Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Andri Már Eggertsson skrifar 2. nóvember 2026 21:00 Dzana Crnac, leikmaður Vals, var með 19 stig í kvöld Vísir/Pawel Valur vann 17 stiga sigur gegn Keflavík 87-70 í 6. umferð Bónus deildar kvenna. Heimakonur voru með forystuna allan leikinn og unnu verðskuldaðan sigur. Kanalausir Keflvíkingar mættu í N1-höllina á Hlíðarenda í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Valsarar byrjuðu betur og voru skrefi á undan með Dzana Crnac í broddi fylkinga sem gerði tíu stig í fyrsta leikhluta. Keflvíkingar voru ekki langt á eftir og staðan var 21-16 eftir fyrsta fjórðung. Valur - Keflavík kvk (Bónus) Haust 2026Vísir/Pawel Heimakonur mættu með mikla orku inn í annan leikhluta og eftir aðeins þrjár mínútur tók Arnór Daði Jónsson, þjálfari Keflavíkur, leikhlé. Valur hafði þá gert níu stig gegn aðeins einu hjá Keflavík. Leikhlé Keflavíkur svínvirkaði og það var allt annað að sjá til liðsins á báðum endum vallarins. Jamil Abiad, þjálfari Vals, reyndi að bregðast við með að taka leikhlé en það skilaði ekki miklu. Valur var fjórum stigum yfir í hálfleik 40-36. Thelma Dís Ágústsdóttir, leikmaður Keflavíkur, í baráttunniVísir/Pawel Keflvíkingum gekk bölvanlega að skora í þriðja leikhluta. Liðið gerði aðeins tólf stig og sex af þeim komu á vítalínunni. Valsarar gengu á lagið og voru þrettán stigum yfir farandi inn í fjórða leikhluta 61-48. Valsarar gáfu ekkert eftir í fjórða leikhluta og unnu að lokum sannfærandi sautján stiga sigur 87-70. Reshawna Rosie Stone, leikmaður Vals, var með 17 stig og 12 stoðsendingar í kvöldVísir/Pawel Atvik leiksins Keflvíkingar minnkuðu muninn niður í tíu stig þegar fimm mínútur voru eftir og hótuðu endurkomu. Valsarar svöruðu því þó með níu stigum í röð og kláruðu leikinn. Stjörnur og skúrkar Reshawna Rosie Stone var allt í öllu í leik Vals. Hún gerði 17 stig, tók 5 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Í liði Vals var Alyssa Marie Cerino einnig með tvöfalda tvennu en hún gerði 21 stig og tók 12 fráköst. Þriggja stiga nýting Keflavíkur var ekki góð í kvöld en liðið var með átján prósent þriggja stiga nýtingu. Dómararnir Dómarar kvöldsins voru Davíð Kristján Hreiðarsson, Jakob Árni Ísleifsson og Bjarni Rúnar Lárusson. Þríeykið stóð vaktina vel í kvöld og það komu ekki upp nein atvik hjá þeim til að sitja út á. Stemning og umgjörð Umgjörðin var til fyrirmyndar í N1-höllinni á Hlíðarenda. Mætingin var fín og stemningin góð. „Ánægð með að fá þessa þriggja vikna pásu“ Arnór Daði Jónsson og Jón Norðdal Hafsteinsson að fara yfir hlutinaVísir/Pawel Arnór Daði Jónsson, þjálfari Keflavíkur, hrósaði sínu liði eftir sautján stiga tap kvöldsins gegn Val og tók tapið á sig. „Við erum fáliðaðar og ég er að spila fjórum í 38 mínútur. Ég ætla fara þá leið að ég er stoltur af stelpunum fyrir síðustu tvo leiki þetta er erfitt og þær eru að leggja sig fram. Það var lélegt af mér og aðstoðarmanni mínum að vera ekki með betri útlending tilbúinn í sumar,“ sagði Arnór Daði og hélt áfram. „Við erum með lítið sjálfstraust og við erum ánægð með að fá þessa þriggja vikna pásu til að slípa okkur betur saman.“ Arnór sagði að það væri Kani væntanlegur til liðsins og væri klár eftir landsleikjahlé. „Við ætlum að æfa okkur. Við fáum Kana í vikunni sem við bindum miklar vonir við. Við förum að æfa og endurskipuleggja sóknarleikinn hjá okkur til þess að gera hlutina auðveldari,“ sagði Arnór að lokum. Bónus-deild kvenna Valur Keflavík ÍF