Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Eiður Þór Árnason skrifar 4. nóvember 2026 04:48 Demókratinn James Talarico er sagður hafa sigrað Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993. ap/Eric Gay Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast.
Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri í mörgum höfuðvígum Repúblikanaflokksins og fær flokkurinn til að mynda sinn fyrsta öldungardeildarþingmann í Texas í yfir þrjá áratugi með sigri James Talarico. Repúblikanar hafa verið með meirihluta í báðum þingdeildum. Á meðan kannanir bentu sterklega til þess að Demókratar myndu ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar í gær ríkti meiri spenna um niðurstöðurnar í öldungadeildinni. Langan tíma gæti tekið að staðfesta niðurstöður á sumum svæðum en helstu miðlar vestanhafs eru sammála um að óvissa fari þverrandi. Mike Johnson, leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni og þingmaður Repúblikana, er sagður hafa viðurkennt ósigur flokksins í kosningapartýi sínu í Louisiana. Kosið var um öll 435 þingsæti fulltrúadeildarinnar í gær, 35 sæti í öldungadeildinni, embætti ríkisstjóra víða og önnur embætti. Demókratar náð yfirhöndinni í öldungadeildinni Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð sjö sætum af Repúblikönum í öldungadeild þingsins og tryggt sér 53 þingsæti en 51 þarf þar til að ná meirihluta. Samkvæmt spámódeli The New York Times þurfti flokkurinn að sigra í þremur lykilríkjum til þess að ná meirihluta í deildinni en hafi gert gott betur og tryggt sér sigur í þremur barátturíkjum til viðbótar. Hér er um að ræða ríkin Iowa, Kansas, Maine, Ohio, Suður-Karólínu og Texas. Staðan einnig slæm fyrir Repúblikana í fulltrúadeildinni Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa tryggt sér 219 sæti í fulltrúadeildinni en þeir þurfa 218 til að ná þar meirihluta. Líkt og venjulega ríkir lítil spenna um stóran hluta umdæma þar sem sæti eru frá upphafi talin vera örugg fyrir annan hvorn flokkinn. Samkvæmt spámódeli The New York Times þurftu Demókratar að vinna fjórtán lykilsæti í heildina til þess að ná yfirhöndinni en hafi unnið alls 27. Þá er flokkurinn sagður frekar eða mjög líklegur til að vinna í 22 umdæmum til viðbótar. Náðu einnig til sín ríkisstjórastólnum í Texas Einnig var kosið um ríkisstjóra í 36 ríkjum Bandaríkjanna í gær. Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa náð til sín fjórum ríkisstjórastólum á kostnað Repúblikana í Iowa, Ohio, Georgíu og Texas. Trump Bandaríkjaforseti hefur mælst óvinsæll í könnunum um nokkurt skeið. Kjósendur víðs vegar um Bandaríkin sögðu í samtali við AP-fréttaveituna að Trump hefði haft slæm áhrif á hagkerfi Bandaríkjanna. Um tveir þriðju svarenda sögðu áhrifin slæm en einungis þrír af tíu sögðu forsetann hafa haft jákvæð áhrif. Flestir sem fréttaveitan ræddi við sögðu að verðlag og spilling væru helstu málefnin sem þau hefðu í huga fyrir kosningarnar. Eldsneytisverð hefur hækkað skarpt í Bandaríkjunum eftir innrás Bandaríkjanna og Ísrael í Íran og lokun Hormússunds. Hægt er að fylgjast með nýjustu niðurstöðum talningar í útsendingunum hér fyrir neðan. Fréttin var síðast uppfærð klukkan 06:35.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira