Viðskipti innlent

Hagnaður Kviku dróst saman

Agnar Már Másson skrifar
Höfuðstöðvar Kviku eru í Borgartúni.
Höfuðstöðvar Kviku eru í Borgartúni. Vísir/Lýður Valberg

Hagnaður viðskiptabankans Kviku á þriðja ársfjórðungi dróst saman þegar miðað er við sama tímabil í fyrra. Aftur á móti hefur arðsemi á efnislegt eigið fé ekki verið hærri í tvö ár.

Frá þessu er greint í Kauphallartilkynningu.

Fyrir skatta nam hagnaður af áframhaldandi starfsemi Kvikusamstæðunnar um 1,7 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026, og dróst saman um eða 10,9 prósent miðað við sama ársfjórðung í fyrra. Eftir skatta nemur breytingin um 8,8 prósenta lækkun.

Hreinar vaxtatekjur námu þó 3.052 milljörðum sem nemur 3,4 prósenta hækkun. Vaxtamunur var sá sami, 4 prósent. Aðrar rekstrartekjur námu 366 m.kr, sem er um 8 prósenta hækkun frá fyrra ári.

Hreinar þóknanatekjur námu 1,38 milljörðum á tímabilinu og lækkuðu um 12,2 prósent miðað við þriðja ársfjórðung 2025.

Á sama tíma jókst rekstrarkostnaður um 2,4 prósent og nam 2.807 milljónum króna.

Aftur á móti jókst arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi og nemur hún 18,9 prósentum miðað við 17,8 prósent á sama tíma í fyrra.

„[Arðsemin] var sú hæsta síðan á þriðja fjórðungi árið 2024 og kemur í kjölfar umfangsmikilla útgreiðslna til hluthafa í formi arðs og endurkaupa,“ er haft eftir bankastjóranum Ármanni Þorvaldssyni, sem hættir brátt störfum.

Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi dróst þó saman og nemur 0,31 krónu á nýliðnum ársfjórðungi samanborið við 0,33 kr. á sama tímabili í fyrra.

Innlán frá viðskiptavinum jukust og námu 200 milljörðum króna samanborið við 173 milljarða í lok árs 2025 og jukust um 16,0 prósent á tímabilinu.

Útlán til viðskiptavina voru 235 ma.kr., samanborið við 208 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um prósent á tímabilinu. Heildareignir námu 370 ma.kr., samanborið við 343 ma.kr. í lok árs 2025.

Eigið fé samstæðunnar dróst saman og nam 58 milljörðum króna, samanborið við 69 milljarða í lok árs 2025.

Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,3 prósent, samanborið við 26,8 prósent í lok árs 2025. Hlutfallið tekur tillit til óendurskoðaðs hagnaðar tímabilsins en eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,8% í lok september 2026.

Heildarlausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 174%, samanborið við 404% í lok árs 2025. Heildareignir í stýringu námu 442 ma.kr., samanborið við 469 ma.kr. í lok árs 2025.

„Á fjórðungnum var tilkynnt um ráðningu nýs forstjóra, Jóns Birgis Jónssonar, sem mun hefja störf í byrjun desember. Ég óska Jóni velfarnaðar í starfi á sama tíma og ég kveð frábæran vinnustað með miklum söknuði,“ er haft eftir Ármanni, fráfarandi bankastjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×