Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar 30. október 2026 15:30 Þegar Viðskiptaráð skilar af sér skýrslu má bóka að viðfangsefnið sé að eyðileggja eitthvað sem er mikilvægt, fallegt og jafnvel heilagt og svo má líka bóka að skýrslan sé óvönduð og uppfull af villum. Þannig var olíuskýrslan, þannig var menningarskýrslan og nú vill Viðskiptaráð leggja niður Rammaáætlun með markmiði um að tvöfalda orkuframleiðslu á 15 árum. Þeir birta kort með nánast öllum náttúruperlum Íslands, Torfajökulsvæði, Jökulsá á Fjöllum, Kverkfjöll, you name it. Skýrslan er svolítið fyndin vegna þess að þar segir að aðeins orkukostir yfir 600MW séu þess eðlis að þeir réttlæti aðkomu Alþingis. Vandinn er sá að ENGINN orkukostur á Íslandi er yfir 570MW. Virkjun Jökulsár á Fjöllum þar sem henni er veitt gegnum Arnardal út á austurland er langstærsti kosturinn, betur þekkt sem lokaáfangi LSD - er 570MW. Þetta er auðvitað kostulegt. Að setja 600MW í skýrslu sem viðmið þegar ENGINN 600 MW virkjunarkostur er til á Íslandi. Kannski er þetta villa. Kannski halda þau að Íslendingar séu safn af hálfvitum sem kunna ekki að telja. Kannski eru þeir bara eins og Láki Jarðálfur og finnst gaman að vera vondir. Ég skil ekki hvað þeim fyrirtækjum sem halda uppi Viðskiptaráði gengur til. Það er ekki hægt að segja að framkvæmdasaga síðustu 20 ára gefi nokkurt tilefni til þess að opið veiðileyfi verði gefið á náttúru Íslands. Kísilverið í Helguvík varð gjaldþrota með 22 milljarða tjóni. Álverið í Helguvík var tjón upp á 20 milljarða. Thorsil Í Helguvík varð gjaldþrota á þessu ári með hundruð milljóna tapi. Kísilverið á Bakka færði alla fjárfestingu lífeyrissjóða niður í núll og tapið nemur enn fleiri milljörðum. Hvað kallar þá á þessa tvöföldun? Hvað kallar á alla þessa orku? Ég skil ekki hvernig opinber fyrirtæki eins og Landsvirkjun og Orkuveitan sé stætt á að lobbía gegn Alþingi. Ég hvet forsvarsmenn þessara fyrirtækja til að draga þennan ófögnuð til baka og manna þetta ráð af einhverri fagmennsku - já eða hreinlega mennsku. Það væri heiðarlegra að forstjórar stigu fram og hættu að fela sig bak við hugmyndafræðilega handrukkara. Að þeir lýstu yfir því formlega að ný skyldi hefja stórsókn í hernaðnum gegn landinu. Ef þeir gera það ekki verður að líta svo á að þetta sé stefna þeirra og hugmyndafræði. Höfundur er rithöfundur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun