmithKline fær risasekt vegna sölu gallaðra lyfja

Breski lyfjarisinn GlaxoSmithKline hefur fengið á sig samtals 750 milljón dollara, eða 84 milljarða kr. sekt og skaðabætur í Bandaríkjunum vegna sölu á m.a. menguðu barnakremi og óvirku þunglyndislyfi. Salan á þessum lyfjum stóð árum saman þótt yfirstjórn GlaxoSmithKline væri kunnugt um vandamálin tengd þeim.

Samið um fjármálin við gerð myndarinnar Hobbitinn

Stjórnvöld á Nýja Sjálandi og Warner Bros. hafa náð samkomulagi um fjármálin við gerð myndarinnar Hobbitinn eftir sögu J. R. R. Tolkien. Þar með er tryggt að myndin verður tekin upp á Nýja Sjálandi og endi er bundinn á tveggja mánaða óvissu í málinu.

Kínverjar í viðræðum um kaup á Elkem

Ríkisrekna kínverska efnagerðin China National BlueStar á nú í viðræðum við Orkla í Noregi um möguleg kaup á Elkem sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group mun styðja við bakið á Kínverjunum.

Nordea hagnast vel á Pandóru

Nordea bankinn skilaði ágætu uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung ársins. Nordea hagnaðist vel á markaðsskráningu skartgripaframleiðandans Pandóru en 30% af tekjum bankans í Danmörku stafa af hagnaðinum frá Pandóru.

Auðvelt að hakka Facebooksíður með nýju forriti

Með nýju forriti er mjög auðvelt að hakka sig inn á Facebooksíður, Twitter eða Google. Þetta kemur fram í Ekstra Bladet. Um er að ræða forritið Firesheep en hægt er að keyra það á Firefox.

Gullspákaupmenn hegða sér eins og merðir á spítti

Gulleignir fjárfesta og spákaupmanna eru orðnar á stærð við gullforða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Peter Warren forstjóri fjárfestingarsjóðsins Warren Capital segir að þetta sé staða sem geti skapað mikinn óróleika á markaðinum þar sem margir af spákaupmönnunum hegði sér eins og merðir á spítti.

Látnar stjörnur moka inn seðlum

Sænski rithöfundurinn Stieg Larsson er nýtt nafn á topp tíu lista Forbes í ár yfir þær látnu stjörnur sem haldið hafa áfram að moka inn hvað mestum seðlum eftir andlát sitt. Michael Jackson heldur toppsætinu á þessum lista eins og raunar flestir áttu von á.

Samkeppniseftirlitið í Sviss rannsakar BMW

Samkeppniseftirlitið í Sviss hefur hafið rannsókn á bílaframleiðandanum BMW. Eftirlitið telur að BMW hafi komið í veg fyrir sölu á BMW bifreiðum til svissneskra ríkisborgara sem búsettir eru á EES svæðinu þar með talið Íslandi.

Þúsundir milljarða á dauðum reikningum í Danmörku

Danskar lífeyriskrónur gufa upp á reikningum sem hvorki er borgað inn á eða út af. Reiknað er með að um 500 milljarðar danskra kr. eða um 10.000 milljarðar kr. liggi inni á þessum „dauðu“ lífeyrissjóðsreikningum eins og það er orðað í dönskum fjölmiðlum í morgun.

Danir spara milljarða sem aldrei fyrr

Danskar fjölskyldur settu 8,6 milljarða danskra kr. eða um 180 milljarða kr. aukalega inn á bankareikinga sína á milli ágúst og september í ár. Þar með hefur sparnaður Dana slegið nýtt met.

Norski olíusjóðurinn tapar stórfé á HQ Bank

Norski olíusjóðurinn hefur tapað stórfé á kaupum sínum í sumar á hlutum í sænska bankanum HQ Bank. Sænska fjármálaeftirlitið yfirtók HQ Bank í lok ágúst og síðan var bankinn seldur Carnegie bankanum.

Suður- Kóreumenn hættir við að kaupa Elkem í Noregi

Stálfyrirtækið Posco í Suður-Kóreu er hætt við að kaupa Elkem í Noregi sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Raunar segir forstjóri Posco að þeir hafi aldrei í alvöru verið að íhuga að kaupa Elkem.

LVMH kaupir 14% hlut í Hermes

Franska lúxusvörukeðjan LVMH ætlar að kaupa um 14% hlut í Hermes veskjaframleiðandanum á 1,45 milljónir evra. LVMH ætlar samt hvorki að reyna yfirtöku á fyrirtækinu né hafa áhrif á rekstur þess, eftir því sem Reuters fréttastofan fullyrðir.

Sex.com slegið á tæpar 1500 milljónir

Sex.com, sem er jafnan álitið vera á meðal verðmætustu léna í heiminum, var nýlega slegið á 13 milljónir bandaríkjadala á uppboði. Upphæðin nemur tæplega 1500 milljónum króna. Eigandi lénsins, fyrirtækið Escom LLC, er gjaldþrota. Það var fyrirtækið Clover Holdings Ltd sem var hæstbjóðandi í lénið. Escom keypti lénið á 14 milljónir bandaríkjadala árið 2006, að því er ABC fréttastofan greinir frá.

Hamborgarar gáfu vel af sér

Hagnaður McDonald's hamborgarakeðjunnar jókst á þriðja ársfjórðungi. Ástæðan er rakin til breytinga á matseðli McDonalds í Bandaríkjunum og lengri opnunartíma í Evrópu.

Nokia sparkar 1800 starfsmönnum

Þótt afkoma Nokia fyrirtækisins sé betri en vænst hafi verið til og hlutabréf í fyrirtækinu hafi hækkað um 8,6 prósent, ætla stjórnendur þess að skera verulega niður í rekstri.

Milljónamæringum fjölgar um 35.000 í Noregi milli ára

Samkvæmt álagningarseðlum skattsins í Noregi fjölgaði milljónamæringum í landinu, mælt í norskum krónum, um 35.000 í fyrra miðað við árið áður. Yfir 60.000 Norðmenn voru með meir en eina miljón norskra kr. í tekjur í fyrra.

Sögufrægt hótel í New York til sölu

Hið sögufræga Chelsea hótel í New York er til sölu. Á þessu hóteli samdi Dylan Thomas ljóð sín, söngkonan Janice Joplin bjó þar löngum og Sid Vicious bassaleikari Sex Pistols framdi sjálfsmorð þar.

Tekjur Boeing námu 94 milljörðum

Hagnaður varð á rekstri Boeing verksmiðjanna á þriðja ársfjórðungi. Fyrirtækinu bárust pantanir um framleiðslu á 221 nýrri þotu á tímabilinu.

Skorið niður hjá hirð drottningar

Elísabet II, drottning Breta, má sætta sig við frystingu launa á næsta ári og árið 2012 er gert ráð fyrir að framlög breska ríkisins til hirðarinnar allrar verði skorin niður um 14% árið eftir. Þetta kemur fram á norska viðskiptavefnum e24.

Mesta eignaaukning hjá vogunarsjóðum í þrjú ár

Á þriðja ársfjórðungi ársins hafa vogunarsjóðir séð fram á mestu aukningu á eignum undir þeirra stjórn á síðustu þremur árum. Að meðaltali jukust eignir vogunarsjóða heimsins um rúm 5% á ársfjórðungnum. Í heildina nemur aukningin 120 milljörðum dollara eða ríflega 13.000 milljörðum kr.

Búist við að um 500 þúsund missi vinnuna

Búist er við því að um 500 þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi missi vinnuna á næstunni, samkvæmt tillögum sem David Cameron forsætisráðherra er með á teikniborðinu.

L´Oreal losar sig við Andie MacDowell

Leikkonan Andie MacDowell er ekki lengur andlit snyrtivörurisans L´Oreal. Hin fimmtuga bandaríska leikkona var látin róa og í staðinn hefur L´Oreal ráðið hina tíu árum yngri bresku leikkonu Rachel Weisz.

SFO hefur lokið rannsókn á JJB Sports og Sports Direct

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar eða Serious Fraud Office (SFO) hefur lokið rannsókn sinni á viðskiptum JJB Sports og Sports Direct. SFO ákvað að gefa ekki út ákærur en segir í tilkynningu að rannsókn á einstaklingum sem tengdust þessum viðskiptum og fyrirtækjum haldi áfram.

Sjá næstu 50 fréttir