Fleiri fréttir Óvíst að bankarnir vilji fara íbúðabankaleiðina Boðað hefur verið að félagsmálaráðherra leggi á haustþinginu fram frumvarp um framtíðarskipan Íbúðalánasjóðs. Stýrihópur sem ráðherra skipaði í febrúarlok leggur til íbúðabankaleið sem viðskiptabönkunum er lítt hugnanleg. 28.9.2006 00:01 Verðbréfasjóður KB banka sýndi yfir 500% ávöxtun. Verðbréfasjóður á vegum KB banka, Kaupthing IF Icelandic Equity, er í flokki þeirra erlendu verðbréfasjóða sem hafa sýnt mestu ávöxtun á undanförnum fimm árum. Þetta kemur fram í samantekt Standard & Poor"s sem Daily Telegraph birtir. 28.9.2006 00:01 Verð hækkar hér en lækkar annars staðar Norrænn samanburður sýnir að GSM þjónusta hækkar í verði á Íslandi meðan hún lækkar á hinum Norðurlöndunum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar samnorrænnar skýrslu eftirlitsstofnana á fjarskiptamarkaði. Farsímamarkaðurinn hér er sagður einkennast af fákeppni. 28.9.2006 00:01 Árangurstengd laun á undanhaldi hér Á tímabilinu milli áranna 2003 og 2006 hefur dregið úr því að laun séu tengd frammistöðu í starfi. Er það í takt við þróunina í nágrannaríkjum okkar og kemur meðal annars til af neikvæðri umræðu í þjóðfélaginu um slíka umbun. 28.9.2006 00:01 Viðsnúningur í verðbréfasölu Nettósala á erlendum verðbréfum í ágúst nam rúmum 7 milljörðum króna, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands, sem birtar voru eftir lokun markaða í dag. Nettókaup í júlí námu hins vegar 52 milljörðum króna. 27.9.2006 17:05 GM vill greiðslu vegna samstarfs Stjórn bandaríska bílaframleiðandans General Motors (GM) er sögð ætla að fara fram á að bílaframleiðendurnir Nissan og Renault greiði fyrirtækinu milljarða bandaríkjadali í meðgjöf verði af samstarfi fyrirtækjanna á sviði bílaframleiðslu. Forstjórar fyrirtækjanna funduðu um samstarfið í París í Frakklandi í dag. 27.9.2006 14:31 Dow Jones nálægt sögulegu hámarki Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísitalan er við það að ná nýjum sögulegum hæðum. Ástæðan fyrir því er hækkun á gengi hlutabréfa á fjármálamörkuðum vestra í kjölfar bjartsýni fjárfesta vegna minnkandi verðbólgu. 27.9.2006 13:25 Taprekstur hjá HoF Vöruhúsakeðjan House of Fraser, sem Baugur, FL Group og fleiri fjárfestar hyggjast yfirtaka síðar á þessu ári, tapaði 11,6 milljónum punda á fyrri hluta rekstrarársins sem lauk í júlí. Tapið samsvarar rúmum 1,5 milljörðum króna og jókst um 275 prósent á milli ára. 27.9.2006 10:41 Varað við erlendum fyrirtækjaskrám Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) varar atvinnurekendur við fulltrúum erlendra fyrirtækjaskráa sem hafa sett sig í samband við íslensk fyrirtæki og leita eftir staðfestingu á upplýsingum um viðkomandi fyrirtæki. 27.9.2006 10:25 Bílarisar ræðast við Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors, og Carlos Ghosn, forstjóri bílaframleiðendanna Nissan Motors og Renault SA hittast í París í Frakklandi í dag til að ræða um hugsanlegt samstarf fyrirtækjanna. Greiningaraðilar segja viðræðurnar fram til þessa hafa strandað á því hversu víðtækt samstarfið eigi að vera og telja það jafnvel ólíklegt. 27.9.2006 09:42 Bankarnir á lista 50 stærstu 27.9.2006 09:04
Sjá næstu 50 fréttir
Óvíst að bankarnir vilji fara íbúðabankaleiðina Boðað hefur verið að félagsmálaráðherra leggi á haustþinginu fram frumvarp um framtíðarskipan Íbúðalánasjóðs. Stýrihópur sem ráðherra skipaði í febrúarlok leggur til íbúðabankaleið sem viðskiptabönkunum er lítt hugnanleg. 28.9.2006 00:01
Verðbréfasjóður KB banka sýndi yfir 500% ávöxtun. Verðbréfasjóður á vegum KB banka, Kaupthing IF Icelandic Equity, er í flokki þeirra erlendu verðbréfasjóða sem hafa sýnt mestu ávöxtun á undanförnum fimm árum. Þetta kemur fram í samantekt Standard & Poor"s sem Daily Telegraph birtir. 28.9.2006 00:01
Verð hækkar hér en lækkar annars staðar Norrænn samanburður sýnir að GSM þjónusta hækkar í verði á Íslandi meðan hún lækkar á hinum Norðurlöndunum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar samnorrænnar skýrslu eftirlitsstofnana á fjarskiptamarkaði. Farsímamarkaðurinn hér er sagður einkennast af fákeppni. 28.9.2006 00:01
Árangurstengd laun á undanhaldi hér Á tímabilinu milli áranna 2003 og 2006 hefur dregið úr því að laun séu tengd frammistöðu í starfi. Er það í takt við þróunina í nágrannaríkjum okkar og kemur meðal annars til af neikvæðri umræðu í þjóðfélaginu um slíka umbun. 28.9.2006 00:01
Viðsnúningur í verðbréfasölu Nettósala á erlendum verðbréfum í ágúst nam rúmum 7 milljörðum króna, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands, sem birtar voru eftir lokun markaða í dag. Nettókaup í júlí námu hins vegar 52 milljörðum króna. 27.9.2006 17:05
GM vill greiðslu vegna samstarfs Stjórn bandaríska bílaframleiðandans General Motors (GM) er sögð ætla að fara fram á að bílaframleiðendurnir Nissan og Renault greiði fyrirtækinu milljarða bandaríkjadali í meðgjöf verði af samstarfi fyrirtækjanna á sviði bílaframleiðslu. Forstjórar fyrirtækjanna funduðu um samstarfið í París í Frakklandi í dag. 27.9.2006 14:31
Dow Jones nálægt sögulegu hámarki Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísitalan er við það að ná nýjum sögulegum hæðum. Ástæðan fyrir því er hækkun á gengi hlutabréfa á fjármálamörkuðum vestra í kjölfar bjartsýni fjárfesta vegna minnkandi verðbólgu. 27.9.2006 13:25
Taprekstur hjá HoF Vöruhúsakeðjan House of Fraser, sem Baugur, FL Group og fleiri fjárfestar hyggjast yfirtaka síðar á þessu ári, tapaði 11,6 milljónum punda á fyrri hluta rekstrarársins sem lauk í júlí. Tapið samsvarar rúmum 1,5 milljörðum króna og jókst um 275 prósent á milli ára. 27.9.2006 10:41
Varað við erlendum fyrirtækjaskrám Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) varar atvinnurekendur við fulltrúum erlendra fyrirtækjaskráa sem hafa sett sig í samband við íslensk fyrirtæki og leita eftir staðfestingu á upplýsingum um viðkomandi fyrirtæki. 27.9.2006 10:25
Bílarisar ræðast við Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors, og Carlos Ghosn, forstjóri bílaframleiðendanna Nissan Motors og Renault SA hittast í París í Frakklandi í dag til að ræða um hugsanlegt samstarf fyrirtækjanna. Greiningaraðilar segja viðræðurnar fram til þessa hafa strandað á því hversu víðtækt samstarfið eigi að vera og telja það jafnvel ólíklegt. 27.9.2006 09:42
Skrá á IG í Evrópu og Bandaríkjunum Icelandic Group verður skipt upp í þrjár einingar og tvær þeirra skráðar í útlöndum. Finnbogi Baldvinsson, framkvæmdastjóri Icelandic Europe, kaupir hlut Samherjamanna í félaginu. 27.9.2006 00:01
Nýtt hagvaxtarskeið hefst árið 2008 Í hagspá Landsbanka Íslands, sem kynnt var á fjölmennum fundi á mánudagsmorgun, var velt upp og svarað spurningum um hvert hagkerfið, fasteignamarkaðurinn, krónan og Seðlabankinn stefni. Óli Kristján Ármannsson sat fundinn og hlustaði á umræður eftir hann. 27.9.2006 00:01
Handbók athafnamannsins komin út Stjórnendur og aðrir þeir sem koma að rekstri fyrirtækja, eða hyggjast stofna fyrirtæki, geta nú brosað breiðara og andað léttar. Í samstarfi við SPRON hefur Páll Kr. Pálsson gefið út bókina Handbók athafnamannsins. 27.9.2006 00:01
Vænt sala gekk ekki eftir Stjórnendur Avion höfðu handsalað samkomulag við kaupanda á hlut í dótturfélaginu AAT, sem hefði skilað miklum söluhagnaði. Óásættanleg skilyrði ollu því að upp úr viðræðum slitnaði. Avion ræðir nú við aðra fjárfesta. 27.9.2006 00:01
Efasemdir um enn víðtækari samruna Orðrómur var uppi um miðjan mánuðinn að NASDAQ-markaðurinn í Bandaríkjunum hygðist taka yfir OMX. Á þeim tíma sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, að sameining við báða markaðina væri góður kostur. 27.9.2006 00:01
Sameiningin í hnotskurn Í kjölfar fyrirhugaðra kaupa á Eignarhaldsfélaginu Verðbréfaþingi verður OMX móðurfélag samstæðunnar. OMX er þegar skráð félag í kauphöllunum í Stokkhólmi, Helsinki og Kaupmannahöfn og þegar gengið hefur verið frá kaupunum hyggst félagið sækja um skráningu í Kauphöll Íslands. 27.9.2006 00:01
Flestir eru að gera það gott Hagvöxtur undanfarinna tveggja ára á Íslandi hefur verið með eindæmum mikill, vel á áttunda prósent hvort ár, ef miðað er við aukningu vergrar landsframleiðslu. Jafnvel þótt tekið sé tillit til fólksfjölgunar var vöxturinn mikill, ríflega 6% aukning á mann hvort ár. 27.9.2006 00:01
Jarðboranir tryggja sér nýjan liðsauka Jarðboranir hafa gengið frá samningum um kaup á nýjum hátæknibor sem verður afhentur næsta sumar. Verður hann sá öflugasti í tækjaflota félagsins og fær um að bora niður á allt að rúmlega fimm kílómetra dýpi. 27.9.2006 00:01
Fall í olíukauphöllinni Norski hlutabréfamarkaðurinn hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að olíuverð tók að lækka en markaðurinn er mjög háður því og því oft kallaður Olíukauphöllin. 27.9.2006 00:01
Volvo í útrás í Austurlöndum Sænski vöruflutningabílaframleiðandinn Volvo greindi frá því á mánudag að fyrirtækið hefði keypt 6 prósenta hlut japanska bílaframleiðandans Nissan í vöruflutningaarmi fyrirtækisins, Nissan Diesel Motor. 27.9.2006 00:01
Sameiningin hefur áhrif í Færeyjum Búist er við því að sameining OMX og Kauphallar Íslands auki hraða framþróunar á Virðisbrævamarkaði Føroya eða VMF, sem Kauphöll Íslands rekur. 27.9.2006 00:01
Ýtti undir áhuga á viðskiptum Hannes Smárason, forstjóri FL Group, komst í fyrstu bók Michaels E. Porter um samkeppniskraftagreininguna frá 1980 í kringum 1988 þegar hann var við nám í MIT í Boston í Bandaríkjunum. 27.9.2006 00:01
Ikea ræður þúsundir starfsmanna Sænski húsgagnarisinn Ikea ætlar að ráða tugþúsundir nýrra starfsmanna víða um heim á næstu árum. Anders Dahlvig, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir ástæðuna vera mikinn fyrirhugaðan vöxt Ikea og opnun fjölda nýrra verslana um allan heim á næstunni. 27.9.2006 00:01
Innan OMX fá fyrirtækin aukna athygli og fleiri tækifæri Stærri fyrirtæki sem skráð eru í Kauphöll Íslands eru talin njóta góðs af fyrirhuguðum samruna kauphallarinnar hér við OMX kauphallirnar. Helsta áhyggjuefnið meðan verið var að velta fyrir sér sölunni var hvernig smærri fyrirtækjum myndi reiða af. 27.9.2006 00:01
Straumborg hagnaðist um fimm milljarða Fjárfestingafélagið Straumborg, sem er að níu tíundu hluta í eigu Jóns Helga Guðmundssonar í BYKO, skilaði 4.968 milljarða króna hagnaði árið 2005. Hagnaður ársins 2004 var 3.154 milljarðar króna til samanburðar. 27.9.2006 00:01
Stýrihópur leggur til stofnun heildsölubanka Athugasemdir Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja kalla á pólitíska ákvarðanatöku segir hópurinn. 27.9.2006 00:01
Hugsuður viðskiptalífsins ræðir um samkeppnishæfni Michael E. Porter, prófessor við Harvard háskóla í Bandaríkjunum, flytur tvo fyrirlestra á Hótel Nordica og í Háskólabói um samkeppnishæfni Íslands og stefnumótun og samkeppnisaðferðir í víðara samhengi í næstu viku á vegum Capacent. 27.9.2006 00:01
Línur skerpast í staðlastríðinu Búist er við að nýir mynddiskar bindi enda á staðlastríð tæknifyrirtækja vestanhafs. Sérfræðingar hjá bandaríska kvikmyndarisanum Warner Brothers hafa hannað mynddisk sem getur geymt myndir jafnt á DVD, HD-DVD og Blu-Ray sniði. 27.9.2006 00:01
Glitnir mælir með Atorku Mælt er með kaupum í Atorku Group í nýlegri greiningu Glitnis. Verðmatsgengi á Atorku er 7,3 krónur á hlut samanborið við markaðsgengið 6,35 en markgengi, þar sem Glitnir sér gengi Atorku standa í eftir sex mánuði, er sjö krónur á hlut. 27.9.2006 00:01
Eimskip á áætlun Eimskip skilaði rekstrarhagnaði fyrir afskriftir (EBITDA) upp á 1,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi og 3,3 milljörðum króna fyrir fyrstu níu mánuði reikningsársins. Hlutfall EBITDA af veltu nam fjórtán prósentum. Tekjur Eimskipa á fjórðungnum námu tíu milljörðum króna. 27.9.2006 00:01
Skoða breytt landslag Sparisjóðir gætu þurft að losa um bréf í Existu vegna lækkunar eiginfjárhlutfalla og markaðsáhættu. Sumir sparisjóðanna skoða sölu bréfa í samráði við aðra eigendur Existu. 27.9.2006 00:01
Edda sögð vera til sölu Edda útgáfa mun vera til sölu fyrir rétt verð eins og oft er sagt og telja sumir að alltaf hafi staðið til að losa fyrirtækið sem er í eigu Úlfarsfells, félags Björgólfs Guðmundssonar. 27.9.2006 00:01
FL nálgast 200 milljarða Miklar hækkanir á FL Group hafa fleytt félaginu fram fyrir Straum-Burðarás yfir verðmætustu félög Kauphallar Íslands. Virði FL Group var 184 milljarðar króna í gær, fjórum milljörðum meira en virði Straums. 27.9.2006 00:01
Bílaforstjórar ræða samstarf í vikunni Viðræður General Motors, Renault og Nissan um samstarf hafa ekki skilað árangri og þykir ólíklegt að af því verði. 27.9.2006 00:01
iSEC verður First North Um áramótin, þegar samruninn við OMX gengur í garð, verður einnig nafni iSEC, hlutabréfamarkaðar Kauphallarinnar fyrir smá og millistór fyrirtæki, breytt og hann fær heitið First North. 27.9.2006 00:01
Baugur ræður lögfræðing Stuart Hanbury lögfræðingur hefur verið ráðinn til starfa hjá Baugi í Bretlandi. Hanbury starfar hjá lögfræðistofunni Allen & Overy sem hefur aðsetur í City, fjármálahverfi Lundúnaborgar. 27.9.2006 00:01
Leiðarvísir að fyrirmyndarfyrirtæki Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar, segir Michael E. Porter ótrúlega flinkan fræðimann. Samkeppniskraftagreining hans um mikilvægi þess að fyrirtæki greini markaðinn og setji sér skýra stefnu sé í fullu gildi, að hennar sögn. 27.9.2006 00:01
Lufthansa kaupir ekki í SAS Thomas Jachnow, talsmaður þýska flugfélagsins Lufthansa, og talsmaður SAS í Svíþjóð, vísuðu báðir þeim orðrómi á bug í byrjun vikunnar að Lufthansa ætlaði að kaupa allt að helmingshlut í norræna flugfélaginu og hugsanlega gera yfirtökutilboð í það. 27.9.2006 00:01
Glitnir kallar á upplýsingar Mikilvægt er að stjórnendur FL Group stundi virka upplýsingagjöf til markaðarins enda er það forsenda fyrir sanngjarnri verðmyndum með hlutabréf félagsins, segir í morgunkorni greiningardeildar Glitnis í gær. 27.9.2006 00:01
Ísland færist upp um tvö sæti Ísland er fjórtánda samkeppnishæfasta land í heimi og færist upp um tvö sæti frá því í fyrra samkvæmt nýjustu úttekt skýrslu World Economic Forum. Bandaríkin, sem voru í fyrsta sæti, eru fallin í það sjötta, en Sviss komið í þeirra stað efst á listanum sem samkeppnishæfasta hagkerfi heimsins. Sviss var áður í fjórða sæti. 27.9.2006 00:01
Fjörfiskur Um helgina sem leið bauð Pickenpack Hussman & Hahn, dótturfélag Icelandic Group, til mikillar veislu í leikfangaborginni Luneburg í nágrenni Hamborgar. 27.9.2006 00:01
Umframeftirspurn í útboði Sparikassans Sökum mikillar eftirspurnar fjárfesta eftir hlutabréfum í Föroya Sparikassi ákváðu stjórnendur Sparikassagrunnsins, stærsta hluthafans, að selja sautján prósenta hlut í stað tíu prósenta. 27.9.2006 00:01
Aukin bjartsýni neytenda Væntingavísitala Gallup snarhækkar. Meiri bifreiðakaup, fleiri utanlandsferðir en minna um íbúðakaup. 27.9.2006 00:01
Gott orðspor í viðskiptum borgar sig Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, var valinn stjórnarformaður Íslands á fimmtudag. 27.9.2006 00:01