Fleiri fréttir

Óttinn um þjóðargjaldþrot Írlands aldrei meiri

Óttinn um þjóðargjaldþrot Írlands hefur aldrei verið meiri í sögunni. Skuldatryggingaálag Írlands er komið í 428 punkta og hefur ekki verið hærra síðan mælingar á þessu álagi hófust.

Kína orðið stærsti markaðurinn fyrir Bordeaux vín

Kína hefur velt Bretlandi og Þýskalandi úr sessi sem stærsti útflutningsmarkaður fyrir frönsk Bordeaux vín í heiminum, mælt í verðmæti. Kínverjar eru í auknum mæli að fá smekk fyrir góðum vínum.

Boeing gerir 430 milljarða samning við Rússa

Bandaríski flugvélarisinn Boeing hefur gert samning upp á 3,7 milljarða dollara, eða um 430 milljarða kr., við rússneska ríkisfyrirtækið Russian Technologies. Um er að ræða sölu á 50 Boeing 737 vélum sem Russian Technologies leigir síðan til Aeroflot flugfélagsins.

Enn finnast verulegar olíulindir í Norðursjó

Olíufélagið Lundin Petroleum hefur tilkynnt um nýjan olíufund í Norðursjó. Um verulegt magn af olíu er að ræða en olían fannst í norskum hluta Norðursjávar á svæði sem kallast Greater Luno.

Kaupþing selur breska veitingahúsakeðju á 3,5 milljarða

Skilanefnd Kaupþings hefur í samvinnu við þýska bankann Commerzbank selt bresku veitingahúsakeðjuna Ha Ha Bar & Grill fyrir 19,5 milljónir punda eða um 3,5 milljarða kr. Kaupandinn er kráa- og veitingahúsakeðjan Mitchells & Butler.

Ekkert lát á verðhækkunum á gulli

Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og fór únsan í rétt tæpa 1.280 dollara í morgun. Hefur verðið aldrei verið hærra í sögunni.

Lífeyrissjóðsrisar hafa keypt FIH bankann

Tveir af stærstu lífeyrissjóðum Danmerkur, ATP og PFA, ásamt sænska lífeyrissjóðs/tryggingarfélagsrisanum Folksam hafa gengið frá kaupunum á danska bankanum FIH sem var í eigu skilanefndar Kaupþings.

Metatvinnuleysi hámenntaðs fólks í Danmörku

Metfjöldi hámenntaðs fólks, eins og lögfræðingar og hagfræðingar, skráðu sig atvinnulausa í Danmörku í ágúst s.l. Nú eru 2.424 manns sem teljast hámenntaðir á atvinnuleysisskrá í landinu og hefur fjöldi þeirra ekki verið meiri síðan árið 2003.

Olíuæði geysar á Grænlandi

Eftir að skoska olíufélagið Cairn fann gas undan vesturströnd Grænlands hafa 12 önnur olíufélög rokið til og tryggt sér leyfi til olíuleitar á hafinu úti fyrir Uummannaq á norðvesturhluta landsins.

Telur silfur vera betri fjárfestingarkost en gull

Heimsmarkaðsverð á gulli hefur aldrei verið hærra í sögunni en verðhækkanir á gulli hafa valdið því að silfur hefur einnig hækkað í verði og hefur ekki verið hærra síðan árið 2008. Greinandi telur að silfur sé nú betri fjárfestingarkostur en gull.

Heimilað að banna skortsölu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ESB, samþykkti í gær tillögu sem veitir eftirlitsstofnunum innan ESB umboð til að grípa til aðgerða gegn skortsölu þegar nauðsyn krefur.

Candy bræðurnir selja þakíbúð fyrir 36 milljarða

Candy bræðurnir bresku, fyrrum viðskiptafélagar Kaupþings, hafa selt þakíbúð í Mónakó fyrir rétt tæp 200 milljón pund eða um 36 milljarða kr. Á vefsíðunni epn.dk segir að um metverð sé að ræða í íbúðasölu.

Dönsk stjórnvöld ráða því hver kaupir FIH bankann

Dönsk stjórnvöld munu eiga lokaorðið um hver fær að kaupa FIH bankann sem skilanefnd Kaupþings er nú með í söluferli. Tveir hópar fjársterkra aðila berjast um að fá að kaupa bankann, aðallega danskir lífeyrissjóðir.

Kínverjar ætla sér forystu í framleiðslu vistvænna bíla

Kínversk stjórnvöld kynntu í síðasta mánuði áform sín um að taka forystuna á alþjóðavísu í framleiðslu umhverfisvænna rafbíla og tvinnbíla, auk þess sem þau ætla að loka tvö þúsund orkufrekum verksmiðjum fyrir septemberlok til að tryggja umhverfisvænni nýtingu orkunnar. Einnig hafa kínversk stjórnvöld ákveðið að orkufrekur iðnaður á borð við áliðnaðinn fái ekki lengur niðurgreidda raforku.

Mafían fjárfesti í endurnýjanlegri orku

Lögreglan á Ítalíu hefur lagt hald á eignir að andvirði 227 milljarða króna hjá ítölskum viðskiptajöfri sem grunaður er um tengsl við mafíuna. Þetta er hæsta upphæðin sem tekin hefur verið vegna máls tengdu mafíunni, að því er segir á vef BBC.

Schwarzenegger fær 4700 milljarða lán frá Japan

Samgöngumálaráðherra Japan ætlar að bjóða Kalíforníufylki lán til þess að leggja hraðlestarbraut. Arnold Schwarzenegger var staddur í Omiya í Japan í dag. Þar prófaði hann að ferðast um í hraðlest líkt og þeirri sem til stendur að leggja í Kalíforníu og kvaðst vera mjög hrifinn af slíkri tækni.

Fjölskylda Marleys varð af milljónum dala

Ekkja og níu börn reggísöngvarans Bobs Marley urðu af milljónum bandaríkjadala þegar að dómur á Manhattan úrskurðaði á föstudag að útgáfurétturinn af fimm helstu plötum hans tilheyrðu útgáfufyrirtækinu en ekki fjölskyldunni.

Deutsche Bank eykur hlut sinn í Deutsche Postbank

Deutsche Bank tilkynnti i dag að þeir ætla að ráðast í 12,5 milljarða dala skuldabréfaútboð. Peningana ætla þeir einkum að nota til þess að kaupa hlut í Deutsche Postbank. Hlutina í Deutsche Postbank ætla þeir að kaupa á 24 og 25 evrur á hlut. Deutsche Bank á í dag rétt tæplega 30% í Deutsche Postbank.

OECD: Bakslag komið í efnahagsbatann

Samkvæmt efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) gæti verið að draga hraðar og meira úr efnahagslegum bata en áður var gert ráð fyrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri áfangaskýrslu stofnunarinnar sem birt var í morgun.

Launaveisla í dönskum bönkum

Þrátt fyrir almennar þrengingar á danska vinnumarkaðinum hafa starfsmenn danskra banka upplifað mikla launaveislu á síðasta ári. Laun þeirra hækkuðu um allt að 9% að meðatali á árinu meðan að aðrir almennir launþegar þurftu að láta sér nægja hækkanir upp á 2% til 3%.

Á ekki von á öðru samdráttarskeiði

Efnahagslífið í heiminum tekur hægar við sér en spáð var. Annað samdráttarskeið er þó ólíklegt, samkvæmt spám Efnahags- og framfarastofnunarinnar.

Lego selst fyrir milljarða

Velta Lego jókst um 34% á fyrstu sex mánuðum ársins, eða úr 4,4 milljörðum danskra króna á fyrri helmingi ársins í fyrra í 5,9 milljarða á fyrri helmingi þessa árs. Því lætur nærri að veltan á fyrri helmingi þessa árs hafi numið 118 milljörðum íslenskra króna. Hagnaðurinn jókst líka úr 927 milljónum danskra króna í 1,5 milljarð á fyrri helmingi þessa árs.

Kilroy mætir aftur

Norræna ferðaskrifstofan Kilroy Travel hefur í vikunni innreið sína á ný á íslenskan ferðamarkað. Á morgun verður nýr vefur og þjónusta fyrirtækisins kynnt á veitingastaðnum Faktorý.

Soros gefur mannréttindasamtökum 12 milljarða

Ofurfjárfestirinn George Soros segir að hann muni gefa bandarísku mannréttindasamtökunum Human Rights Watch hundrað milljónir dollara eða tæplega 12 milljarða milljarða króna.

Lánin öll kosta sextán milljarða króna

Seðlabankinn áætlar að vaxtakostnaður við lánin sem tekin voru í tengslum við efnahags-áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nemi 104 milljónum evra, jafnvirði sextán milljarða króna, á ári verði þau öll nýtt. Lánin mynda gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Starfsmenn eignast hlut í H&M

Fatavörukeðjan H&M hefur ákveðið að setja á fót nýtt hvatakerfi fyrir starfsmenn fyrirtækisins. Tilgangurinn er að auka hollustu starfsmanna við fyrirtækið.

Biba vörumerkið á markað að nýju

House of Fraser mun í þessari viku setja á markað vörumerkið Biba að nýju, en fyrirtækið keypti vörumerkið í nóvember á síðasta ári.

Húfa úr Trúði gæti gefið 180 milljónir af sér

Dönsk stjórnvöld gáfu nýlega sjónvarpsstöðvum leyfi til þess að nota svokallaða vöruísetningu (e. product placement) í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Vöruísetning er nokkurskonar falin auglýsing, þar sem vörumerki er sett á einhvern hlut sem er áberandi í mynd.

Hagkerfi í ESB að ná sér

Nýjar hagtölur af Evrusvæðinu og aðildarríkjum Evrópusambandsins eru til vitnis um að horfurnar eru góðar í Evrópu og að hagkerfi ESB eru nú mörg hver óðum að ná sér eftir fjármálakreppuna, segir Greining Íslandsbanka í nýju Morgunkorni.

Sjá næstu 50 fréttir