Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Björn Berg skrifar 3. nóvember 2026 07:02 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 45 ára karlmaður spyr: „Nú er sonur minn að verða 18 ára og á orðið sæmilegan sparnað á verðtryggðum framtíðarreikningi. Til stendur að nýta þetta fé til fasteignakaupa þegar fram líða stundir en þangað til, hvernig er best að geyma það m.t.t. ávöxtunar?“ Góð ávöxtun er að sjálfsögðu mikilvæg en þegar safnað er fyrir útborgun í fyrstu íbúð tökum við tillit til fleiri þátta. Fyrstu íbúðakaupin eru ekki aðeins nauðsynleg fjárfesting heldur er afar mikilvægt að þau heppnist vel. Því þarf að vanda bæði undirbúninginn og sparnaðinn. Þegar hinar ýmsu hliðar sparnaðarins hafa verið metnar ætti að verða auðveldara fyrir ykkur að velja það sem syni þínum hentar best. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Tímalengd sparnaðarins Aðspurður um hentuga ávöxtunarkosti svara ég yfirleitt um hæl „hvenær stendur til að nota þessa peninga?“. Það er sennilega mikilvægasta spurningin í þessu samhengi. Almennt má nefnilega segja að því lengri tíma sem við höfum til að spara, þeim mun fleiri valkostir (og oft betri) standi okkur til boða. Sem dæmi um slíkt má nefna að ef til stendur að kaupa íbúð á næstu örfáu misserum er sennilega ekki við hæfi að fjárfesta í kostum sem bera mikinn upphafskostnað. Sömuleiðis gæti veruleg og sennilega óréttlætanleg áhætta fylgt því að velja kosti sem sveiflast umtalsvert í verði, svo sem þegar stór hluti sparnaðar liggur í hlutabréfum. Því er langsamlega algengast að skammtímasparnaður sé geymdur á bankabókum eða í lausafjársjóðum. Eftir því sem lengra er í fasteignakaupin verða fleiri kostir raunhæfir. Þegar sparað er til langs tíma er algengt að stillt sé upp vel dreifðu eignasafni, eða sparað í vel dreifðum (og alþjóðlegum) sjóði í þeirri viðleitni að ná fram sem mestri ávöxtun að teknu tilliti til áhættu. Áhættan Það skiptir nefnilega miklu máli að huga að þeirri áhættu sem fylgir ávöxtun og fjárfestingum, ekki síst þegar safnað er fyrir útborgun í íbúð. Verulegar verðsveiflur eru eðlilegur þáttur í því að fjárfesta á hlutabréfamörkuðum og ef sækja á þá góðu ávöxtun sem vænst er þarf sparifjáreigandinn að vera tilbúinn að þola þær sveiflur. En þær geta varað í fleiri ár og þegar kaupa á heimili er ekki víst að hægt sé að réttlæta slíka áhættu með væntingum um aukna ávöxtun. Eins og áður segir á þetta einkum við um skammtímasparnað, en til lengri tíma hafa sveiflur mun minni áhrif á öryggi fjárfestingarinnar. Auk þess má nefna sem áhættuþátt að sé sparnaðurinn aðgengilegur, gætu sumir kannski freistast til þess að nýta féð í eitthvað annað en upphaflega stóð til. Því heyri ég reglulega að sótt sé í ávöxtunarkosti sem fela í sér bindingu eða einhvers konar fyrirhöfn við úttekt, svo lágmarka megi líkurnar á að farið sé út af sporinu. Sparnaðarkostir Áður en valið er á milli ólíkra ávöxtunarkosta þarf því að meta hve lengi skal sparað og hversu miklar verðsveiflur eru ásættanlegar. Lítum á nokkra sem gætu komið til greina: Framtíðarreikningur: Það sem nú þegar er inni á framtíðarreikningnum má sennilega vera þar áfram, en ekki er gert ráð fyrir innborgunum eftir 18 ára aldur. Almennt eru þar nokkuð hærri verðtryggðir vextir en á öðrum verðtryggðum bókum og því getur framtíðarreikningurinn verið ákjósanlegur kostur ef áhugi er á verðtryggðri ávöxtun. Sérstakir húsnæðissparnaðarreikningar: Ólíklegt er að betri vextir fáist á bankabókum en á reikningum sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir húsnæðissparnað. Þeim fylgja þó ákveðnar takmarkanir, sem geta til dæmis verið hámarksaldur, að aðeins sé hægt að stofna slíkan reikning einu sinni og að honum sé lokað við úttekt. Manstu hvað ég nefndi varðandi freistingar og hættuna á að peningnum sé varið í eitthvað annað? Húsnæðissparnaðarreikningur gæti dregið úr hættunni á slíku. Skammtímasjóðir: Mikið úrval sjóða er í boði á Íslandi. Þeir eru þægilegir að því leyti að lítið mál er að greiða þangað inn með reglubundnum hætti án lágmarksfjárhæða (eða með mjög lágum lágmarksfjárhæðum) og aðgengi að sparnaðinum er gott. Sjóðir eru sameiginleg fjárfesting þar sem sjóðstjóri dreifir eignum samkvæmt heimildum sjóðsins og sér því um vinnuna við að velja, dreifa og endurfjárfesta. Ýmsir skammtímasjóðir eru til, svo sem lausafjár- eða veltufjársjóðir. Þeim er ætlað að vera tiltölulega svipaðir bankareikningum í notkun, með litlum verðsveiflum og möguleika á sambærilegri eða betri ávöxtun. Þeir eru þó ekki alveg eins og bankareikningar og geta lækkað í verði. Eftir því sem reynt er að sækja meiri ávöxtun í sjóði er líklegt að verðsveiflur aukist og þar með áhætta til skamms tíma. Mundu að skoða vel og vandlega þann kostnað sem fylgir sjóðum, svo sem kostnað við kaup og árlegum umsjónarlaunum. Langtímasjóðir: Þegar ávaxtað er til langs tíma eykst raunhæft úrval sjóða. Þá er jafnvel verið að skoða sjóði sem fjárfesta í hinum ýmsu eignaflokkum eða að miklu leyti í hlutabréfum. Skoðaðu vel eignadreifingu slíkra sjóða. Því miður eru sjóðir sem sagðir eru bjóða upp á góða eignadreifingu ekki endilega jafn vel dreifðir og ætla mætti. Þannig ber nokkuð á því að slíkir sjóðir fjárfesti lítið utan landsteinanna. Viðbótarlífeyrir og reglulegur sparnaður Þegar valdar hafa verið ávöxtunarleiðir er tilvalið að skipuleggja sparnaðinn. Nýtið þessa reiknivél til að sjá hvernig hann færist nær markmiðinu sínu, að teknu tilliti til þess að húsnæðisverð gæti hækkað á sparnaðartímanum. Passaðu svo upp á að sonur þinn greiði í viðbótarlífeyrissparnað af laununum sínum og fái það mótframlag sem hann á rétt á. Þannig getur hann aukið við útborgunina þegar þar að kemur og nýtt sér skattfrjálsa ráðstöfun sparnaðarins, innan þeirra marka sem reglurnar heimila. Endilega skilaðu til hans kveðju frá mér með óskum um gott gengi! Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Börn og uppeldi Tengdar fréttir Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira
Góð ávöxtun er að sjálfsögðu mikilvæg en þegar safnað er fyrir útborgun í fyrstu íbúð tökum við tillit til fleiri þátta. Fyrstu íbúðakaupin eru ekki aðeins nauðsynleg fjárfesting heldur er afar mikilvægt að þau heppnist vel. Því þarf að vanda bæði undirbúninginn og sparnaðinn. Þegar hinar ýmsu hliðar sparnaðarins hafa verið metnar ætti að verða auðveldara fyrir ykkur að velja það sem syni þínum hentar best. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Tímalengd sparnaðarins Aðspurður um hentuga ávöxtunarkosti svara ég yfirleitt um hæl „hvenær stendur til að nota þessa peninga?“. Það er sennilega mikilvægasta spurningin í þessu samhengi. Almennt má nefnilega segja að því lengri tíma sem við höfum til að spara, þeim mun fleiri valkostir (og oft betri) standi okkur til boða. Sem dæmi um slíkt má nefna að ef til stendur að kaupa íbúð á næstu örfáu misserum er sennilega ekki við hæfi að fjárfesta í kostum sem bera mikinn upphafskostnað. Sömuleiðis gæti veruleg og sennilega óréttlætanleg áhætta fylgt því að velja kosti sem sveiflast umtalsvert í verði, svo sem þegar stór hluti sparnaðar liggur í hlutabréfum. Því er langsamlega algengast að skammtímasparnaður sé geymdur á bankabókum eða í lausafjársjóðum. Eftir því sem lengra er í fasteignakaupin verða fleiri kostir raunhæfir. Þegar sparað er til langs tíma er algengt að stillt sé upp vel dreifðu eignasafni, eða sparað í vel dreifðum (og alþjóðlegum) sjóði í þeirri viðleitni að ná fram sem mestri ávöxtun að teknu tilliti til áhættu. Áhættan Það skiptir nefnilega miklu máli að huga að þeirri áhættu sem fylgir ávöxtun og fjárfestingum, ekki síst þegar safnað er fyrir útborgun í íbúð. Verulegar verðsveiflur eru eðlilegur þáttur í því að fjárfesta á hlutabréfamörkuðum og ef sækja á þá góðu ávöxtun sem vænst er þarf sparifjáreigandinn að vera tilbúinn að þola þær sveiflur. En þær geta varað í fleiri ár og þegar kaupa á heimili er ekki víst að hægt sé að réttlæta slíka áhættu með væntingum um aukna ávöxtun. Eins og áður segir á þetta einkum við um skammtímasparnað, en til lengri tíma hafa sveiflur mun minni áhrif á öryggi fjárfestingarinnar. Auk þess má nefna sem áhættuþátt að sé sparnaðurinn aðgengilegur, gætu sumir kannski freistast til þess að nýta féð í eitthvað annað en upphaflega stóð til. Því heyri ég reglulega að sótt sé í ávöxtunarkosti sem fela í sér bindingu eða einhvers konar fyrirhöfn við úttekt, svo lágmarka megi líkurnar á að farið sé út af sporinu. Sparnaðarkostir Áður en valið er á milli ólíkra ávöxtunarkosta þarf því að meta hve lengi skal sparað og hversu miklar verðsveiflur eru ásættanlegar. Lítum á nokkra sem gætu komið til greina: Framtíðarreikningur: Það sem nú þegar er inni á framtíðarreikningnum má sennilega vera þar áfram, en ekki er gert ráð fyrir innborgunum eftir 18 ára aldur. Almennt eru þar nokkuð hærri verðtryggðir vextir en á öðrum verðtryggðum bókum og því getur framtíðarreikningurinn verið ákjósanlegur kostur ef áhugi er á verðtryggðri ávöxtun. Sérstakir húsnæðissparnaðarreikningar: Ólíklegt er að betri vextir fáist á bankabókum en á reikningum sem sérstaklega eru hugsaðir fyrir húsnæðissparnað. Þeim fylgja þó ákveðnar takmarkanir, sem geta til dæmis verið hámarksaldur, að aðeins sé hægt að stofna slíkan reikning einu sinni og að honum sé lokað við úttekt. Manstu hvað ég nefndi varðandi freistingar og hættuna á að peningnum sé varið í eitthvað annað? Húsnæðissparnaðarreikningur gæti dregið úr hættunni á slíku. Skammtímasjóðir: Mikið úrval sjóða er í boði á Íslandi. Þeir eru þægilegir að því leyti að lítið mál er að greiða þangað inn með reglubundnum hætti án lágmarksfjárhæða (eða með mjög lágum lágmarksfjárhæðum) og aðgengi að sparnaðinum er gott. Sjóðir eru sameiginleg fjárfesting þar sem sjóðstjóri dreifir eignum samkvæmt heimildum sjóðsins og sér því um vinnuna við að velja, dreifa og endurfjárfesta. Ýmsir skammtímasjóðir eru til, svo sem lausafjár- eða veltufjársjóðir. Þeim er ætlað að vera tiltölulega svipaðir bankareikningum í notkun, með litlum verðsveiflum og möguleika á sambærilegri eða betri ávöxtun. Þeir eru þó ekki alveg eins og bankareikningar og geta lækkað í verði. Eftir því sem reynt er að sækja meiri ávöxtun í sjóði er líklegt að verðsveiflur aukist og þar með áhætta til skamms tíma. Mundu að skoða vel og vandlega þann kostnað sem fylgir sjóðum, svo sem kostnað við kaup og árlegum umsjónarlaunum. Langtímasjóðir: Þegar ávaxtað er til langs tíma eykst raunhæft úrval sjóða. Þá er jafnvel verið að skoða sjóði sem fjárfesta í hinum ýmsu eignaflokkum eða að miklu leyti í hlutabréfum. Skoðaðu vel eignadreifingu slíkra sjóða. Því miður eru sjóðir sem sagðir eru bjóða upp á góða eignadreifingu ekki endilega jafn vel dreifðir og ætla mætti. Þannig ber nokkuð á því að slíkir sjóðir fjárfesti lítið utan landsteinanna. Viðbótarlífeyrir og reglulegur sparnaður Þegar valdar hafa verið ávöxtunarleiðir er tilvalið að skipuleggja sparnaðinn. Nýtið þessa reiknivél til að sjá hvernig hann færist nær markmiðinu sínu, að teknu tilliti til þess að húsnæðisverð gæti hækkað á sparnaðartímanum. Passaðu svo upp á að sonur þinn greiði í viðbótarlífeyrissparnað af laununum sínum og fái það mótframlag sem hann á rétt á. Þannig getur hann aukið við útborgunina þegar þar að kemur og nýtt sér skattfrjálsa ráðstöfun sparnaðarins, innan þeirra marka sem reglurnar heimila. Endilega skilaðu til hans kveðju frá mér með óskum um gott gengi!
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Börn og uppeldi Tengdar fréttir Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00 Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03 Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00 Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira
Af hverju eru allir að eyða svona miklu? 32 ára kona spyr: „Mér finnst eins og flestir í kringum mig eyði svo miklu í hversdagslega hluti. Þau eru alltaf að kaupa sér dýran hádegismat og dýr föt og tilbúin að eyða miklu meiru í alls konar vörur og þjónustu en mér finnst eðlilegt. Þetta er ekki fólk sem er með hærri laun en ég og þess vegna er ég svo hrædd um að þau séu að taka lán fyrir alls konar óþarfa. Af hverju gerir fólk þetta?“ 25. ágúst 2026 07:00
Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ 31. júlí 2026 07:03
Hvenær á ég að greiða inn á lánið? 54 ára kona spyr: „Sæll. Nú er ég að velta fyrir mér að borga sirka 1,5 milljón inn á 17 milljóna króna húsnæðislán sem ég er með. Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að hafa í huga, er einhver tímapunktur betri en annar eða get ég greitt inn á höfuðstólinn hvenær sem er? Með góðri kveðju og þökk.“ 11. ágúst 2026 07:00