Innherji

Breytt mat líf­eyris­skulda getur leitt til stór­felldra sveiflna á eigin­fjár­stöðu ríkisins

Hörður Ægisson skrifar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Með breytingunni á vaxtaviðmiði verður mat á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs í auknum mæli tengt þróun á skuldabréfamarkaði. Það getur haft umtalsverð áhrif á bókfærða eiginfjárstöðu ríkisins milli ára,

Breytt aðferðafræði við mat á lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs þýðir að sveiflur í ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa geta framvegis haft veruleg áhrif á bókfærðar skuldir og eigið fé ríkisins milli ára, jafnvel svo nemi yfir hundrað milljörðum króna, án þess að undirliggjandi lífeyrisréttindi eða greiðsluskuldbindingar hafi breyst. Þannig gæti staða ríkissjóðs samkvæmt efnahagsreikningi versnað umtalsvert á sama tíma og fjármögnunarskilyrði hans fara batnandi.

Tengdar fréttir

Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða

Afkoma heildarsamstæðu ríkisins síðasta árs var neikvæð um 182 milljarða króna. Tekjur námu 1507 milljörðum og rekstrargjöld 1646 milljörðum.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×