Fleiri fréttir

Balic snýr heim

Króatíski landsliðsmaðurinn Ivano Balic hefur ákveðið að ganga í raðir Croatia Zagreb í heimalandi sínu eftir farsælan feril hjá Portland San Antonio á Spáni. Balic hefur um árabil verið einn allra besti handboltamaður heims og var kjörinn íþróttamaður ársins í Króatíu í fyrra.

Stelpurnar spila um 13. sætið

Íslenska 20 ára lið kvenna vann sinn þriðja leik í röð í baráttunni um sæti á HM í Makedóníu þegar liðið vann flottan tólf marka sigur, 39-27, á heimastúlkum í Makedóníu í gær.

Búið að velja Ólympíuhópinn

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, hefur opinberað 15 manna leikmannahópinn sem fer fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikana í Peking.

Döpur frammistaða gegn Egyptum

Íslenska liðið lauk keppni á æfingamótinu í Strasbourg í Frakklandi í dag. Liðið tapaði 30-33 fyrir Egyptalandi og fékk því ekki stig á mótinu.

Ísland tapaði fyrir Frakklandi

Íslenska landsliðið lék í dag annan leik sinn á æfingamóti í Frakklandi. Leikið var gegn heimamönnum sem unnu 31-28 sigur. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk.

Fyrsta tap íslensku stúlknanna í Makedóníu

Íslenska stúlknalandsliðið skipað 20 ára leikmönnum og yngri tapaði í kvöld fyrsta leiknum sínum á HM sem fram fer í Makedóníu þegar það lá 32-28 fyrir Rúmenum.

Tap fyrir Spánverjum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í kvöld fyrir Spánverjum 38-32 á æfingamóti sem fram fer í Frakklandi. Spænska liðið hafði yfir í hálfleik 17-14. Íslenska liðið mætir heimamönnum á morgun.

Góður sigur á Þjóðverjum

Íslenska 20 ára landslið kvenna vann í dag frækinn 24-23 sigur á Þjóðverjum á HM stúlknalandsliða sem fram fer í Makedóníu. Staðan í hálfleik var 13-11 fyrir þýska liðið. Íslenska liðið hefur nú unnið einn leik og gert tvö jafntefli í riðlinum og á aðeins eftir að spila við Rúmena.

Strákarnir okkar leika í Frakklandi um helgina

Íslenska handboltalandsliðið tekur þátt í æfingamóti í Strasbourg í Frakklandi um komandi helgi. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi sautján manna hóp til að taka þátt í verkefninu.

Sigfús kominn í Val

Varnarjaxlinn Sigfús Sigurðsson er kominn aftur heim í Val eftir sex ára dvöl í atvinnumennskuni. Sigfús er uppalinn Valsari og á fimm Íslandsmeistaratitla að baki með meistaraflokki félagsins.

Stelpurnar gerðu aftur jafntefli

U20 landslið Íslands í kvennaflokki gerði í kvöld 26-26 jafntefli við heimastúlkur á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Slóveníu. Íslenska liðið var yfir stærstan hluta leiksins.

Fram mætir hollensku liði

Framarar munu mæta hollenska liðinu Omni SV Hellas í EHF-keppninni í handbolta en dregið var í morgun.

Hrafnhildur í raðir Vals

Hrafnhildur Skúladóttir hefur skrifað undir eins árs samning við Val og mun leika með liðinu í N1-deild kvenna næsta vetur. Frá þessu er greint á heimasíðu Hlíðarendaliðsins.

Átta marka sigur Íslands

Íslenska handboltalandsliðið vann átta marka sigur á Spáni 35-27 í Vodafone-höllinni í dag.

Guðjón í 200 leikja klúbbinn

Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, leikur tímamótaleik gegn Spánverjum í Vodafonehöllinni í dag.

Eins marks tap fyrir Spánverjum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í kvöld 35-34 fyrir Spánverjum í fyrri æfingaleik þjóðanna fyrir Ólympíuleikana. Staðan í hálfleik var jöfn 16-16 en leikið var í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda.

Ísland mætir Spánverjum í kvöld

Íslenska landsliðið í handbolta er nú að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana í Peking. Í kvöld mætir liðið sterku liði Spánverja í fyrri æfingaleik liðanna í Vodafonehöllinni og hefst hann klukkan 19:30. Aðgangur er ókeypis.

Magnús Sigmundsson í FH

Handboltamarkvörðurinn Magnús Sigmundsson ætlar að enda feril sinn með FH. Hann hefur skrifað undir eins árs samning við félagið en síðustu tvö ár hefur hann leikið með erkifjendunum í Haukum.

Guðmundur: Höfum æft stíft

Íslenska handboltalandsliðið er nú að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í ágúst. Blaðamannafundur var haldinn í Framheimilinu í dag, rétt áður en íslenski hópurinn skellti sér á æfingu.

Leikið við Spánverja á föstudag og laugardag

Síðustu og einu heimaleikir íslenska handboltalandsliðsins fyrir Ólympíuleikana í Peking verða um helgina. Leikið verður gegn Spáni í Vodafone-höllinni á föstudagskvöld og laugardag.

Guðmundur velur æfingahópinn fyrir Peking

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag 19 manna æfingahóp sinn fyrir Ólympíuleikana í Peking í næsta mánuði. Hópurinn leikur tvo æfingaleiki við Spánverja og tekur þátt í móti í Austurríki áður en það fer á Ólympíuleikana.

Vil ekki vera túristi í Peking

Landsliðsmaðurinn Einar Hólmgeirsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið fyrir Ólympíuleikana í Peking í næsta mánuði.

Haukar mæta liði frá Kýpur

Íslandsmeistarar Hauka munu mæta Cyprus College frá Kýpur í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Sjá næstu 50 fréttir