Innlent

Reikna með þrettán milljarða af­gangi á næsta ári

Árni Sæberg skrifar
Ráðhúsið í Reykjavík.
Ráðhúsið í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar ársins 2027 er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 12,9 milljarða króna og EBITDA verði 73 milljarðar króna. Á árunum 2028-2031 er gert ráð fyrir batnandi afkomu og vaxandi EBITDA.

Í tilkynningu borgarinnar til Kauphallar segir að útkomuspá fyrir yfirstandandi ár geri ráð fyrir að afkoma ársins verði neikvæð um 3,4 milljarða króna.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri kynnti fjárhagsáætlunina á blaðamannafundi í Höfða klukkan 11 og ræddi í framhaldinu við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttamann. Kynninguna og viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan:





Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum sé áætlað 16,5 prósent árið 2027 eða 53,2 milljarðar króna og verði á milli 17 prósent og 18,1 prósent tímabilið 2028 til 2031.

Gert sé ráð fyrir að lok árs 2027 nemi eignir samtals 1.116 milljörðum króna og hækki um 51 milljarð króna á árinu. Þá sé gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall nemi 43,5 prósentum.

Heildarfjárfesting sé áætluð 73,8 milljarðar árið 2027 og gert sé ráð fyrir að heildarfjárfesting árin 2028 til 2031 nemi 295,5 milljörðum króna. Árið 2027 sé gert ráð fyrir að lántaka langtímalána ársins nemi 53,2 milljörðum króna og að handbært fé í árslok verði 24,4 milljarðar króna.

Gert sé ráð fyrir að þriggja ára jafnvægisviðmið sveitarstjórnarlaga verði jákvætt allt áætlunartímabilið og að skuldaviðmið verði 113 prósent árið 2027 og undir 150 prósenta viðmiði sveitarstjórnarlaga út áætlunartímabilið.

Milljarðaafgangur af A-hluta

Fjárhagsáætlun A-hluta geri ráð fyrir 2,8 milljarða króna afgangi árið 2027. Í fimm ára áætlun sé gert ráð fyrir að hagnaður A-hluta fari stigvaxandi og nemi 16,8 milljörðum árið 2031.

Gert sé ráð fyrir að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum nemi 8 prósentum árið 2027. Í fimm ára áætlun sé gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum verði milli 9,3 prósenta og 11,3 prósenta árin 2028-2031.

Gert sé ráð fyrir að eignir A-hluta nemi 333,2 milljörðum króna í lok árs 2027 og að eiginfjárhlutfall nemi 25 prósentum. Hreinar skuldir sem hlutfall af tekjum séu áætlaðar 91 prósent árið 2027 og fari lækkandi á áætlunartímabilinu.

Heildarfjárfesting A-hluta sé áætluð 23,6 milljarðar árið 2027 og gert sé ráð fyrir að stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum samkvæmt lögum um almennar íbúðir og til B-hluta fyrirtækja og hlutdeildarfélaga nemi 2,6 milljörðum króna. Árið 2027 sé gert ráð fyrir að langtímalántaka ársins nemi 16 milljörðum króna, skammtímalántaka nemi 2,5 milljörðum króna og að handbært fé í árslok verði 10,4 milljarður króna.

Sérstök áhersla lögð á áhættustýringu og ábatagreiningu

Þá segir að Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar sinni umfangsmiklum þjónustu- og innviðaverkefnum. Á næsta ári sé áætlað að eignir A- og B-hluta borgarinnar samkvæmt efnahagsreikningi verði komnar yfir 1.100 milljarða króna með 485 milljarða króna í eigið fé. Það sýni sterka stöðu borgarinnar og B-hluta fyrirtækja að áætlað veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum sé yfir 16 prósentum og standi þannig undir fjárfestingastigi og skuldsetningu fjárfrekra innviðaverkefna.

Fjármálastjórn A-hluta taki mið af endurskoðaðri fjármálastefnu Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 2027 til 2031. Sérstök áhersla sé lögð á innleiðingu virkrar áhættustýringar, arðsemis- og ábatagreininga vegna fjárfestinga, árangursstjórnun og virkt útgjaldaeftirlit. Framtíðarsýn stefnunnar sé að fjármálastjórn borgarinnar tryggi sjálfbærni og stöðugleika til lengri tíma. 

„Með ábyrgri forgangsröðun og hagkvæmri nýtingu fjármuna skili borgarsjóður rekstrarafgangi og standi undir skuldum og skuldbindingum á hverjum tíma. Þrjú meginmarkmið styðja við hana: fjárhagsleg sjálfbærni og stöðugleiki, árangursdrifin og hagkvæm nýting fjármuna, og skýr forgangsröðun og markvissar fjárfestingar. Í fjármálastefnunni eru sett markmið fyrir A-hluta sem taka til helstu fjárhagslegra þátta borgarsjóðs þ.e. reksturs, efnahags og sjóðstreymis.“

Gert sé ráð fyrir að öll markmið fjármálastefnunnar verði uppfyllt á áætlunartímabilinu. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum endurspegli sterkan grunnrekstur, handbært fé í árslok sé yfir markmiðum og skuldaviðmið með því lægsta á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×