Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Björn Berg Gunnarsson skrifar 31. júlí 2026 07:03 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm Fimmtug kona spyr: „Ég fékk arf upp á nokkra tugi milljóna. Hvort er betra fyrir mig að borga upp húsnæðislánið mitt sem er verðtryggt eða að setja peningana á sparireikning og nota vexti til að borga aukalega inn á lánið? Þetta er það há upphæð að mánaðarlegir vextir geta „coverað“ verðtrygginguna.“ Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Auðvitað eru peningar bara peningar. Við gætum því litið svo á að hvort sem okkur berast háar fjárhæðir með einni millifærslu eða heimilisbókhaldið skilur eftir svigrúm um hver mánaðarmót ætti ráðstöfun fjármunanna að vera svipuð. Það er þó talsverður eðlismunur á þessu tvennu. Ég sé það og heyri á fólki sem ræðir við mig um ráðstöfun arfs. Svo há fjárhæð getur nefnilega gjörbreytt lífi okkar og gefur okkur tilefni til að spyrja nokkurra spurninga. Mögulega eiga einhverjar þeirra við í þínu tilfelli, þótt þú sért nú aðeins að spyrja út í húsnæðislánið: Hvað hefði hinn látni viljað? Það skiptir máli hvaðan peningarnir berast. Var arfleifandi prinsippmanneskja sem hafði bjargfasta trú á tiltekinni ráðstöfun fjármuna? Telur þú til dæmis að viðkomandi hafi viljað að fleiri myndu njóta þeirra (svo sem barnabörn eða góðgerðarfélög), eða að þú nýttir þá að hluta eða öllu leyti í að skemmta þér, greiða niður skuldir eða fjárfesta? Hvað bætir fjárhagsstöðu þína mest? Þú nefnir að þú skuldir húsnæðislán en ég hef ekki fleiri upplýsingar um þína fjárhagsstöðu. Gæti vantað meiri sparnað fyrir efri árin? Eru önnur lán kannski að þvælast fyrir þér? Það hjálpar að hafa góða yfirsýn yfir fjármálin og forgangsraða. Hvað myndi gleðja þig mest? Peningar sinna aðallega þremur hlutverkum: Að tryggja okkur öryggi, að greiða þá reikninga sem þarf að greiða og að greiða þá reikninga sem við viljum greiða. Hvað vilt þú geta leyft þér? Væri gaman að búa annars staðar? Viltu læra eitthvað? Viltu vinna minna eða annað? Aftur snýst þetta um forgangsröðun og hvernig þú nýtir peningana sem best. Áttu að borga upp húsnæðislánið? En að spurningunni þinni. Hér hef ég nokkrum sinnum svarað fólki sem er að melta svipaðar spurningar. Einn spurði til dæmis hvort betra væri að klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið. Annar velti fyrir sér hvað vinnist í raun þegar greitt er inn á verðtryggð lán. Spurt hefur verið hvort betra sé að greiða inn á verðtryggt lán eða spara og hvers vegna lán hafi ekki lækkað þrátt fyrir að greitt hafi verið inn á það. Við deilum ekki öll sömu fjárhagsstöðu, framtíðarsýn eða smekk. Því er ég aldeilis ekki viss um hvernig samtal okkar yrði, eða hverjar ráðleggingar mínar væru, ef við ræddum þessi mál yfir kaffibolla. Ég vil þó benda þér á nokkur atriði og biðja þig um að hafa þau í huga þegar þú sest vandlega yfir þessi mál. Niðurgreiðsla húsnæðisláns býður þér ljómandi góða ávöxtun, án áhættu, skatta, sveiflna, fyrirhafnar og oft einnig án nokkurs kostnaðar. Ég hef í nær tvo áratugi rætt við fólk um persónuleg fjármál þess og hef enn ekki hitt neinn sem sér eftir því að hafa greitt niður lán. Þeir eru þó fjölmargir sem sjá eftir því að hafa haft tækifæri til þess en kosið annað. Þegar lánið er farið eykst ráðstöfunarfé þitt um hver mánaðarmót. Þú getur því kosið að lifa hærra, leggja meira fyrir eða nýta þér svigrúmið til minni vinnu. Passaðu upp á að eiga digran varasjóð, hvað sem þú velur. Reiknaðu út í hvað stefnir í þínum lífeyrismálum og hvort þú þurfir á meiri sparnaði að halda. Þú getur notað reiknivélar lífeyrissjóða til þess eða jafnvel þjónustu Aurbjargar. Veltu fyrir þér andlega þættinum. Hvernig tilfinning væri að vera skuldlaus og eiga meira svigrúm um hver mánaðarmót? Þetta þarf ekki að vera allt eða ekkert Það er ekkert athugavert við að deila arfinum niður og ráðstafa honum þannig með skynsamlegum hætti. Kannski fer hluti hans í að greiða niður húsnæðislánið, hluti í að byggja upp neyðarsjóð og viðbótarsparnað vegna efri áranna og hluti í eitthvað virkilega skemmtilegt. Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Lánamál Tengdar fréttir Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01 Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02 Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03 Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Sjá meira
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru. Auðvitað eru peningar bara peningar. Við gætum því litið svo á að hvort sem okkur berast háar fjárhæðir með einni millifærslu eða heimilisbókhaldið skilur eftir svigrúm um hver mánaðarmót ætti ráðstöfun fjármunanna að vera svipuð. Það er þó talsverður eðlismunur á þessu tvennu. Ég sé það og heyri á fólki sem ræðir við mig um ráðstöfun arfs. Svo há fjárhæð getur nefnilega gjörbreytt lífi okkar og gefur okkur tilefni til að spyrja nokkurra spurninga. Mögulega eiga einhverjar þeirra við í þínu tilfelli, þótt þú sért nú aðeins að spyrja út í húsnæðislánið: Hvað hefði hinn látni viljað? Það skiptir máli hvaðan peningarnir berast. Var arfleifandi prinsippmanneskja sem hafði bjargfasta trú á tiltekinni ráðstöfun fjármuna? Telur þú til dæmis að viðkomandi hafi viljað að fleiri myndu njóta þeirra (svo sem barnabörn eða góðgerðarfélög), eða að þú nýttir þá að hluta eða öllu leyti í að skemmta þér, greiða niður skuldir eða fjárfesta? Hvað bætir fjárhagsstöðu þína mest? Þú nefnir að þú skuldir húsnæðislán en ég hef ekki fleiri upplýsingar um þína fjárhagsstöðu. Gæti vantað meiri sparnað fyrir efri árin? Eru önnur lán kannski að þvælast fyrir þér? Það hjálpar að hafa góða yfirsýn yfir fjármálin og forgangsraða. Hvað myndi gleðja þig mest? Peningar sinna aðallega þremur hlutverkum: Að tryggja okkur öryggi, að greiða þá reikninga sem þarf að greiða og að greiða þá reikninga sem við viljum greiða. Hvað vilt þú geta leyft þér? Væri gaman að búa annars staðar? Viltu læra eitthvað? Viltu vinna minna eða annað? Aftur snýst þetta um forgangsröðun og hvernig þú nýtir peningana sem best. Áttu að borga upp húsnæðislánið? En að spurningunni þinni. Hér hef ég nokkrum sinnum svarað fólki sem er að melta svipaðar spurningar. Einn spurði til dæmis hvort betra væri að klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið. Annar velti fyrir sér hvað vinnist í raun þegar greitt er inn á verðtryggð lán. Spurt hefur verið hvort betra sé að greiða inn á verðtryggt lán eða spara og hvers vegna lán hafi ekki lækkað þrátt fyrir að greitt hafi verið inn á það. Við deilum ekki öll sömu fjárhagsstöðu, framtíðarsýn eða smekk. Því er ég aldeilis ekki viss um hvernig samtal okkar yrði, eða hverjar ráðleggingar mínar væru, ef við ræddum þessi mál yfir kaffibolla. Ég vil þó benda þér á nokkur atriði og biðja þig um að hafa þau í huga þegar þú sest vandlega yfir þessi mál. Niðurgreiðsla húsnæðisláns býður þér ljómandi góða ávöxtun, án áhættu, skatta, sveiflna, fyrirhafnar og oft einnig án nokkurs kostnaðar. Ég hef í nær tvo áratugi rætt við fólk um persónuleg fjármál þess og hef enn ekki hitt neinn sem sér eftir því að hafa greitt niður lán. Þeir eru þó fjölmargir sem sjá eftir því að hafa haft tækifæri til þess en kosið annað. Þegar lánið er farið eykst ráðstöfunarfé þitt um hver mánaðarmót. Þú getur því kosið að lifa hærra, leggja meira fyrir eða nýta þér svigrúmið til minni vinnu. Passaðu upp á að eiga digran varasjóð, hvað sem þú velur. Reiknaðu út í hvað stefnir í þínum lífeyrismálum og hvort þú þurfir á meiri sparnaði að halda. Þú getur notað reiknivélar lífeyrissjóða til þess eða jafnvel þjónustu Aurbjargar. Veltu fyrir þér andlega þættinum. Hvernig tilfinning væri að vera skuldlaus og eiga meira svigrúm um hver mánaðarmót? Þetta þarf ekki að vera allt eða ekkert Það er ekkert athugavert við að deila arfinum niður og ráðstafa honum þannig með skynsamlegum hætti. Kannski fer hluti hans í að greiða niður húsnæðislánið, hluti í að byggja upp neyðarsjóð og viðbótarsparnað vegna efri áranna og hluti í eitthvað virkilega skemmtilegt.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengist fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Lánamál Tengdar fréttir Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01 Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02 Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03 Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Sjá meira
Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? 27 ára kona spyr: „Mér finnst eins og allir í kringum mig séu að skipta greiðslum fyrir alls konar kaup (t.d. síma, tölvur og heimilistæki). Alltaf verið að tala um hversu hentugt þetta er og ódýrt. „Miklu betra að borga einhverja þúsundkalla á mánuði heldur en 200K núna“ sagði einn við mig. En er þetta ekki bara lán? Þessi sami einstaklingur er í raun að borga hátt í 70K samtals á mánuði fyrir allar þessar greiðslur. Er þetta virkilega jafn hentugt og lítið mál eins og margir virðast halda?“ 14. júlí 2026 07:01
Má gefa börnunum sínum peninga? 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ 30. júní 2026 07:02
Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? 33 ára karlmaður spyr: „Góðan daginn. Er með námslán og eftirstöðvar á því eru nú um 814.000 kr. Afborganir af því eru rúmar 29.000 á mánuði. Ég get borgað inn á það aukalega hátt upp í 200.000 á mánuði og gengið frá láninu innan árs. Hversu skynsamt er fyrir mig að reyna að borga það upp sem fyrst og geta nýtt þessa upphæð inn á húsnæðislánið mitt eða halda áfram að borga af því og reyna frekar að greiða aukalega inn á húsnæðislánið? Þetta eru einu tvö lánin sem ég er með. Er einnig með smá upphæð í fjárfestingar.“ 16. júní 2026 07:03